Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Vínartónleikar
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
„...greinilegt að allir
skemmta sér konunglega,
Daydreams
„Af miklu örlæti hjartans
og með stórum
músíkölskum tilþrifúm".
(Úr Mbl. 21/7 2000,
Oddur Björnsson)
P01ARi0 Nih
i’olarhmia Classfcs ehf
Fást í öllum hljómplötuverslunum
og hjá útgefanda.
polarfonia@itn.is
URVERINU
Eftirminnilegasta
jólagjöfin
í öðrum löndum
Jóiabrauð
og kökur
Jóla-
maturinn
Jólaföndur
___________________
Morgunblaðið/Sigurgeir
Síldinni skipað út í Eyjum, en hún hefur verið seld til Egyptalands.
Selja síld til Egyptalands
SEXTÁN hundruð tonnum af heil-
frystri smásfld var skipað um borð í
flutningaskip í Vestmanneyjum í
gær. Hélt skipið síðan með sfldina
áleiðis til Egyptalands, en þangað
var hún seld fyrir milligöngu Fisk-
miðlunar Norðurlands.
Petta mun vera í fyrsta sinn, sem
fiskur er sendur beint frá íslandi til
Egyptalands. Víkingur Gunnarsson,
sölustjóri hjá Fiskmiðlun Norður-
lands, segir að þessi útflutningur sé
árangur mikillar vinnu og góðrar
samvinnu við Vinnslustöðina og Is-
félagið í Eyjum. „Það má segja að
þama sé um brautryðjendastarf að
ræða.
Petta hefur aldrei verið gert áður,
en þessi smásfld hefði annars farið í
mjölvinnslu, því markaður fyrir
íyrsta smásíld hefur nær enginn ver-
ið til þessa. Þarna er því um verulega
verðmætásköpun að ræða og verðið
er viðunandi.
Því verður vonandi áframhald á
þessu ágæta samstarfi,“ segir Vík-
ingur Gunnarsson.
Stálskip munu áfrýja domi Héraðsdoms
„Ranglátur dómur“
GUÐRÚN Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stálskipa ehf., segist
munu áfrýja til Hæstaréttar dómi
Héraðsdóms Reykjaness sem
kveðinn var upp á þriðjudag en þar
var útgerðin dæmd til að greiða út-
gerðarfélaginu Otto Wathne ehf. á
Seyðisfirði um 180 milljónir króna
fyrir aflaheimildir sem féllu á sam-
nefnt skip sem Stálskip keyptu af
seyðfirsku útgerðinni árið 1994.
Otto Wathne ehf. fór fyrir Hér-
aðsdómi Reykjaness fram á að
Stálskip greiddi fyrirtækinu fyrir
aflaheimildir í úthafskarfa sem út-
hlutað var Rán HF, árið 1997. Að
ósk Stálskipa var úthlutunin byggð
á veiðireynslu áranna 1994 og 1996
en þá var skipið í eigu Stálskipa. í
stað þess að velja reynslu ársins
1995 valdi Stálskip að miða við
veiðireynslu skipsins árið 1993 sem
var árið áður en kaupsamningur-
inn var gerður.
Vorum að fá í verslun okkar falleg rúmteppi
& 2 púðabor
kr. 6.900.-
Z-brautir & gluggatjöld
■ Faxaten 14 \ 108 Reykjavtk \ Sfmi 525 8200 | Fax 525 8201\ Netfang www.zeta.isv
í mati sem gert var á verðmæti
heimildanna, auk samskonar
þorskveiðiheimilda í Barentshafi,
var áætlað að verðmæti þeirra
aflaheimilda sem Otto Wathne
taldi sig eiga rétt á næmi tæplega
192 milljónum króna. í dómnum
voru Stálskip ehf. hinsvegar dæmd
til að greiða um 180 milljónir
króna.
Guðrún telur að í dómnum hafi
ekki verið tekið tillit til atriða í
málflutningi Stálskipa. Hún muni
því áfrýja honum til Hæstaréttar.
