Morgunblaðið - 19.12.2000, Blaðsíða 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hestar
teknir á hús
Veturinn skall snögglega á í síðustu viku
sunnanlands og það var eins og við manninn
mælt hestamenn flykktust af stað með
kerrur sínar eða hringdu í flutningabíl-
■ stjóra og pöntuðu far fyrir gæðingana í
skyndi. Valdimar Kristinsson leit inn í hest-
hús þar sem fyrir voru níu gæðingar ný-
komnir inn í brúsandi feldi, tandurhreinir
og sællegir eftir hagstætt haust.
Ekki má gleyma þeim sem úti híma. Þeim þarf að tryggja fóður, vatn og skjól svo öllum líði vel.
TÍÐARFARIÐ hefur leikið við
hrossin sem og aðra víða um
land. Veturinn var aðeins
fyrr á ferðinni fyrir norðan en á
föstudag kom veturinn sunnanlands
og ýtti það við mörgum að sækja
færleikana og koma þeim á hús.
Tíeyndar er þessi helgi mikil hýs-
igarhelgi því allir þeir sem ekki
eta hugsað sér jólin án útreiða
erða að taka hrossin inn tímanlega,
3ta þeim kost á að venjast heyj-
r.um, heyjast eins og það er kallað.
íðan þarf að járna, raspa tennur
gefa ormalyf og ekki er verra að
raka undan faxi til að lofti betur um
það og um leið versna lífsskilyrði
lúsarinnar.
Hófsemd í heygjöf
Astæða er til að minna hesteig-
endur á að fara varlega í gjöfína
fyrstu sólarhringana, sér í lagi ef
hey eru innihaldsrík af fóðurefnum
eins og próteini og kolvetni. Gott er
að eiga forna tuggu frá síðasta ári
til að byrja gjöfina við hýsingu,
fyrningar er það víst kallað á bú-
fiSTuno
Milli manns og hests...
... er
nSTUDD arhnakkur
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
L í N A R U T
KENNIR ÞÉR AÐ FARÐA ÞIG ENN BETUR
NYTT MYNDBAND
mannamáli. En ætla má að hjól
hestamennskunnar komist á fulla
ferð á næstu vikum með útreiðum,
námskeiðshaldi og félagsskapnum í
hesthúsahverfunum víða um land.
En um leið og sumir taka á hús er
hollt að muna eftir hrossunum sem
enn eru úti. Er eitthvað að hafa í
högunum, hafa þau skjól og aðgang
að vatni? Víða var farið að gæta
vatnsleysis í högum í frostþurrkum
undanfarnar vikur sunnanlands en
nú þegar hefur snjóað lagast
ástandið til muna. Rétt er þó að
geta þess að best er að hrossin fái
vatn því talsverð orka fer í að bræða
snjóinn sé það eina vætan sem
hrossin fá. Víða hagar svo til að
hægt er að gefa hrossum volgt vatn
og er það mjög gott. Það bæði yljar í
kuldum og hrossið eyðir engri orku
í að hita vatnið í líkamshita þegar
það er komið í magann. Útlit er fyr-
ir úrkomutíð á næstu dögum hvort
sem það verður í formi rigningar
eða snjóa þá ætti vatnsbúskapur í
girðingum að verða góður á næst-
unni.
Full ástæða er til að minna á þær
hörmungar sem orðið hafa í fóðrun
og umhirðu hrossa undanfarin ár.
Kom þá glöggt í ljós að full þörf er á
eftirliti grannans svo hægt sé að
grípa í taumana áður en í óefni er
komið. Aðbúnaður og umhirða
hrossa er víðast hvar komin í mjög
gott ástand og sums staðar til mik-
illar fyrirmyndar. Það breytir því
ekki að finna má fólk ótrúlega víða
sem tæpast ætti að hafa með um-
sjón og umhirðu hrossa að gera. Það
má því hvetja fólk til að láta ekki hjá
Gæðastýringin á eftir
að bæta meðferð lands
BEITARMÁL og landnýting eru
brennandi málefni tengd hrossarækt-
inni óijúfanlegum böndum. í um-
ræðunni um þennan málaflokk leikur
einnig hrossafjöldi stórt hlutverk.
