Morgunblaðið - 19.12.2000, Síða 82
82 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
Gefum gaum að viðvörunum
Hannesar Jónssonar
Frá Emil Als:
ÞAÐ var í febrúar og mars síðast-
,liðnum að í Morgunblaðinu birtust
" "fimm greinar eftir Hannes Jónsson,
fyrrverandi sendiherra, þar sem
hann tekur Islendingum vara fyrir
því að láta dáleiðast af bandalagi
þjóða á meginlandi Evrópu. Hannes
er þungaviktarmaður sökum
reynslu sinnar og vitsmuna. Hann
þekkir vel til um málefni og sögu
margra þjóða í Evrópu og hefur
starfað í sumum þeirra svo árum
skiptir. Hannesi líst ekki vel á, að
Islendingar hverfi inn í það myrkv-
iði ofstjórnar og reglugerða kval-
ræðis sem téðar þjóðir eru að slá
y. upp girðingu kringum á hluta Evr-
ópuskagans. Hinar vel unnu greinar
Hannesar Jónssonar eiga erindi til
allra læsra íslendinga, einnig þeirra
sem ekki finna fyrir minnstu freistni
að afhenda löggjafar- og dómsvald
þjóðarinnar úr landi í hendur
Frökkum og Þjóðverjum. Vilja
menn sjá húsbóndavald hins ís-
lenska samfélags í Brussel, Bonn og
París? Vonandi er að finna nægilega
marga Islendinga sem ekki kemur
til hugar að láta hótanir eða mútu-
boð frá ESB stjaka hið minnsta við
sér. Við krefjumst þess að þjóðir
Evrópu, sem og aðrar mæti til við-
skipta og samvinnu við íslendinga á
jafnréttis- og sanngirnisgrunni í
anda GATT-samþykkta (Alþjóðavið-
skiftastofnunin í Genf). Hinir,
hverra ráð er reikult, þurfa að fá í
hendur blaðaskrif Hannesar án taf-
ar. Sumir láta í veðri vaka, að ef
sjávarútvegsstefna Erópubanda-
lagsins væri Islendingum meira að
skapi væru þeir óðar stokknir til
Brussel með útfyllta umsókn. Fyrir
þá, sem hvorki hafa þörf fyrir né
löngun til að hverfa á fund ESB,
breytir það litlu hvert spýta hins
dularfulla ráðs í Brussel hallast í sjó
eða á landi. Ibúar meginlandsins
verða að kljást við söguleg vandræði
sín og syndaregistur án hjálpar ís-
lendinga. Allt tal um meint áhrif á
gangverkið í ESB er grátbroslegt.
Frakkar og Þjóðveijar semja um
málin, Bretar og ítalir fá að vera
með til málamynda, hinar þjóðirnar
verða niðursokknar við að ná áttum
um stöðu sína. Frakkar brosa í
kampinn, búið er að koma höndum á
þýska villidýrið og nú skulu menn fá
að finna fyrir hinu franska yfirlæti.
Frakkar eru ekki í neinum vafa um
eigin menningarlega og vitsmuna-
lega yfirburði hvort sem þeir líta til
Þýskalands eða annarra svæða í
margtöluðu bandalagi. Limlestar
þjóðir Evrópu eru að framselja lyk-
ilþætti úr fullveldi sínu í skiptum
fyrir frið gegn hernaði og morð-
brennum nágranna sinna.
Þetta er skiljanlegt en átakan-
legt. íslendingum er ekki svona
vandi á höndum. Þeir eru annars
staðar niðurkomnir bæði í anda og
efni. Vilji þjóðin styrkja og skýra
eigin ásýnd og „hafa einhver áhrif í
heiminum“ er versti hugsanlegi
kostur hennar að leita í átt til Evr-
ópusambandsins. Þeir sem gæla við
þá hugmynd, að við getum ein-
hverju um þokað innan þess félags,
ættu að kynna sér grein Hannesar
Jónssonar um fámennis- og klík-
uræðið í ESB. Atkvæði íslands yrði
í besta falli eit.t á móti áttatíu og sjö
(87) atkvæðum þeirra 15 ríkja sem
mynda sambandið á þessari stundu.
