Morgunblaðið - 22.12.2000, Qupperneq 1
295. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bush segir af sér
sem ríkisstjóri
Jcrúsalem. Rcuters, AP.
SHIMON Peres, fyrrverandi for-
sætisráðherra Israels og handhafi
friðarverðlauna Nóbels, verður ekki
í kjöri í forsætisráðherrakosningun-
um í ísrael 6. febrúar þar sem Mer-
etz-flokkurinn ákvað í gærkvöld að
styðja ekki framboð hans. Því verða
aðeins tveir í framboði í kosningun-
um, Ehud Barak forsætisráðherra
og Ariel Sharon, leiðtogi Likud-
flokksins.
Miðstjórn Meretz hafnaði tillögu
um að Peres yrði forsætisráð-
herraefni flokksins með 25 atkvæð-
um gegn 17. Þrír miðstjórnarmenn
sátu hjá.
Peres lýsti því yfir í fyrradag að
hann hygði á framboð í kosningunum
en til þess þurfti hann stuðning tíu
þingmanna Meretz-flokksins, sem er
hlynntur friðarviðræðum við Palest-
ínumenn.
Peres er ráðherra byggðamála í
stjórn Baraks og er sagður hafa vilj-
að bjóða sig fram gegn forsætisráð-
herranum vegna óánægju með að fá
ekki valdameira embætti. Leiðtogi
Meretz, Yossi Sarid, skoraði í gær-
kvöld á Barak og Peres að sættast og
taka höndum saman í þágu friðarvið-
ræðnanna. „Meretz krefst þess að
Barak skipi Peres formann samn-
inganefndarinnar," sagði Sarid.
Peres sagði að ákvörðun Meretz
ylli sér vonbrigðum þar sem hann
teldi litlar líkur á að Barak bæri sig-
urorð af Sharon í kosningunum.
Margú- vinstrimenn höfðu hins veg-
ar óttast að atkvæði stuðningsmanna
friðarviðræðnanna myndu skiptast á
milli Baraks og Peres ef þeir yrðu
báðir í framboði og það yrði til þess
að Sharon kæmist til valda.
fsraelar sagðir gefa eftir
í friðarviðræðunum
Bill Clinton Bandaríkjaforseti af-
henti samningamönnum Israela og
Palestínumanna drög að hugsanleg-
um friðarsamningi í gær og þeim
virtist miða í samkomulagsátt í deil-
unni um framtíð Jerúsalem, að sögn
palestínskra embættismanna.
Stjórnarerindrekar sögðu að ísr-
aelar hefðu gefið verulega eftir í deil-
unni um Jerúsalem og boðist til að
láta stærri svæði á Vesturbakkanum
af hendi en gert var ráð fyrir í fyrri
tilboðum þeirra. Israelskur embætt-
ismaður sagði þó að eftirgjöf ísraela
væri háð því að Palestínumenn
sýndu sveigjanleika, einkum í deil-
unni um hvort milljónir palestínskra
flóttamanna ættu að fá rétt til að
setjast að í ísrael.
Israelskir embættismenn sögðu
að tillögur Clintons væru fremur
óljósar en tækju tii allra helstu deilu-
málanna. Shlomo Ben-Ami, utanrík-
isráðherra ísraels, sagði að ísraelar
gætu fallist á flestar tillögur forset-
ans. „Hvað varðar yfirráðin yfir ar-
abíska hluta Jerúsalem, meðal ann-
ars helgum stöðum gyðinga og
múslima, erum við nú mjög nálægt
samkomulagi," sagði Yasser Abed
Rabbo, samningamaður Palestínu-
manna.
GEORGE W. Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, sagði af sér sem
rfkisstjóri Texas í gær og eft-
irmaður hans, repúblikaninn Rick
Perry, tók formlega við embættinu.