Líklega þekkja fáir ef nokkrir betur
til þessara mála en Bjami Maronsson
sem er að segja má báðum megin
borðsins. Bjarni er starfsmaður
Landgræðslu ríkisins, hann er forða-
gæslumaður í Skagafirði, formaður
Hrossaræktarsambands Skagfirð-
inga og hrossabóndi að auki. Var
hann spurður um stöðu hrossabeitar-
mála undir lok eins gróðursælasta árs
sem um getur í langan tíma.
„Mér er að sjálfsögðu efst í huga
gæðastýringarferli sem Fagráð
hrossaræktar og Félags hrossa-
bænda hleypti af stokkunum á árinu
en Landgræðslan hefur að beiðni
þessara aðila séð um landnýtingar-
þátt verkefnisins. Fór það af stað í
haust að vísu seinna en upphaflega
stóð til en eigi að síður voru viðbrögð
hrossabænda nokkuð góð. Skoðuð
var 21 bújörð og 10-15 bændur hafa
lýst yfir áhuga á að vera með á næsta
ári og erum við hjá Landgræðslunni
ánægð með byrjunina. Er ég sann-
færður um að það kerfi sem unnið er
eftir eigi eftir að stórbæta ímynd
hrossabænda, meðferð á landi og þá
um leið auka uppskeru þess. Kerfið
virkar mjög leiðbeinandi íyrir þá
bændur sem taka þátt í því og hvetur
þá til dáða. Þá geri ég ráð fyrir að
kaupendur hrossa í framtíðinni hugi í
auknum mæli að þessum hlutum og
kaupi hross þar sem vottað er að vel
sé að málum staðið í öllum þáttum
framleiðslunnar,“ segir Bjami full-
viss um ágæti þessa verkefnis.
Þá segir hann að fullur hugur sé
hjá öllum aðilum að halda þessu
áfram, nú í vetur verði farið yfir hlut-
ina og skoðað hvað megi betur fara í
þessu eftirliti. „í fi’amtíðinni sé ég
fyrir mér að þetta gerði orðið ein-
hverskonar innra eftirlit á þann veg
að bændur sem hafa verið með góða
útkomu í landnýtingu til margra ára
sjái sjálfir um eftirlitið.
Um ástand í beitarmálum almennt
í landinu sagði Bjarni það heldur fara
batnandi og ljóst að það starf og sú
hugarfarsbreyting sem átt hefur sér
stað síðustu árin skilar sér í bættri
umgengni við beitilöndin. Það þýðir
þó ekki að allt sé í góðu lagi alls stað-
ar. Alltof víða megi finna staðbundin
vandamál. Sérstaklega minntist hann
á að víða mætti sjá illa útleikin girð-
ingarhólf nærri þéttbýli víða um land.
Þar væri oft um að ræða land sem
væri mikið beitt ár eftir ár, land sem
væri farið að lýma verulega í upp-
skeru og komin í það rof. Þegar
ástandið væri metið væri nauðsynlegt
að taka með í reikninginn gott árferði
og eins hjálpaði til að hrossum færi
heldur fækkandi sem væri vissulega
gleðiefni.
