Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000 7T'
rf
UMRÆÐAN
Tvöföldun
Rey kj anesbrautar
MIKIL umræða hef-
ur verið um tvöföldun
Reykjanesbrautar í
kjölfar nýlegra mjög al-
varlegra umferðar-
slysa. Þingmenn og al-
menningur hafa
einblínt á tvöföldun
brautarinnar og um-
ræðan undanfarið hefur
snúist um hve langan
tíma tekur að tvöfalda
brautina. En má ekki
skoða málin frá öðru
sjónarhorni? Algengt er
að miða við að vegur
með eina akrein í hvora
akstursstefnu geti ann-
að 12-15 þús. bifreiðum
á dag. Um Reykjanesbraut fara nú
um 8 þús. bifreiðar á dag. Ekki virðist
því vera knýjandi þörf á tvöfoldun
vegarins vegna umferðarþunga. Um-
ferðarslysin eru hins vegar allt of
mörg og alvarleg og því hefur Alþingi
ákveðið að tvöfalda Reykjanesbraut.
Reiknað er með að stofnkostnaður
vegna tvöföldunar brautarinnar verði
2,5-3 milljarðar króna. Samkvæmt
upplýsingum sem gi-einarhöfundur
aflaði sér hjá Vegagerðinni síðasta
sumar má gera ráð fyrir að áriegur
viðhalds- og rekstrarkostnaður við
tvöfalda Reykjanesbraut muni nema
um 20 m. kr. umfram núverandi
kostnað. Ef reiknað er með 5% vöxt-
um (t.d. af lánsfé) þá er vaxtakostn-
aður vegna 2,5-3 milljarða fram-
kvæmdar 125-180 m. kr. á ári. Það
má því með sanni segja að árlegur
kostnaður vegna tvöföldunar Reykja-
nesbrautar verði 145-200 m. kr. á ári
um ókomna framtíð. Ef aukið umferð-
aröryggi er meginástæðan (og ef til
vill eina ástæðan) fyrir tvöföldun
Reykjanesbrautar þá er eðlilegt að
spurt sé hvort ekki megi nýta 145-200
m. kr. á hagkvæmari og skjótvirkari
hátt en að tvöfalda Reykjanesbraut-
ina.
Greinarhöfundur fullyrðir að
fækka megi með tiltölulega litlum til-
kostnaði umferðarslysum verulega á
Reykjanesbraut með aukinni lög-
gæslu. Sólarhringsvakt tveggja lög-
reglumanna á Reykjanesbraut alla
daga ársins mundi t.d. einungis kosta
um 40 m. kr. Sólarhringsvakt fjög-
urra lögreglumanna í tveimur bifreið-
um kostar um 80 m. kr. Margir aðrh-
valkostir eru í stöðunni, t.d. að vera
með mjög öflugt eftirlit yfir daginn og
minna á nóttinni, setja upp hraða-
myndavélar og nota hraðamynda-
vélabifreið ríkislögreglustjóra (sem
hægt er að nýta miklu
betur fáist mannskapur
á bifreiðina) o.m.fl. Að
sjálfsögðu mætti síðan
athuga með að útbúa
2+1 veg eins og fram
kemur í Mbl. 13. des. sl.
en kostnaður við slíkt
næmi aðeins um þriðj-
ungi af kostnaði við tvö-
földun brautai-innar
auk þess sem mun fyrr
ætti að vera hægt að
ráðast í slíka fram-
kvæmd.
Fjölgun lögreglu-
Sólmundur manna og mjög öflugt
Már Jónsson umferðareftirlit gæti
verið komið til fram-
kvæmda innan 2-3 mánaða. Fjölgun
lögreglumanna þyrfti til að byrja með
ekki einu sinni að kosta ríkið svo
Umferðarmannvirki
Er til fljótvirkari, hag-
kvæmari og betri lausn
til að fækka umferð-
arslysum, spyr Sól-
mundur Már Jónsson,
en að tvöfalda Reykja-
nesbrautina?
óskaplega mikið því að búast mætti
við að sektum mundi snarfjölga í kjöl-
farið á öflugra eftirliti og þar með
hækkuðu sektartekjur rödssjóðs.