Sérstæður hluti þjóðarinnar er grip-
inn ofboði og heldur að við séum að
missa af hraðlest á leið í glæsta ver-
öld ábata og eindrægni. Þessum
misskilningi þarf að létta af sálum
þessa fólks, færa ætti því blaða-
greinar Hannesar Jónssonar í
skrautbandi. Astæðulaust er fyrir
Islendinga að láta teyma sig inn í
örvæntingarbandalag manna og
þjóða sem hafa hatast í þúsund ár.
Hvergi erum við jafn rækilega
minnt á „lífsins óstöðugleik“ sem á
leiksviði Evrópuharmleikjanna.
Evrópusambandið er á gelgjuskeiði
og framtíðin mistri hulin. Vilji menn
leita frétta um hið ókomna í lífi
þessa glannalega fyrirtækis á Evr-
ópuskaganum er rétt að þeir gangi
til spákonu sem starir í kristalkúlu.
EMIL ALS,
Markarflöt 8, Garðabæ.
o
OMEGA
Garðar Ólafsson
úrsmióur, Laekjartorgi
-t
Bók er best vina
Skoðið
Bókatíðindin „
Félag íslenskra
bókaútgefenda i
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Vantar þig nytt og betra
ba& fyrir jólin?
Nu er lag, því vib
bjó&um allt ab
afslátt af ðllum gerbum.
Þub munar um mlnna
J HÁTÚNI6A (i húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420
Af bókhaldi ráð-
herrans - orðum
og efndum
Tuskuræmur
o g lotning
Frá Önnu Ringsted:
EITTHVAÐ virðist samviskan
vera að naga yfirmann umferðar-
öryggismála hér á okkar litla ís-
landi. í Morgunblaðinu 16. nóv. sl.
rekur dómsmálaráðherra í grein
sinni hvert afrek sitt á fætur öðru í
umferðaröryggismálum á meðan
okkur, sem lifum í takt við þjóð-
arsálina, þykja „afrekin" sjálfsögð
mannréttindi.
Ólína Þorvarðardóttir (á nýjum
vettvangi skv. uppl. ráðherra)
bendir réttilega á og rökstyður í
grein sinni í Morgunblaðinu 9. nóv.
sl. að margar eru nefndirnar en
litlar eru efndirnar.
Rifjum upp orð dómsmálaráð-
herra á umferðarráðstefnunni
„Bætt umferðarmenning - burt
með mannfórnir“ í Borgarleikhús-
inu í sumar: „Ég og mitt ráðuneyti
ætlum okkur bæði að ná og sjá
verulegan árangur í bættri um-
ferðarmenningu. Við ætlum að
gera nýja og markvissa öryggis-
áætlun, bæði til langs og skamms
tíma. Efla rannsóknir enn frekar.
Koma upp æfingaaðstöðu fyrir
unga ökumenn. Standa fyrir kynn-
ingarátaki gagnvart ungu fólki.
Gera átak í umferðareftirliti lög-
reglunnar og efla löggæsluna til-
finnanlega. Bæta tækjakost lög-
reglunnar. Berjast gegn hraðakstri
og ölvunarakstri, og annarri
hættuhegðun í umferðinni."
Ráðherrann sagði einnig: „Ljóst
er að ekki næst árangur í umferð-
aröryggismálum ef ekki er fyrir
hendi pólitískur metnaður bæði í
sveitarstjórnum og hjá ríkinu.“ Og
einnig: „Ég skora því á alla lands-
menn að stíga nú á stokk og vinna
það heit að koma bættri umferð-
armenningu á og láta það verkefni
ganga fyrir í forgangsröðun. Hér
er um líf og dauða að tefla.“
Þrátt fyrir hin stóru orð ráð-
herrans um eflingu löggæslu og
baráttu gegn hrað- og ölvunar-
akstri eru áherslunar aðeins á
fleiri skýrslur, fleiri nefndir og
auðvitað nýjar nefndir. Umferðar-
eftirlit lögreglunnar er sett þar á
eftir!
Það er afskaplega fallegt að sjá
öll þessi fyrirheit á blaði, en þau
gera lítið gagn úti á þjóðvegunum
þar sem mannlegir harmleikir eiga
sér stað - nær daglega. Aragrúi af
nefndum, skýrslum og stórum orð-
um er ekki það sem við viljum sjá.