„Eg tel að bæði hvað varðar rækt-
un og markað og út frá landnýting-
arsjónai-miðum sé full nauðsyn á að
fækka hrossum í landinu. Arið 1980
þegar kvótakerfið hélt innreið sína í
landbúnaðinn voru hross um 50 þús-
und en á tæpum tuttugu árum hafði
þeim fjölgað um rúm 30 þúsund. Ég
tel að 50 þúsund hross sé mjög hæfi-
legur fjöldi, það myndi hækka mai-k-
aðsverð hrossa að fækka þeim í þá
tölu auk þess sem það myndi stuðla
mjög að hóflegri landnýtingu. Því
hefur mjög verið haldið á lofti að
landrými sé nægjanlegt fyrir 80 þús-
und hross í landinu en gæta ber að því
að hér er um fræðilega skilgreiningu
að ræða. Taka þarf tillit til þess að
hluti af því landi sem vannýtt er
stendur hestamönnum ekki til boða
eða þá að það er ekki hagstætt til nýt-
ingar vegna fjarlægðar. Menn fara
ekki að flytja hross sín í fjarlæga
landshluta til þess eins að nýta van-
nýtt land og stunda þaðan útreiðar
eða uppeldi hrossa. Þá hafa sumir
landeigendur ekki áhuga á að hleypa
hrossum inn á land sitt af ýmsum
ástæðum,“ segir Bjarni og leggur
ríka áherslu á að menn geri sér grein
fyrir þessum mikilvæga punkti.
Þá segir hann viðhorf hrossarækt-
enda til hrossafjölda hafa breyst
mjög til hins betra síðustu ár og
sömuleiðis séu menn famir að velta
meira fyrir sér hverju einstök hross
eru að skila. Algengt sé að menn séu
famir að afsetja óarðbæm hrossin og
um leið famir að vanda meira til stóð-
hestanna sem notaðir em. Þá hafi
orðið bylting í uppeldi hrossa og öll-
um aðbúnaði sem þeim er skapaður.
Þá segir Bjami að rúllumar hafi vald-
ið straumhvörfum hvað fóðmn við-
kemur en þar fari saman auðveldari
heyskapur sem skilar meiri gæðum,
auknu magni og þægilegri vinnu við
fóðmnina.
„Það heyrir orðið til undantekn-
inga að sjá vanfóðmð hross í Skaga-
firði og má þakka það rúllunum,“ seg-
ir Bjami. Hann bendir jafnframt á að
með góðri fækkun og bættum vinnu-
aðferðum við uppeldi, tamningu og
markaðssetningu verði sóknarfæri
hrossaræktar góð á komandi áram.
En Bjarni er einnig forðagæslu-
maður og hefur komið til hans kasta
að taka á vanfóðranarmálum síðustu
ár og var hann spurður hvort þær
reglur sem hann starfaði eftir væra
nægjanlega afgerandi.
„Núverandi lög gefa yfrið næga
viðspymu til hægt sé að taka á vond-
um málum. Spurningin snýst um það
hvort búfjáreftirlitsmenn hafi nægi-
lega sterkt bakland hjá sínu yfirvaldi
sem er þá sveitarstjórn og lögregla ef
þarf að leita þangað. Þegar koma upp
mál þarf skilyrðislaust að hafa allan
málsferilinn skriflegan og rekjanleg-
an. Einnig þurfa menn að vera vel
meðvitandi um hvað er búið að gera
og hvað muni gerast næst í ferlinu en
umfram allt að hafa yfirvöld með
sér,“ sagði Bjami um daprasta þátt
búfjáreftirlitsins.
Að síðustu var svo formaðm’
Hrossaræktarsambands Skagfirð-
inga inntur eftir tíðindum af málefn-
um þess.
„Starfsemi samtakanna hefur verið
með nokkuð hefðbundnu sniði. Við
höfum í auknum mæli, eins og fram
hefur komið víða, leigt hesta frekar
en að kaupa. í sumar vorum við með
ágæta hesta á boðstólum. Aðsókn að
þeim var góð og fyljunarhlutfall
sömuleiðis.
Ekki er fullfrágengið hvaða hestar
verða hjá okkur næsta sumar að öðru
leyti en því að við höfum leigt Hilmi
frá Sauðárkróki. Við eram ekki í
kauphugleiðingum þessa stundina en
við yrðum þakklátir ef við fengjum að
vita af hlutum í hestum til sölu eða
hestum til leigu,“ sagði Bjarni for-
maður að lokum.