Sekt vegna aksturs á bilinu 111-120
km / klst. er t.d. 10.000 kr. Ef 50
manns yrðu teknir á dag í þrjá mán-
uði yrðu sektartekjur í ríkissjóð 45 m.
kr. á þremur mánuðum. Sektartekjur
stæðu þannig undir kostnaði við t.d.
tvo lögreglumenn í einum bíl allan
sólarhi-inginn (eða fjóra lögreglu-
menn í tveimur bílum hálfan sólar-
hringinn) allt árið. Þegar fram liðu
stundir myndi umferðai-hi-aði lækka
verulega og þai' með fækka sektum
og sektartekjum í ríkissjóð.
Tvöföldun Reykjanesbrautar mun
að öllum líkindum auka hraðann veru-
lega og um leið eykst slysahætta
vegna hraða. Tvöföldun myndi hins
vegar koma í veg fyrir að bifreiðar
keyrðu framan á hver aðra. Það er því
alls óvíst hvort tvöföldun Reykjanes-
brautar mundi í reynd auka umferð-
ai'öryggi vegarins verulega og allt
eins líklegt að gerð yrði krafa um öfl-
ugt eftirlit lögreglu og hraðamynda-
véla þegar tvöföldunin er orðin að
veruleika. Það er því margt sem mæl-
ir með því að byrja á því að auka eft-
irlit áður en ráðist verður í miklar,
kostnaðarsamar og tímafrekar fram-
kvæmdir.
í þessari grein hefur með einföld-
um útreikingum verið reynt að sýna
fram á að auka má umferðaröryggi á
Reykjanesbraut verulega með mjög
litlum tilkostnaði með skjótvirkum
hætti. Einungis hefm' verið fjallað um
kostnað við vegagerð annai's vegar og
löggæslu hins vegar. Ef tjónakostn-
aður tryggingafélaganna sem metinn
hefur verið upp á um 200 m. kr. á ári
vegna slysa á Reykjanesbraut síðustu
árin er tekinn með í reikninginn vii'ð-
ist borðleggjandi að öflug umferðar-
löggæsla á Reykjanesbraut er fjár-
festing sem borgar sig upp nánast um
leið. Þetta vh'tist enn Ijósara ef reikn-
aður væri kostnaður þjóðfélagsins
vegna vinnutaps og heilbrigðiskostn-
aður vegna slasaðra á Reykjanes-
braut.
Greinarhöfundur vonast til að þetta
greinarkom veki alla hlutaðeigandi til
umhugsunar, hvort sem það eru íbúar
Suðumesja, þingmenn, samgöngu-
ráðherra, vegagerðin, dómsmálaráð-
herra, fjái-málaráðhen'a, trygginga-
félögin eða umferðarráð. En eins og
sést á þessari upptalningu (sem
ömgglega er ekki tæmandi) koma
margir að þessum málum, sem hugs-
anlega skýrir ástand þehra í dag.
Höfundur er framkvæmdastjóri
rekstrar- og þjónustusviðs Lög-
reglustjórans í Reykjavík.
Model 8450
560 W borvél 13 mm 0-2800 sn/min
JÓLATILBOÐSVERÐ
7.900,-
BSSHE.,,
Akurwyrl: LítmbiMm •
»«ml WS-1&OC
>tml 481.107C
Nýkomin sending af sófasettum
ÚJj' '
Vandað Mantelassi sófasett
?+1+,1... . , , , . , . M/leðri aðeins kr.
Litir dokkkoniaksbrunt
M/áklæði aðeins kr.
og Ijóskoníaksbrúnt ^\^\^\
Áklæði í fjórum litum. | | § OiUUUi"
Vönduð gæðdtúsgögn
ö góðu veiði!
m
iH
H|á okkur eru Visa- og
Euro-rateamningar
ávísuná statgreiðBlu
I
usgogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 m 568-5375 m Fax 568-5275
3 ifluh"
Þú gætir unnið 100.000 kr
á mánuði í 10 ár!
rX
rþf\j oq breytt versfun.
(Úrvaf affaffegum
sízartgrípum, úrum og
gjafavöru á gódu veraí.
Reykjavikurvegur 62 Hf Símí 565 2650
fc. 11®
■
^mbl.is j
LLTAf= eiTTH\^\£> /VVT7