Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 78
MORGUNBLAÐIÐ
78 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
Komdíu
pökkumm
öruggiega
ttl skilal
Jólatilboð
á smápökkum
0-20 kg
Aðeins 350 kr. oakkinn
hvert a land sem er!
Suöurnes
Reykjanesbœr
Garöur, Sandgeröi
Grindavík, Vogar
Vesturland tii 14:00
Borgarnes, Borgarfj.
Snœfellssnes tii 14:00
Grundafjöröur
Ólafsvík
Hellisandur, Rif
Stykkishólmur
Vestfirðir
ísafjaröarbœr
Bolungarvík, Súöav.
Suöureyri, Flateyri
Þingeyri
Norðurland Vestra
Hvammstangi
Sauöárkr., Varmahl.
Siglufjörður, Hofsós
Norðurland Eystra
Akureyri
Austurland
Egilsstaðir
Seyðisfj., Reyöarfj.
Eskifj., Fáskrúðsfj.
Stöövarfj., Breiödlsv.
Neskaupstaöur
Suðurland tii 9:45
Vestmanneyjar
Þorlákshöfn, Eyrarb.
Hverageröi, Selfoss
Hella, Hvoisvöll
OPIÐ I DAG
FÖSTUDAG FRÁ
KL. 8.00 TIL 16.00
-
FLUTNINGAR
Héöinsgötu 2
105 Reykjavík
s: 581 3030
ww.af.is
FÓLK í FRÉTTUM
Hljómsveitin Buttercup og geisladiskurinn buttercup.is
Morgunblaði/Þorkell
Buttercup, stund á milli stríða, (f.v.) Valur, íris og Davíð
Mamma popp og
sóleyj arstrákarnir
Miðað við allar þær
skyldur sem meðlimir
Buttercup þurfa að upp-
fylla er ekki nema von
að sveitin syngi um
endalausar nætur.
Birgir Orn Steinarsson
komst að því þegar hann
spjallaði við þrjá með-
limi sveitarinnar.
HLJÓMSVEITIN Buttercup er ein
þeirra hljómsveita sem hefur hlotið
náð fyrir augum Arnars Eggerts
Thoroddsens, tónlistargagnrýnanda
Morgunblaðsins. Að hans mati
„bjargar Buttercup andliti íslenskra
poppsveita" þetta árið. Pað kom
fram í plötudómi hans um buttercup-
.is er birtist í blaðinu 3. desember
síðastliðinn.
Enginn ræður
„Þetta eru búin að vera þau bestu
viðbrögð sem við höfum fengið,“ seg-
ir Valur Heiðar Sævarsson, söngvari
hljómsveitarinnar. „Við höfum líka
gert meira í því nú en áður að kynna
plötuna. Lagt meiri vinnu í þetta.
Þetta er náttúrlega sú þróun sem
hefur orðið á bandinu og nú eru fleiri
farnir að leggja eyrun við. Þegar við
byrjuðum komu saman fjórir ólíkir
einstaklingar til þess að gera tónlist
og ég held að við séum bara búin að
kynnast mun betur núna. Búin að
komast að því hver er með hvaða
tónlistarsmekk."
Inn í plötuumslagi nýju plötunar
er hvergi tekið fram hver semur lög
og texta. Blaðamaður spurði því
meðlimina af mikilli forvitni hvernig
lögin eru unnin.
„Það koma allir með sína búta,“
segir Valur. „Allt frá því að vera
nokkrir hljómar upp í hálfkláruð lög.
Lögin verða síðan alltaf þannig til að
við prófum okkur áfram með þessar
hugmyndir. Allir fá sitt atkvæði, það
er enginn einn sem fær að ráða.“
fris myndar svigrúm
íris Kristinsdóttir söngkona var
upphaflega í hljómsveitinni Irafár en
náði athygli þjóðarinnar þegar hún
sat við hlið Stefáns Hilmarssonar og
söng með honum lagið „Orginal" á
órafmögnuðum tónleikum Sálarinn-
ar í Loftkastalanum hinn 12. ágúst
1999. Það var því mikill fengur fyrir
sveitina að „grípa gæsina glóðvolga",
ef svo má að orði komast.
„Þetta hefur gefið okkur mikið
meira svigrúm við lagasmíðar," út-
skýrir Davíð Hlinason gítarleikari.
