Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 49
H MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 49 MINNINGAR skyndilega að morgni 15. desember byrjar snjónum að kyngja niður. m Mjöllin hrein og tær þekur tré og runna, bíla og hús og manni fínnst að ekki mega hreyfa við neinu til að spilla ekki fegurðinni. Eg stend við gluggann minn og dáist að hand- bragði meistarans. En ég fínn ekki til neinnar gleði. Eg læt hugann reika, minningarnar hrannast upp og ég staðnæmist við Lækjarskóla í I Hafnarfirði haustið 1957. Hópur nemenda af smærri gerðinni er að ' heíja sitt barnaskólanám. í B bekk- ll inn hans Helga Jónassonar velst hópur sem átti eftir að reynast sam- heldinn og farsæll í námi. Einn af þessum bekkjarfélögum er snagg- aralegur piltur hár og grannur. Æv- ar Guðmundsson. Auk þess að vera samferða upp barnaskólann áttum við Ævar samverustundir í íþrótt- unum hjá FH og einnig á tímabili í skátastarfinu í Hafnarfirði. Þó ég j geti sagt að við Ævar hefðum hugs- r 1 anlega verið jafnokar þegar við lék- 1|| um í svarthvítu búningunum, var engin spurning að hann stóð mér miklu fremri á flestum sviðum skátastarfsins. Strax í æsku kom í ljós áhugi hans á útiveru og ferða- lögum. Eftir tveggja vetra nám í Flensborgarskóla skiljast leiðir og Ævar hefur nám í Verslunarskóla Islands og síðan í lögfræðinám í Há- skólanum. Tæpum tuttugu árum síðar liggja jj leiðir okkar saman á ný þegar Ævar ; er ráðinn innheimtulögmaður úti- bús Iðnaðarbankans á Selfossi, síð- ar íslandsbanka hf. Þá tókum við upp kynni á ný í starfi og leik. Ævar var afar farsæll í starfi sínu og sam- skipti við hann og hans fólk var ávallt til mikillar fyi'irmyndar. Hann var einkar duglegur og vinnu- samur og ávann sér traust allra sem hann hafði samskipti við. Þá var það sem ég tel svo mikilvægt í fari Imanna, skopskynið og glettnin allt- af til staðar, en um leið og alvaran tók við voru málin tekin föstum tök- um eins og hans var von og vísa. Þegar ég flytst í starfi til Reykja- víkur fjTÍr tæpum fjórum árum var ég einkar feginn að fá að hafa hann áfram sem lögfræðing, en hann gegndi einnig störfum fyrir útibú Islandsbanka við Gullinbrú. Ævar og Guðrún kona hans höfðu ! mikinn áhuga á hvers kyns ferða- lögum og fóru víða. Ef við hjónin '• ; ætluðum að ferðast erlendis á stað sem við höfðum ekki komið á áður var vaninn að hringja í Ævar og leita ráða. Oftar en ekki hafði hann upplýsingar á takteinum, en bætti gjarnan við: „Ég ætla að spyrja Guðrúnu, hún man þetta allt miklu betur. Svo á hún eflaust bæklinga sem þið getið fengið lánaða ef þið viljið.“ Ég samgladdist þeim þegar ég frétti að þau ætluðu að eyða afmæl- isdegi Ævars 24. nóv. sl. í Mexíkó og sat færis að hitta Ævar á skrif- stofunni þegar heim kæmi, fá ferða- söguna og færa honum heillaóskir. Aldrei varð úr því, og fréttirnar um mjög alvarleg veikindi skutu öllum skelk í bringu. Að morgni 15. des- ember þegar englarnir byrjuðu að sópa skýin í fyrsta sinn á þessum vetri kvisaðist sorgarfréttin út. Óréttlætið var fullkomnað. Manni var orða vant. Elsku Guðrún og börn. Við Ella sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Megi algóður Guð hugga ykkur og styrkja í sorginni. Við bankastarfsmenn kveðjum ljúfan og traustan samstarfsmann í árafjöld með þakklæti fyrir frábær- lega vel unnin störf. Guð geymi góðan dreng. Gunnlaugur Sveinsson. I Góður drengur er látinn langt um '■ i aldur fram. Það var mikið áfall fyrir okkur