Bush sagði að mikiil árangur hefði
náðst í mennta-, dóms- og skatta-
málum í ríkinu á þeim sex árum
sem hann gegndi embættinu en það
væri engum einum manni að þakka
heldur góðu samstarfi repúblikana
og demókrata. „Ég er stoltur af því
góða sem við höfum áorkað hér í
sameiningu og hlakka til þess góða
sem við eigum eftir að gera saman í
þágu Bandaríkjanna."
Bush tilkynnir hér afsögn sína í
þinghúsi Texas. Með honum eru nýi
ríkisstjórinn og eiginkona hans,
Anita Perry.
■ Þykir hæfileikaríkur/31
Barak og Sharon etja kappi f kosningum í ísrael
Peres verður
ekki í framboði
Stokkað upp í dönsku rflrisstjórninni
Efasemdir um að
stjórnin styrkist
Haldið upp á fæðing-
arafmæli Stalíns
UM 500 Georgíumenn komu saman
í gær til að halda upp á 121 árs fæð-
ingarafmæli Jósefs Stalíns í
heimabæ hans, Gorí, einum af fáum
stöðum í heiminum þar sem sovéski
einræðisherrann er enn dýrkaður.
Gamlir stuðningsmenn Stah'ns
gengu með myndir af honum niður
Stalín-götu að risastórri Stalín-
styttu við safn sem kennt er við
hann f miðbæ Gorí, litlum bæ um 65
km vestan við Tbilisi, höfuðborg
Georgíu. Fyrrverandi hermenn,
sem börðust í síðari heimsstyrjöld-
inni, sungu byltingarsöngva og
fóru með ljóð um Stalfn.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKA stjórnin tók miklum breyt-
ingum í gær eftir að Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra ákvað
að flýta uppstokkun sem hann hafði
boðað á nýju ári. Fimm nýliðar setj-
ast á ráðherrastóla og fjórir fara frá,
auk þess sem íjórir ráðherrar skipta
um ráðherrastóla. Efasemdir eru um
að breytingamar styrki stjómina,
einkum óttast menn að brotthvarf
Mogens Lykketoft úr embætti fjár-
málaráðherra kunni að skaða hana.
Lykketoft fer reyndar ekki langt
því hann sest í stól utanríkisráðherra
í stað Niels Helveg Petersen sem til-
kynnti óvænt um afsögn í fyrradag.
Lykketoft hefur verið fjármálaráð-
herra í átta ár og þótt kraftmikill og
ákveðinn ráðherra sem hafi gegnt
mikilvægu hlutverki við að koma á
stöðugleika í efnahagslífinu.
Anders Fogh Rasmussen, formað-
ur Venstre, er einn þeirra sem telur
stólaskipti Lykketofts veikja stjóm-
ina, þar sem hún bætist ofan á brott-
hvarf tveggja reyndustu ráð-
herranna, Helvegs Petersens og
Hans Hækkeraps.
Pólitísk viðbrögð við uppstokkun-
inni era annars lítil, flestir flokksleið-
toganna era á því að breytingin skipti
engu máli. Eini flokkurinn sem lýst
hefur ánægju með hana er Sósíalíski
vinstriflokkurinn sem styður stjóm-
ina á þingi.
Tveir ráðherrar víkja
Við uppstokkunina misstu tveir
ráðherrar embætti sín; Sonja Mikk-
elsen heilbrigðisráðherra og Jytte
Hilden, jafnaðar-, bæjar- og húsnæð-
ismálaráðherra. Mikkelsen leyndi
ekki vonbrigðum sínum en kvaðst
myndu sætta sig við orðinn hlut. Þeg-
ar hún var spurð hvort neikvæð fjöl-
miðlaumfjöllun hefði orðið henni að
falli svaraði hún: „Blaðamenn geta
ekki rekið ráðherra. Aðeins einn
maður getur gert það; forsætisráð-
herrann."
■ Radikale/30
«/Jiian Síttui
Metsölulisti Mbl.
Ævisögur
„Lesandinn kemst ekki
njá því að hlæja upphátt‘
Kristín Ólafs/Mbl.
J/j0
JPV FORLAG
MORQUNBLAÐH) 22. DESEMBER 2000
5 6909C
0 090000