Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
Barnanna vegna -
engin drykkja á jólum
Furðuleg
verðlauna-
veiting
Frá Sigurgeiri Þorvladssyni:
ÉG UNDIRRITAÐUR kemst ekki
hjá því að vera algjörlega sammála
greinarhöfundinum Guðmundi Guð-
mundarsyni, fyn-v. frkvstj., sem rit-
aði grein um ofangreint efni í blaðinu
í dag og las ég hana með athygli,
enda reyni ég sjálfur að vanda ís-
lenskt málfar eftir bestu getu. Per-
sónulega finnst mér miður að Z-an
skuli hafa verið felld úr íslensku let-
urmáli og svo er annað, sem oft vek-
ur hjá mér talsverða gremju, en það
er orðið mjög tamt hjá Islendingum,
að apa eftir Dönum og segja: „Þetta
eða hitt gerðisþ fyrir nokkrum vikum
(síðan)“ eða „Ég var hér eða þar fyr-
ir mörgum árum (síðan)“. Meira að
segja forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, hefur oft í fjöl-
miðlum orðið uppvís að því að taka
þannig til orða og fínnst mér það
miður, því auðvitað á hann að vera
öðrum til fyrirmyndar í íslensku
málfari. Til hvers er verið að bæta
þessu orði; síðan við í slíkum tilvís-
unum? Það skilst fullkomlega, þótt
fólk segi aðeins: „Ég var þar eða hér
fyrir nokkrum vikum eða árum“, eða
„fyrir nokkrum dögum var ég austur
á landi“, eða „fyrir tveim dögum
skrapp ég til Reykjavíkur", svo
dæmi séu tekin. Orðið síðan á fullan
rétt á sér í málinu, en á öðrum vett-
vangi. T.d.: síðan ég var ungur mað-
ur, hefur eitt og annað gerst í ís-
lensku þjóðlífi, bæði gott og slæmt.
Ég ætla ekki að vera með neinar
vangaveltur út af því, hvers vegna
Megas hlaut umrædd verðlaun, hann
hefur eflaust átt þau skilið, en þá fyr-
ir allt annað en íslenskt málfar. Get-
ur verið að það tengist því eitthvað,
að hann og menntamálaráðherra
voru skólabræður í æsku? Guð forði
mér frá því, að vera með einhverjar
getgátur, sem eiga sér enga stoð í
raunveruleikanum. Ég vil með engu
móti stofna til illdeilna, því í eðli
mínu er ég friðelskandi maður.
Umræddur Guðmundur Guð-
mundsson hefur oft á umliðnum ár-
um ritað athyglisverðar greinar í
dagblöðin, þó aðallega í Morgunblað-
ið og venjulega les ég skrif hans með
áhuga, enda maðurinn vel ritfær og
virðist hafa yndi af vel ortum vísum,
ljóðum og kvæðum. Hann virðist
vera mótfallinn því, að fólk raði orð-
um saman af handahófi, með smá bili
á milli lína og kalli það svo ljóð. Hjá
honum virðist ekkert annað koma til
greina, en að Ijóð séu uppbyggð með
stuðlum og höfuðstöfum og helst
rími, telur þessa nýbylgju í ljóðagerð
vera út í hött og að enginn geti kallað
sig raunverulegt skáld, nema geta
ort með þeim hætti, eins og tíðkast
hefur hér á landi um aldaraðir.
E.t.v. á hann einhvern rétt á verð-
launum, í einhverri mynd, fyrir
framlag sitt til íslenskrar tungu?
SIGURGEIR ÞORVALDSSON,
Mávabraut 8c, Reykjanesbæ.
G U C C I
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, sími 553 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
Frá Brynjólfí V. Vilhjálmssyni:
VERÐUR Bakkus í hásæti á þín-
um jólum? Þannig er yfirskriftin á
grein Arna Helgasonar í Morg-
unblaðinu 15. desember síðastlið-
inn. Það er ekki víst að í öllum
jólaönnunum hafí margir séð þessa
grein, en hún er þó svo mikilvæg
að hún á erindi til allra lands-
manna.