sem þekktum Ævar Guð- mundsson og höfðum fylgst með stuttum veikindum hans þegar sú harmafregn barst að hann væri lát- inn. Allt frá því að Ævar lauk lög- fræðiprófi stundaði hann lög- mennsku og hóf fljótt rekstur sinn- ar eigin lögmannsstofu. Kom fljótt í ljós að lögmennskan átti vel við hann og var til hans leitað frá ýms- um aðilum.og ávann hann sér fljótt 4 traust stórs hóps viðskiptamanna. Hann var vinnusamur mjög og vandvirkur í öllu sem hann lét frá sér fara þannig að eftir var tekið. Ævar var mikill vinur vina sinna og hjálpsamur og ætíð boðinn og búinn til að leggja þeim lið þegar á þurfti að halda. Hann vildi ekki láta bera mikið á sér og var ekki allra en var hreinskilinn og hafði einlæga framsetningu á skoðunum sínum og málefnum. Hann gat verið sérlega hnyttinn í tilsvörum og stundum var stutt hjá honum í stríðnina en hann hafði einnig gaman af að gera óspart grín að sjálfum sér. Ævar gerði sér grein fyrir að kyrrsetuvinna krafðist hreyfingar og útivistar. Hann stundaði sund nær daglega og langar gönguferðir þeirra hjóna um helgar áttu einnig að vinna gegn kyrrsetunni. Kunningsskapur sem tókst með okkur Ævari á námsárunum varð síðan að vinskap okkar í milli þegar við hófum að starfa í sama húsnæði í Armúlanum. Fyrir utan umræður sem við áttum reglulega um dagleg verkefni okkar þar sem við miðl- uðum hvor öðrum af reynslu okkar þá fórum við í fjölda ferða saman með konum okkar bæði innanlands og utan. Það var einmitt á ferðalögum sem Ævar taldi sig geta notið hvíld- ar frá daglegu amstri og naut þeirra vel. Skipti það hann þá ekki máli hvort haldið væri til fjalla á sumri eða vetri eða dvalið í borgum eða á ströndum erlendis. Er hægt að full- yrða að vart er hægt að hugsa sér betri ferðafélaga en þau Ævar og Guðrúnu. Fráfall Ævars Guðmundssonar langt um aldur fram er mikið áfall. Ég bið algóðan guð að styrkja Guð- rúnu eiginkonu hans og fjölskyldu. Sveinn Sveinsson. Það kom ekki á óvart að Ævar skyldi halda upp á fímmtugsafmæl- ið sitt erlendis. Hann var ekki gef- inn fyrir umstang og það að halda stórveislu hér heima var ekki að hans skapi. Aftur á móti kom það flatt upp á mig þegar ég frétti strax eftir heimkomu þeirra hjóna að hann væri alvarlega veikur. Ég trúði því að hann myndi jafna sig og komast í jólahlaðborðið með okkur félögunum eins og venja var en það fór á annan veg. Ævari kynntist ég í lagadeild HÍ og vakti hann strax sérstakan áhuga minn. Hann var óvenjulegur, bráðskýr _og vel heima í flestum hlutum. Árið 1973 fór ég ásamt Guðmundi Steinari Alfreðssyni, nú doktor, til stuttrar námsdvalar í Ohio í Bandaríkjunum. A heimleið- inni dvöldum við á heimili foreldra Ævars í Washington, Guðmundar í. Guðmundssonar og Rósu konu hans. Á heimilinu var þá sonur þeirra Örn. Okkur var tekið með þvílíkri gestristni og hlýhug að maður hafði ekki kynnst öðru eins. Urðu þessi kynni mín af foreldrum Ævars og bróður hans ennfrekar til þess að vekja áhuga minn á honum. Eftir að námi lauk í lagadeildinni urðu samskipti okkar meiri er Æv- ar var við störf á lögmannsstofu Þorfinns Egilssonar á Vesturgöt- unni. Þótti mér gott að leita til Æv- ars með hin ýmsu álitaefni sem upp komu. Hann hafði alltaf tíma til þess að ráðleggja mér og aðstoða og mat ég það mikils. Þegar hann afréð að stofna sína eigin lögmannsstofu var ég svo hepjpinn að hann féllst á að koma inn í Ármúla 21 þar sem ég rak fasteignasölu. Vorum við ná- grannar og sambýlingar um margra ára