Við viljum sjá hlutina fram-
kvæmda, þ.e. hert umferðareftirlit
og ekki seinna en nú. Ég spyr því
enn og aftur: Hver er forgangsröð-
unin hjá háttvirtri ríkisstjórn og af
hverju slær dómsmálaráðherra
ekki í borðið og krefst þess að orð-
in í skýrslunum komist í fram-
kvæmd?
Hvað ef einn þingmaður hrasaði
í sama stiganum á hverjum degi og
slasaði sig, bryti fót eða hönd?
Hversu há yrði þingmannatalan
orðin áður en einhver rankaði við
sér?
Með kveðju og ósk um slysalaus
jól.
ANNA RINGSTED,
Þórustöðum 4, Eyjafjarðarsveit
Frá Óla Ágústssyni:
EF LITIÐ er til Bibh'unnar og orða
hennar um fæðingu frelsarans, ligg-
ur nokkuð ljóst fyrir að rót frásagn-
arinnar og umgerð eru ólík þeim
hamagangi sem nútíminn hefur í
frammi um jól til að minnast fæð-
ingar hans. Ætla má að flestir sem
leiða hugann að andlegu raungildi
jólanna séu sammála um þetta, þótt
þeir, samt sem áður, taki gjaman
þátt í dansinum af svipuðum ákafa og
aðrir.
I ryki nútímans getur mörgum
reynst erfitt að greina dýrð atburð-
anna sem urðu í útihúsi gistihússins í
Betlehem. Er það miður því aldrei
hafa eins margir einstaklingar haft
jafnbrýna þörf fyrir andlega _hug-
hreystingu og huggun og nú. í frá-
sögnum ritninganna voru fáir útvald-
ir kallaðir til atburðarins. Sagt er frá
vitringum, hálærðum vísindamönn-
um sem fylgdu stjömu einni sem vís-
aði veginn á nýjan konung. Einnig er
sagt frá fjárhirðum, æðrulausum
mönnum sem gættu hjarðar sinnar.
Þessir áttu það sameiginlegt að þeir
hlustuðu á Guð, fóm eftir orðum
hans og táknum og fundu því, í fóð-
urstalli gripahúss, gjöf hans, unga-
barn vafið inn í tuskuræmur. Það
vekur athygli að engillinn var ekki
sendur til æðstu prestanna eða öld-
unganna.
Þegar vitringarnir sáu bamið og
móður þess, féllu þeir fram og veittu
því lotningu. Proskuneo. Þeir krupu
niður, beygðu andlitið til jarðar og
skipuðu sig þannig á táknrænan hátt
undir herradóm hins nýja konungs.
Af sál og líkama. Þegar fjárhirðamii’
sáu ungbamið liggjandi í jötu í tusk-
uræmum, skildu þeir að aJlt var eins
og engillinn hafði sagt þeim. Frelsari
var fæddur. Og þeir tóku að segja frá
atburðum næturinnar þegar „dýrð
Drottins ljómaði í kringum þá“. Og
þeir vegsömuðu Guð.
Myndin sem nútímamenn hafa
gert sér til að minnast fæðingar
frelsarans er harla ólík þeirri bibl-
íulegu. Munar þar mest um hógværð,
lítillæti og einfaldleika sem víkur
fjær með ári hverju. Nú til dags fer
svo mikið fyrir glitrandi umbúðum að
mörgum reynist erfitt að greina
raunvemlegt innihald jólanna. Er
með óhTdndum hvað mörgum pallí-
ettum og miklum glimmer er hægt að
úða yfir hinar ýmsu sviðsetningar.
Og ganga einstaka fjölmiðlar lengra í
því en aðrir. Og kæfa kjarna málsins.
En Guð er allt öðru vísi. Hann iðk-
ar ekki sjónhverfingar. Ekki heldur
skrautsýningar. Atferli hans var og
er alvöruþrungið. Hann gaf mönnum
dýrmæta gjöf. Þjáðum mönnum,
körlum og konum. Gaf þeim frelsara.
Undraráðgjafa. Hjálpara. Aætlun
hans var að láta í té huggun og hug-
hreystingu og veita fullnægjandi
svör á öðru sviði en heimurinn gerir.
Svör við huglægum vanda einstak-
linga sem ganga tvístraðir um lífið í
vaxandi óþoli og sársauka. Til að raða
þeim saman að nýju. Og Guð lagði
gjöfina fram í einfoldum umbúðum
og fátæklegu umhverfi til að umbuna
þeim lítillátu sálum sem tilbúnar
voru að tilbiðja og veita honum lotn-
ingu.