„Ég er ósátt við þennan dóm því
mér finnst hann ranglátur. Við
keyptum skipið, þegar veiðar á út-
hafskarfa eru frjálsar, með það að
markmiði að beita skipinu einkum
til veiða í úthafinu. Þegar kvót-
anum var skipt árið 1997 var þann-
ig í raun og veru verið að skerða
heimildir okkar.
Við réðumst í umfangsmiklar og
dýrar breytingar á skipinu eftir að
við keyptum það árið 1994, settum
meðal annars í það fullkomna full-
vinnslu til að auka verðmæti
aflans. Við fluttum aflaheimildir af
Rán HF, skipi sem við áttum fyrir,
og yfir á nýja skipið. Þær afla-
heimildir dugðu hinsvegar ekki til
að halda skipinu til heilsársveiða
innan landhelginnar. Við keyptum
því bát og færðum heimildir af
honum yfir á Rán. Ef okkur verður
enn gert að borga 180 milljónir of-
an á allan annan kostnað við skipið
er það hreinlega orðið of dýrt og
ékki rekstargrundvöllur fyrir því
lengur.“
Samtals eru yfir 30 sjómenn
skráðir á Rán HF.
Ekki tekið tillit
til kostnaðar
Þegar fyrst kom til úthlutunar á
úthafskarfa árið 1997 var hlutdeild
einstakra skipa ákveðin á grund-
velli veiðireynslu þeirra miðað við
þrjú bestu af sex undangengnum
áram. Þá átti Stálskip veiðireynslu
fyrir Rán HF, áður Otto Wathne
NS, fyrir árin 1994, 1995 og 1996.
„Þegar við keyptum Otto Wathne
NS árið 1994 fóram við aðeins eina
veiðiferð áður en við réðumst í að
breyta skipinu, enda lá þá ekki fyr-
ir að veiðarnar yrðu kvótasettar.
Þess vegna var veiðireynsla okkar
það ár ekki mikil. Þá lá fyrir að að-
eins yrði úthlutað á skip en ekki
útgerðaraðila. Veiðireynsla skips-
ins árið 1993 var betri en hin árin
og þess vegna völdum við að miða
við það ár. Sjávarútvegsráðuneytið
staðfesti að okkur væri það heim-
ilt. Það er ekki tekið tillit til þessa
í dómnum.
í dómnum er auk þess ekki tekið
tillit til þess kostnaðar sem við
höfum haft af þessum veiðum. Við
höfum í gegnum árin greitt ým-
iskonar göld af veiðunum, svo sem
þróunarsjóðsgjald og veiðileyfa-
gjald. Eins er kostnaður við veið-
arnar mjög mikill. Það er langt á
þessi mið og því er olíukostnaður
hár. Auk þess fylgja þessum veið-
um mjög dýr veiðarfæri.“
Tilraunaveiðar
í upphafi
Skip Stálskipa, Ýmir HF, var
með fyrstu skipunum sem stund-
uðu veiðar á úthafskarfa á Reykja-
neshrygg. „Við hófum veiðarnar
fyrst árið 1989 og framan af var
um hálfgerðar tilraunaveiðar að
ræða, sem gáfu lítið af sér. Það
voru örfá skip sem þraukuðu á
þessum veiðum fyrstu árin. Þegar
þeim hinsvegar fór að ganga betur
fóru fleiri skip að stunda þessar
veiðar. Hefðu þessi fáu skip ekki
stundað þessar frumkvöðlaveiðar
er ég ekki viss um að veiðiheim-
ildir Islendinga á Reykjaneshrygg
væru jafn miklar og þær eru i
dag.“
Guðrún bendir einnig á að í
kaupsamningnum sem gerður var
árið 1994 hafi'ekkert komið fram
um hvernig ætti að fara með veiði-
reynslu skipsins. „Ef skipið hefði
verið selt úr landi hefðu umræddar
aflaheimildir komið til skipta til
annarra skipa sem úthlutun fengu.
Þá hefði Ýmir HF reyndar fengið
stóran hlut heimildanna því hann
var með mikla veiðireynslu,“ segir
Guðrún.