skeið. Var mjög gott samband á milli stofanna og voru t.d. haldnar sameiginlegar árshátíðir og reynd- ar eftir að hann flutti skrifstofuna upp í Síðumúla. Hef ég ævinlega átt hauk í horni þar sem Ævar var. Hann hefur aðstoðað mig og ráðlagt hvenær sem ég hef leitað eftir. Nokkurt samband var milli fjöl- skyldnanna og voru farnar nokkrar eftirminnilegar ferðir, innanlands og erlendis. Minnist maður þessara samverustunda með mikilli ánægju. Það var orðinn árlegur viðburður að nokkrir gamlir félagar hittust í jóla- hlaðborði og í þorramat. Einnig kom það oft fyrir að hist var hjá Ævari í vikulok, drukkinn einn bjór og spjallað um líðandi stund.- Þess á maður eftir að sakna. Ævar var mjög samviskusamur maður og stundum virtist hann vera of harður við sjálfan sig. Hann lagði metnað sinn í að sinna vinnu sinni óaðfinnanlega. Oft vissi ég af því að Ævar vann sleitulaust kvöld og helgar ef hann átti að fara í erfiðan málflutning. I fjármálum var hann vandaður og svo nákvæmur að ekki var farið af skrifstofunni fyrr en bú- ið var að færa bókhald dagsins og ef greiðsla barst frá viðskiptamanni brást það ekki að henni yrði skilað næsta dag. Tel ég að þessi vinnu- brögð séu einstök og mættu vera öðrum til eftirbreytni. Ævar sagði einu sinni við mig: „Dan, það hafa margir lögmenn farið flatt á því að gera ekki strax skil á innheimtufé.“ í einkalífinu var Ævar lánsamur. Jafnan var talað um Ævar og hans góðu konu Guðrúnu í sömu setning- unni. Svo náin voru þau. Ég minnist góðs og vandaðs manns og tel mig lánsaman að hafa átt hann að vini. Ég sendi fjölskyldu hans mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Dan Valgarð S. Wiium. Öll eigum við systkinin okkur góðar minningar frá uppvaxtarár- unum. Meðal þeirra eru margar sem tengjast einum af bræðrum hans pabba, strák sem við systkinin vorum svo lánsöm að hafa nálægt okkur í uppvextinum. Þessi strákur var Ævar frændi, áratugnum eldri en við og rúmlega það. Aldursmun- urinn virtist reyndar meiri í fyrstu, hann strákur í Verzló, við, litla frændfólkið á heimilinu. Síðar kom lagadeildin, frændi farinn að búa með Guðrúnu og við systkinin eign- umst lítil frændsystkini. Ævar var í huga okkar eins og klettur, traustur og áreiðanlegur, ávallt til staðar fyrir okkur, reiðubúinn að aðstoða og veita ráð- leggingar. Hann átti auðvelt með að gi’eina aðalatriðin frá aukaatriðun- um og gat oftar en ekki sagt það sem segja þurfti í einni hnitmiðaðri setningu. Stutt var í galsann og léttu lundina og á slíkum stundum voru hlutirnir teknir mátulega al- varlega. Allt í einu tæmist tímaglasið, tómið myndast, engin svör. Eftir sitja minningar um góðan strák, frænda sem okkur þótti vænt um. Hugur okkar er hjá Guðrúnu og krökkunum. Hafðu þökk fyrir allt, kæri frændi. Ingólfur, Rósa og Anna. Mig langar að skrifa nokkur orð um góðan vin og vinnuveitanda. Mín fyrstu kynni af Ævari voru haustið 1991 þegar ég fékk starf sem ritari á lögmannsstofunni hans. Sú feimni og óöryggi sem oft fylgir nýju starfi hvarf fljótt, því Ævar með sínum húmor og glettni kom mér, sem og öðrum í skilning um að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af því sem ekkert er og einbeita sér að því að vera til og njóta þess sem að lífið býður okkur. Þetta lýsir Ævari líklega best, glaður og opin kom hann til móts við þá sem á vegi hans urðu. Þessir eiginleikar hans áttu mjög vel við mig og áttum við oft góðar stundir saman þar sem glens og grín var yf- irleitt