Um það snúast jólin, þrátt íyrir
allt. Guði sé lof fyrir það. Gleðilega
hátíð.
ÓLIÁGÚSTSSON,
starfsmaður Gistiskýlisins
í Þingholtsstræti.
Vilt þú líta vel út?
NÝn Á
lá
Er appelsínuhúð og vökvasöfnun vandamál?
Fitness Line timboöið kynnir íþróttafatnaö fyrir
þá sem vilja laga línurnar.
hArstofan GRAND HOTEL
SIGTÚNI 38. SÍMI 588 3660
Frá Kristleifí Porsteinssyni:
STÓR hluti þjóðarinnar er undir svo-
kölluðum lögaldri og yfir 67 ára sem
nefndur er eftirlaunaaldur og þegar
með er talið fólk sem er öryrkjar af
völdum sjúkdóma, slysa eða erfða-
galla er það vafalaust fullur helming-
ur þjóðarinnar.
Þeir sem fullvinnandi eru, leggja
mikið af mörkum til að hlynna að
þessu fólki, en það er ekki til neitt sér-
stakt stjórmálaafl sem beitir sér fyrir
hagsmunum þess.Þótt þetta fólk hafi
með ævistarfi sínu byggt upp það sem
unga fólkið lifir á, þá er nú litið á það
gamla, sem gustukahð sem þó sé rétt
að veita einhverja ölmusu, en það hafi
engan rétt til að semja um kjör sín.
Þótt margt af þessu fólki sé fullt af
baráttuvilja og hafi auk þess mikla
lífsreynslu og gáfur sem það örugg-
lega vildi nýta þjóðinni til gagns eftir
getu sinni þá hafa fæstir heilsu til að
setjast á þing heilt kjörtímabil og
gæta þar hagsmuna umbjóðenda
sinna. Ég tel að þessi stóri hópur ætti
að stofna stjómmálaflokk. Til þess að
hann geti starfað af fullum krafti þarf
Nýttafl
í stjórn-
málin
hann að fá lögleidda heimild til að
ráða starfsfólk úr röðum fullvinnandi
fólks til að taka sæti á þingi með full-
um kosningarétti fyrir flokkinn. Full-
trúaráð flokksins hefði heimild til að
víkja þeim frá störfum og ráða nýja,
ef þeir störfuðu ekki í anda umbjóð-
enda sinna. Konur eru oftar en ekki
misskiptar með laun, samanborið við
karlmenn. Þær hafa um langa fortíð
haft það hlutskipti að hjúkra og hlúa
að öðmm, svo og að halda við stofn-
inum, á meðan karlamir hafa barist
hver við annan um konumar og aflað
fjölskyldum sínum fæðu, í mörgum
tilfellum, með drápum og ránum. Því
hafa þeir í gegnum tíðina fengið meiri
líkamskrafta og orðið harðskeyttari í
viðskiptum en konur. Þess vegna em
oftast boðin í þá hærri laun. Mér dett-
ur í hug að margar konur mundu
skipa sér í þennan nýja flokk, því
hann mun gangast fyrir, auk jafnra
launa á viðkarlmenn, fengju þær sér-
stakar heiðursbætur til að jafna sakir
sínar við karlmenn vegna fortíðarinn-
ar. Yngsta fólkið þarf að fá sína full-
trúa á alþingi. Til þess þarf það að fá
kosningarrétt. Foreldrar eða aðrir
lögráðendur fæm með atkvæði bama
sinna þangað til þau fá skilning og
vilja tií að kjósa sjálf, þá fengju þau
strax að kjósa. Auðvitað em bömin
hvert fyrir sig sjálfstæðir einstakling-
ar sem eiga að fá að velja sér framtíð
að eigin þörfum, með aðstoð sinna
leiðtoga og hafa áhrif á kjör sín með
hjálp sinna umbjóðenda. Auk þess er
það sanngjörn krafa foreldra að hafa
aukin áhrif á landsmálin á meðan þeir
em með böm á framfæri, í réttu hlut-
falli við fjölda bama.
Að lokum vísa ég til draga að
stefnuskrá íyrir hugsanlegan nýjan
flokk, en hún var birt í bréfi til blaðs-
ins fyrir nokkm.
KRISTLEIFUR ÞORSTEINSSON
frá Húsafelli.