Mig langar til að taka undir með
Arna í Hólminum og vekja athygli
á þeim boðskap sem birtist í grein-
inni. Hann minnir á að þótt ver-
aldleg velferð sé mikilvæg og hafi
verið mikil á árinu sem er að líða
hafi verið höggvin stór og alvarleg
skörð í okkar andlegu velsæld.
Sökudólgurinn er áfengið og Arni
spyr hve mörg líf það hafi lagt í
rúst að undanförnu og hve mörg-
um hefur það valdið óborganlegum
sárindum. Allt er þetta satt og rétt
og mig langar um leið og ég tek
undir með honum að vekja sér-
staklega athygli á því hver eru oft-
ast nær saklaus fórnarlömb
drykkjunnar.
Ofneysla og misnotkun áfengis
bitnar fyrst og fremst á börnum
og fjölskyldum þeirra. Alltof
margir Islendingar þekkja það af
eigin raun hversu þungbær Bakk-
us er í skauti á mörgum heimilum
landsmanna.
Ég er þakklátur starfi þeirra
manna sem hafa síðustu áratugi
þorað að róa gegn straumnum í
áfengismálum, menn eins og Ai'ni,
Helgi Seljan og ungmennafélags-
kempan Halldór á Kirkjubóli sem
nýlega er látinn.
Því miður á málflutningur þeirra
ennþá erindi til okkar og það veitti
ekki af því að þeir fengju fleiri til
liðs við sig að andæfa gegn þeirri
bölvun sem áfengið er.
Einmitt nú þegar jólin nálgast
leyfi ég mér að taka undir með
þeimjíslendingar gefið gaum að
börnunum, hafið ekki áfengi um
hönd um jólin. Auðvitað ætlar sá
sem misbrúkar áfengi ekki að
valda sínum nánustu óhamingju,
hann ræður ekki við sig. Þess
vegna er það eitt ráð sem dugar;
að láta áfengið vera. Það á hvorki
að eiga hásæti né annan sess í fjöl-
skyldulífi okkar. Sýnum hug okkar
til barnanna í verki með því að út-
hýsa áfengi af íslenskum heimil-
um.
BRYNJÓLFUR V.
VILHJÁLMSSON
fv. bankastarfsmaður,
Austurbrún 2, Reykjavík.
MONT°
BLANC
híeira en 100 gerðir af
Montblanc skriffærum:
Meisterstúck,
Noblesse, Doué,
Solitaire, Generation
Bohéme, W.A. Mosart,
Ramses II.
THE ART 0 F WRITING
Skriffari • Leðurvörur ■ Skartgripir
FJALLIÐ HVÍTA • Miðhruni 22b • 210 Garðabar - Simi 565 4444
Montblanc Meisterstúck skriffœri fást hjá:
Bókabúðin við Hlemm, Penninn Hallarmúla, Penninn Austurstrœti.
Aldamót ?
Teg. 3695
Stærðir: 36-41
Litur: Svartur, palliettur
Verð kr. 6.900
Teg. 3691
Stærðir: 36-41
Litir: Svart snákaleður og
bleikt snákaleður
Verð kr. 6.900
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 • SIMI 554 1754
Þjónusta í 35 ár
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 71
/
íg fqiupi
aídrei
áramó tafqóCirml
Fataleiga Garðabæjar,
sími 565 6680.
Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga frá kl. 10 til 14.
Sigrún Jónsdóttir
kirkjulistakona
áritar bók sína
„Engin venjuleg
kona" í verslun
okkar í dag frá
kl. 16.00 til 18.00.
Jafnframt verður
bókin á sérstöku
tilboðsverði.
lArusar blöndal
Skólavörðustíg 2, sími 552 5540