í fyrirrúmi. Ævar naut sam- skipta við aðra og hafði gaman af því að fara með okkur úr vinnunni út að borða og voru það reglulegir viðburðir þar sem hann sýndi það og sannaði hversu annt honum var í raun um okkur samstarfsmenn sína. Ég hitti Ævar síðast um paskana þegar ég var á ferð heima á Islandi, þá var tekið á móti mér með kostum og kynjum eins og alltaf þegar ég leit við á stofunni. Við sátum lengi og spjölluðum þó hann ætti anna- saman dag. Ævar og Guðrún kona hans hafa í gegnum tíðina verið mér sem önnur fjölskylda, því þegar ég byrja að vinna á stofunni hjá þeim er ég ný- flutt til höfuðborgarinnar. Þau veittu mér ómetanlegan stuðning með að aðlagast nýjum aðstæðum og því að vera ein og án fjölskyldu minnar. Það hefur síðan ekki minnkað virðingu mína og hlýhug í þeirra garð, að þau hafa haldið sambandi við mig eftir að ég hætti störfum á lögmannsstofunni fyrir einu og hálfu ári síðan og fluttist til Danmerkur. Elsku Guðrún og fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Kæri Ævar mig langar í lokin til að kveðja þig með þessu ljóði. Kallið er komið komin er nú stundin, viðskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margt er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Anna Sigrún Ólafsdóttir. Síðasta föstudag fengum við þá harmafregn að Ævar Guðmundsson lögmaður væri látinn langt fyrir aldur fram. Sorgin er djúp hjá okk- ur öllum við fráfall hans. I huga okkar, sem áttum samfylgd með honum, sitja eftir minningar um góðan dreng, samviskusaman og vandaðan. Kunningsskapur okkar hófst fyr- ir allmörgum árum er hann gerðist lögmaður Brimborgar. Hann var ekki allra en við vorum lánsöm sem áttum þess kost að eiga samskipti við hann. Hann reyndist ekki bara stjórnendum Brimborgar vel held- ur einnig mörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Hann ávann sér traust og virðingu okkar og urðu þau bönd traustari með hverju árinu sem leið og héldust allar göt- ur síðan. Okkur þótti einstaklega gott að leita til hans. Hann var ávallt úrræðagóður, fljótur að skilja hismið frá kjarnanum og virtist hafa einstakt lag á því að finna allt- af bestu lausnirnar. Það voru t.d. ekki ófá skipti sem hann leysti fyrir okkur margvísleg vandamál með einu símtali. Hann vann alla tíð af samviskusemi og af miklum heilind- um fyrir fyrirtækið og var að okkar mati stétt sinni til sóma. Ævar var kvæntur Guðrúnu Jó- hannesdóttur og voru þau mjög samheldin hjón. Þau hafa verið ná- grannar okkar til margra ára í Sel- áshverfi og var ekki ósjaldan sem við rákumst á þau á leið í göngutúr í Elliðaárdalnum, enda mikið útivist- arfólk. Guðrún og Ævar voru dug- leg að ferðast og sérstaklega síð- ustu ár til fjarlægra landa. Kona hans og börn eiga nú um sárt að binda. Við sendum þeim og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja þau á þessari sorgarstundu. Jóhann Jóhannsson, Margrét Jóhannsdóttir, Egill Jóhannsson. Það er með djúpri sorg og sárum söknuði sem ég kveð Ævar Guð- mundsson, þann góða vin og trygga samstarfsfélaga. Minningar um langar stundir yfir flóknum og oft erfiðum málum renna í gegn um hugann. Stundir í nærveru Ævars liðu samt svo hratt. Ævar var góður lögmaður, gædd- ur einstökum skipulagshæfileikum og skarpri greind. Hann var rólynd- ur, heilsteyptur og ekki var hægt annað en að líða vel í návist hans. í sínu starfi var hann einstaklega vandvirkur og undirbjó sig vel fyrir öll þau mál sem honum voru falin. En þó eru það