„Lög sem kannski eru í öðrum tón-
tegundum en Valur getur sungið.
Rödd írisar er náttúrlega allt öðru-
vísi en hans. Það gefur voðalega
skemmtilega breidd. Lög lifna oft við
það að hækka þau upp í tóntegund-
um. Þannig opnast kannski lag sem
er búið að vera steindautt frá því að
það var samið.“
„Já, lagið „Hvenær" er gott dæmi
um það,“ bendir söngkonan á.
„Það var eiginlega bara lélegt al-
veg fram að því að við ákváðum að
prufa þessa tvíröddun," segir Davíð
ófeiminn.
...og svo er þetta fjölskyldufólk
Það er enginn hægðarleikur að ná
í skottið á Buttercup þessa dagana
enda hljómsveitin afar upptekin við
markaðssetningu á þessum síðustu
dögum jólastressins.
„Við verðum á fullu fram að öðrum
janúar," segir íris og andvarpar létt.
„Eftir verður slakað svolítið á til
þess að ná aftur áttum,“ segir Davíð.
„Það eru líka að koma breytingar í
hljómsveitinni. Trommarinn okkar
[Heiðar Kiistinsson] er að hætta og
við erum að fá nýjan. Ég held að
hann hafi fengið nóg af rútuferðum á
þessum fjórum árum.“
„Hann er farinn að einbeita sér
meira að fjölskyldunni," útskýrir
Valur betur. „Hann var að eignast
bam og ætlar að sinna sínu fjöl-
skylduhlutverki. Eins og staðan er í
dag er það mjög líklegt að Egill
Rafnsson taki við.“
Egill er sonur Rafns Jónssonar
[Rabbi, útgefandi Buttercups] og
fyrrverandi meðlimur Woofer.
Heiðar trommari er ekki sá eini
innan hljómsveitarinnar sem hefur
öðrum skyldum að gegna. Höfuð-
skylda írisar söngkonu er sonur
hennar Kristinn Freyr, kallaður
Kiddi.
„Hann er sjö ára gamall sem gerir
það mun auðveldara fyrir mig að
standa í þessu. Hann hefur líka alist
upp við þetta og finnst þetta bara
gaman. Síðan á ég góða fjölskyldu
sem aðstoðar mig við þetta.“
En syngur sonurinn mikið með
Buttercup-lögunum heima í stofu?
„Voðalega lítið, hann hallast meira
að leiklistinni en tónlist,“ segir Iris,
mamma popp, og brosir að lokum.
REGATTA#
CREAT OUTDOORS
ISOTEX
JAKKAR M/FLEECE
VERÐ FRÁ
PEYSUR
OPIÐ FOSTUD. 22 DES. 10 - 20
ÞORLAKSMESSA 10-22
AÐFANGADAGUR10 13
IVIYNDBOND
Skóli eða
stelpur?
Dagdraumar
Trippin’
Gamanmynd
Leiksljóri: David Raynir. Handrit:
Gary Hardwick. Aðalhlutverk:
Deon Richmond, Maia Campbell.
(92 mín.) Bandaríkin 1999. Skífan.
Bönnuð innan 12 ára.
GREG er á lokaári sínu í mennta-
skóla og á við þrjú stór vandamál að
stríða. Hann hefur ekki fengið neina
stelpu til þess að fara með sér á út-
skriftarballið, hann veit ekkert hvað
hann á við framtíð sína að gera og
hann er úr sam-
bandi við um-
heiminn mestall-
an tímann, víðs
fjarri inni í heimi
dagdrauma þar
sem hann er
mestur og bestur
í öllu - og veður í
kvenfólki.
Aðalhúmorinn
í þessari „gam-
anmynd“, sem er ein af þessum þar
sem ekki er að finna mannhræðu
með annað hörund en þeldökkt,
gengur út á þessi ferðalög Gregs
inn í draumalandið og gerist næst-
um hálf myndin inni í frjósömum
huga hans þar sem aðeins þrennt
kemst að; stelpur, stelpur og hann
sjálfur. Þessar draumfarir eru allar
með tölu fullkomlega ófyndnar og
fengu mig ekki einu sinni til að
brosa út í annað. Miklu áhugaverð-
ari þótti mér raunveruleiki hans og
vangaveltur um framtíðaráformin
en þá og einungis þá tókst að fanga
fulla athygli mína.
Skarphéðinn Guðmundsson