Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 51 MINNINGAR lyndiseinkunn sem allir þrá að gera að sinni. Kjartan Gíslason var einn þeirra manna. Kjartan var borinn og barnfæddur Reykvíkingur. Fæddist við Vesturgötuna á lóðun- um sem í upphafi tilheyrðu Hlíð- arhúsabæjunum. A uppvaxtarárum Kjartans í vesturbænum beindist hugur hans fljótt að íþróttum einkum knatt- spyrnu og kom þá ekki annað til greina en gerast KR-ingur og lék hann lengi knattspyrnu með því félagi. Þessi áhugi hans á fótbolt- anum entist honum til æviloka og stytti honum stundir í ellinni og hann hélt alla tíð tryggð við sitt gamla félag. Kjartan hóf að læra málaraiðn hjá Óskari Jóhannssyni 1931 og lauk námstímanum og Iðn- skólaprófí 1935. Að því loknu hélt hann til frekara náms í Kaup- mannahöfn í skóla danska Tækni- félagsins Det Tekniske Selskabs Skole og lauk þar sveinsprófi. Aður en hann hélt í þessa námsferð hafði hann gerst félagi í Málarasveina- félagi Reykjavíkur og gerðist mjög virkur félagi þar eftir að hann kom heim aftur og gengdi mörgum trún- aðarstörfum fyrir félagið, fyrst að- stoðargjaldkeri og síðar ritari og átti auk þess sæti í stjórn Sveina- sambands byggingarmanna 1939 og 1940 og sat á þingum þess. Kjartan öðlaðist meistararéttindi í iðn sinni 1941 og gerðist þá félagi í Málarameistarafélagi Reykjavíkur. Þar var hann virkur félagi svo lengi sem kraftar og heilsa leyfðu. Kjart- an var fyrst kjörinn ritari Málara- meistarafélagsins 1958 og endur- kjörinn í það starf til 1964. Árið 1965 var hann kjörinn varaformað- ur og formaður félagsins 1966 til 1968. Á þessum árum átti hann jafnan sæti í samninganefndum og var fulltrúi félagsins á þingum Nor- rænna málarameistara, NMO. Kjartan átti um áraraðir sæti í prófnefnd málara og gegndi þar for- mannsstörfum margsinnis. Fyrir öll þessi margbreytilegu störf var hann kjörinn heiðursfélagi Málarameist- arafélagsins. Félagsmálaáhugi Kjartans ein- skorðaðist ekki einungis við íþrótta- félagið og stéttarfélagið. Hann hafði vakandi áhuga á þjóðmálum og framfaramálum í borginni sinni. Hann átti um árabil sæti í sókn- arnefnd Langholtssafnaðar og var í byggingarnefnd Langholtskirkju. Kjartan gat sér gott orð hjá öll- um sem hann átti viðskipti við og trausts þeirra sem með og hjá hon- um störfuðu. Hann var svo eftir var tekið samviskusamur og vandvirkur málari, hafði næma tilfinningu fyrir vandaðri vinnu og naut þess að skila góðu verki. Það er liðinn langur tími síðan við Ásta kynntumst fyrst þeim heið- urshjónum Kjartani Gíslasyni og konu hans Sigríði Pálsdóttur sem leiddi til vináttu sem aldrei hefir borið skugga á. Kjartan og Sigríður voru einstak- lega samhent og elskuleg hjón sem gott var að eiga að vinum. Þau eignuðust tvær mannvænleg- ar dætur sem ekki þarf að efast um að verði móður sinni stoð og stytta við þann mikla missi sem þær hafa orðið fyrir. Við Ásta sendum Sigríði, dætrum hennar og öðru skylduliði innilegar samúðarkveðjur. Krisfján Guðlaugsson. Formáli minning- argreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. + Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður ömmu, langömmu og langalangömmu, LAUFEYJAR AÐALHEIÐAR STEFÁNSDÓTTUR (LULLU), elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Vífilsgötu 18, Reykjavík. Guðný Kristín Garðarsdóttir, Konstantín Hauksson, Rafn Benediktsson, Hulda Hjaltadóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð, virðingu og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, bróður, og föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ESRA SERAJA PÉTURSSONAR læknis og sálkönnuðar. Edda Valborg Scheving, Pétur Kjartan Esrason, Einar Haraldur Esrason, Sigurður Ragnar Esrason, Karl Torfi Esrason, Jón Tómas Esrason, Finnbogi Þór Esrason, Vigdís Esradóttir, Esra Jóhannes Esrason, Andrés Jón Esrason, barnabörn og María Anna Pétursdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Kristín Árnadóttir, Cheryl Ann Tilley, Helga Magnúsdóttir, Olga Morales, Hulda Sif Ásgeirsdóttir, Einar Unnsteinsson, Kristín Lilja Kjartansdóttir, barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGFRÍÐAR EINARSDÓTTUR frá Fáskrúðsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun. Erna Kristjánsdóttir, Hrefna Kristjánsdóttir, Kjartan Sveinsson, Sigfríð Þórisdóttir, Álfheiður Kjartansdóttir, Arndís Kjartansdóttir, John Kristján Whitehill, Lee Eugene Whitehill og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU SIGURVEIGAR EINARSDÓTTUR, Árskógum 6, Reykjavík. Helgi Hafliðason, Margrét Erlendsdóttir, Einar Hafliðason, Sigrún M. Magnúsdóttir, Sigurður Hafliðason, Kristrún Halldórsdóttir, Ragnar Hafliðason, Hansína Ólafsdóttir, Hafliði Hafliðason, Edda J. Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LÁRU HALLDÓRSDÓTTUR frá Vindheimi, Neskaupstað. Sigurbjörg Bjarnadóttir, Hjörtur Árnason, Birna Bjarnadóttir, Hjálmar Ólafsson, Guðmundur Bjarnason, Klara ivarsdóttir, ömmu- og langömmubörn. + Systir okkar og mágkona, MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR, Laugavegi 159a, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 20. desember. Jónína Kjartansdóttir, Þorleifur Gunnarsson, Viiborg Þóroddsdóttir, Sóley Oddsdóttir. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát eiginmanns míns, GUÐBRANDAR GUNNARS GUÐBRANDSSONAR, Búðargerði 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans Fossvogi fyrir góða umönnun og hlýhug. Guðbjörg Jóhannsdóttir, börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra. + Við sendum öllum þakkir sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall mannsins míns, föður okkar og afa, JÓNS ÁGÚSTS GUÐBJÖRNSSONAR rafvirkjameistara, Grandavegi 47. Gleðileg jól. Anna Björgúlfsdóttir, börn og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, REGÍNU BENEDIKTU THORODDSEN, Hátröð 9, Kópavogi. Smári Karlsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns og bróður okkar, KRISTINS GUÐSTEINSSONAR garðyrkjumanns, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Hrísateigi 6. Elísabet Magnúsdóttir og systkini hins látna. + Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og sonar, GUÐMUNDAR PÁLS PÉTURSSONAR frá Núpi, Fljótshlíð. Hrund Logadóttir, Logi Guðmundsson, Oddur Pétur Guðmundsson, Dögg Guðmundsdóttir, Anna Guðjónsdóttir. Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð eftir hádegi í dag, föstudaginn 22. desember, vegna jarðarfarar ÆVARS GUÐMUNDSSONAR, lögmanns. G/Á/J lögfræðistofa, Suðurlandsbraut 30, 5. hæð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.