minningarnar um vin minn Ævar sem rista dýpst. Stundirnar sem við sátum saman á skrifstofunni hans og ræddum mál sem voru okkur hugleikin. Móttök- urnar á skrifstofu Ævars voru ávallt hlýlegar, ekki síst fyrir nær- veru Guðrúnar eiginkonu hans. Engum sem til þeirra þekkti duldist að þar fóru samrýmd hjón sem báru gagnkvæma ást og virðingu hvoriT til annars. Ekki er meira en mánuður síðan fundum okkar Ævars bar síðast saman. Umræðuefnið þá var meðal annars fyrirhuguð ferð þeirra hjóna í tilefni fimmtíu ára afmælis hans. Nú er hann farinn í aðra ferð, ennþá lengri og á óþekktar slóðir og ljóst er að samfundir okkar verða ekki fleiri hér í heimi, hvað svo sem síðar verður. Um leið og ég þakka vini mínum Ævari Guðmundssyni sam- fylgdina og góð störf, sendi ég fjöl- skyldu hans mína dýpstu hluttekn- ingu. Blessuð sé minning góðs’ vinar. Kolbeinn Kristinsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Ur Hávamálum.) Þegar okkur verður orða vant grípum við oft til tilvitnana í ljóð eða spakmæli. Ævar og Guðrún fóru til Mexíkó í frí og til þess að halda upp á fimmtugsafmæli Æv- ars. Tveimur vikum síðar komu þau * aftur heim og Ævar þá fárveikur. Viku síðar er Ævar fallinn fyrir sjaldgæfum óvígum sjúkdómi sem lyf og nútíma þekking mega sín einskis gegn. Hér dugði hvorki lík- amsrækt né heilsusamlegt líferni. Ævar var afkastamikill og dug- legur lögfræðingur en þrátt fyrir langan vinnudag gætti hann þess alltaf að vera í góðu líkamlegu formi. Hjá honum fór saman hreysti og glæsileiki. Hvernig má það vera og hvaða al- , mætti stýrir því að ungir og hraust- ir menn í blóma lífsins eru hrifsaðir burt frá eiginkonu, börnum og vin- um? Sú hlýtur að vera skýringin að: „Þeir deyja ungir sem guðirnir elska.“ Minningarnar sækja á. Ærsla- fullir dagar grallarastráka á Brekkugötu 13. Erfiðar stundir. Heimsóknir hjá frændfólki á Sól- vallagötu og hressing í lok göngu- túra í Malarási. Allt eru þetta verð- mætar minningar sem aldrei gleymast. Blessuð sé minning Æv- ars. Elsku Guðrún, Eva Margrét, Jonni og Ingó. Megi Guð blessa ykkur öll og leiða ykkur í þessari raun. Innilegar samúðarkveðjur senda Svana föðursystir, Ella og stelpurn- ar. Davfð. Leiðir okkar Ævars Guðmunds- sonar lögmanns, sem í dag er kvaddur hinstu kveðju frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík, lágu fyrst saman á starfsárum okkar í Frí- höfninni á Keflavíkurflugvelli, þar sem við unnum nokkur sumur við afgreiðslustörf. Síðar áttum við samleið í gegnum lagadeild Háskóla íslands á námsárum okkar, hann tveimur árum á undan mér í námi. Tókst á þessum árum með okkur traust og einlæg vinátta, sem varað hefur allt til þessa dags, þótt sam- gangurinn hafi verið mismikill frá einum tíma til annars eins og oft vill verða, þegar hver heldur í sína átt- ina að námi loknu. Að loknu embættisprófi frá laga- deild Háskóla íslands vorið 1976 réðst Ævar til starfa sem fulltrúi á lögmannsstofu Þorfinns Egilssonar héraðsdómslögmanns en frá árinu 1978 rak hann eigin lögfræðistofu í Reykjavík allt til hinstu stundar. Lögmannsstarfið átti vel við Ævar* enda var hann bæði vandvirkur,' hugmyndaríkur og úrræðagóður. Hann reyndist í alla staði farsæll í störfum sínum sem lögmaður og átti stóran og traustan hóp við- skiptavina. Hann var jafnan trúr þeim málstað, sem hann tók að sér, hvort heldur sem var í sókn eða vörn, var með afbrigðum rökvís og S.JÁNÆSTU SÍDU ►
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.