Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurgeir
Forsætisráðherra var boðið í skötuveislu um borð í Blátindi, en verið er að gera skipið upp uin þessar mundir.
Skötuveisla í Blátindi
DAVIÐ Oddssyni forsætisráðherra
var boðið í skötuveislu um borð í
Blátindi í Vestmannaeyjum í há-
deginu í gær, áður en hann fór og
skoðaði ummerki brunans sem
varð í Isfélaginu laugardaginn 9.
desember. Árni Johnsen, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, bauð for-
sætisráðherra velkominn í bátinn
sem var smíðaður í Vestmanna-
eyjum árið 1947 og þjónaði m.a.
sem varðskip á Faxaflóa í kringum
1950, þá búið fallbyssu í stað veið-
arfæra.
Stofnað hefur verið félag um
bátinn sem nefnist Blátindsfélagið
og stendur það fyrir endurgerð
hans. Blátindur er eini báturinn
sem smiðaðúr var í Eyjum á
fimmta áratugnum, en alls voru 78
slíkir bátar smiðaðir.
Endurgerð bátsins
gengur vel
Ámi sagði að endurgerð bátsins
gengi vel og að til stæði að afhenda
hann bæjaryfirvöldum fullbúinn á
næsta sjómannadegi, en til stendur
að flytja bátinn á Skansinn og hafa
hann þar til sýnis fyrir almenning.
Veitingamaðurinn Grímur Gísla-
son sá um skötuveisluna sem var
hin veglegasta en auk skötunnar
kæstu var boðið upp á ýmsa aðra
fiskrétti.
Við þetta tilefni þakkaði Davfð
Zrir sig en varð að orði að hann og
rni væru í megrunarkúr og
þyrftu því að fara varlega í veit-
ingarnar. Reyndar sagði hann að
megrunarkúrinn gengi það vel að
meira að segja stjórnarandstaðan
hefði lýst yfír sérstakri ánægju og
hvatt hann til að halda áfram því
hann væri alveg að hverfa.
Umhverfísmat svínabúsins á Melum
Stjörnugrís
stefnir ráðherra
öðru sinni
STJÖRNUGRÍS á Kjalarnesi hefur
höfðað mál á hendur Siv Friðleifs-
dóttur umhverfisráðherra f.h. ís-
lenska ííkisins þar sem krafist er að
felldur verði úr gildi með dómi úr-
skurður umhverfisráðherra um að
stækkun svínabús fyrirtækisins á
Melum í Leirár- og Melahreppi í
Borgarfjarðarsýslu skuli sæta mati á
umhverfisáhrifum.
Þetta er í annað sinn sem Stjörnu-
grís stefnir umhverfisráðherra
vegna svínabúsins á Melum, en
Hæstiréttur dæmdi í apríl sl. að
krafa ráðuneytisins um að bygging
þess og rekstur sættí umhverfismati
bryti í bága við ákvæði stjómar-
skrárinnar um vernd eignarréttar og
atvinnufrelsi.
Svínabúið á Melum átti upphaf-
lega að hýsa að meðaltali um 8.000
grísi, eða um 20.000 á ári, en meðan á
málarekstri við umhverfisráðherra
stóð í fyrra fékkst aðeins leyfi fyrir
öðru húsi af tveimur sem fyrirhuguð
vora á svæðinu og starfsleyfi fyrir
tæplega 3.000 grísa búi. Eftir dóm
Hæstaréttar sótti Stjörnugrís um
byggingarleyfi fyrir öðru húsi og þar
með stækkun upp í áður áætlaða
stærð. Það var samþykkt á fundi
byggingarnefndar og gefið út bygg-
ingarieyfi en starfsleyfi fékkst ekki
þar sem Skipulagsstofnun og síðar
umhverfisráðherra töldu það háð
nýjum lögum um umhverfismat. Við
það vill Stjörnugrís ekki una og hef-
ur fyrirtækið nú stefnt ráðherra á
þeim forsendum að hann hafi verið
vanhæfur til að úrskurða í kærumál-
inu með því að mæla beinlínis fyrir
um afgreiðslu þess á lægra stjórn-
sýslustigi. Auk þess á þeim forsend- |
um að við meðferð málsins eigi að
byggja á lögum um umhverfismat
frá 1993, en ekki nýjum lögum um 1
umhverfismat frá í júní á þessu ári,
sem hafi gengið í gildi eftir að um-
sókn um stækkun var lögð fram.
Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður
Stjörnugríss, segir fyrirtækið hafa
átt von á að fá starfsleyfi gefið út
vandræðalaust í ljósi dóms Hæsta-
réttar, en svo virðist sem stjómvöld-
um sé mjög í mun að svínabúið sæti k
mati á umhverfisáhrifum. Meðal
annars hafi Skipulagsstofnun rök- j
stutt kröfu um slíkt með vísan til
laga sem ekki hafi tekið gildi.
„Slíkt verður að teljast með mikl-
um ólíkindum. Það er í sjálfu sér
ekki mitt að dæma hvað er eðlilegt í
þessu sambandi, en þetta hljóta að
teljast mjög sérstakir stjórnsýslu-
hættir,“ segir Guðjón.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur 19. desember sl. og hef- |
ur dómstjóri heimilað flýtimeðferð.
28 milljarðar í LSR
á þremur árum
Landspítali - háskólasjúkrahús
Sættir í deilumáli
RÍKISSJÓÐUR hefur á síðustu
tveimur árum greitt 13 milljarða
inn í Lífeyrissjóð starfsmanna rík-
isins og áformað er að greiða allt
að 15 milljarða inn í sjóðinn á
næsta ári. Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra segir að ýmislegt
hafi verið gert af hálfu ríkisins til
að grynnka á eftirlaunaskuldbind-
ingum ríkisins við opinbera starfs-
menn.
Pétur Blöndal alþingismaður
Lögreglu-
hundurí
miðborgina
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur í
hyggju að nota lögregluhund við lög-
gæslu í Reykjavík.
Hugmyndin er að nota lögreglu-
hund um kvöld og helgar gegn hópa-
myndun sem ógni öryggi borgar-
anna þá. Vill lögregan grípa til þessa
ráðs vegna atburða sem orðið hafa er
lögregla hefur haft afskipti af ofbeldi
en verið hindruð í starfi.
benti á það í grein í Morgunblaðinu
í gær að lífeyrisskuldbindingar rík-
isins gagnvart opinberum starfs-
mönnum hefðu aukist um tæplega
77 milljarða á fjórum árum og að
horfur væru á að þessar skuldbind-
ingar hækkuðu enn með kjara-
samningi við kennara.
„Það er ljóst að þarna eru heil-
miklar óbrúaðar skuldbindingar og
við höfum verið að borga inn á þær
til að grynnka á þeim,“ sagði Geir í
samtali við Morgunblaðið.
„Skuldbindingarnar hafa engu
að síður verið að vaxa, en það er
ómögulegt að segja fyrir um hvern-
ig það þróast. Það fer eftir ávöxtun
og fleiru. Þær breytingar sem hafa
verið gerðar á undanförnum árum
með því að auka dagvinnuhlutann í
launum ríkisstarfsmanna auka
mjög þessar skuldbindingar vegna
þess að eftirmannsreglan byggist á
dagvinnulaunum eftirmannsins. Af
þeim sökum er ljóst að þessi breyt-
ing hefur heilmikil áhrif,“ segir
ráðherra og telur að verði kjara-
samningur við framhaldsskóla-
kennara byggður á því að auka hlut
dagvinnulauna muni það hafa mikl-
ar eftirlaunaskuldbindingar í för
með sér.
SÆTTIR hafa náðst í ágreinings-
máli hjá Landspítalanum - háskóla-
sjúkrahúsi, en það snerist um að for-
stjóri spítalans afturkallaði val
Steins Jónssonar í stöðu sviðsstjóra
kennslu og fræða vegna gagnrýni
þess síðarnefnda á spítalann og
hagsmunaárekstrar, þar sem hann
ynni að undirbúningi stofnunar
einkasjúkrahúss.
Steinn Jónsson læknir og Magnús
Pétursson, forstjóri Landspítalans,
hafa orðið sammála um að Steinn
taki að sér skipulagningu og sam-
ræmingu framhaldsmenntunar að-
stoðarlækna og deildarlækna í klín-
ísku námi á lyflækningasviðum
spítalans. Yfiriýsing þessa efnis var
send frá skrifstofu forstjóra spítal-
ans í gær.
í yfirlýsingunni segir að unnið sé
að því að efla háskólasjúkrahúsið
með ýmsum hætti og samkomulagið
sé liður í því. Tekið er fram að
ákvörðunin sé tekin í samráði við
forystumann lyflækninga í lækna-
deild Háskóla íslands og að Steinn
Jónsson verði áfram sérfræðingur í
lyf- og lungnalækningum á Land-
spítalanum.
Steinn sagði í gærkvöldi að hið
nýja starf fælist í að hafa forystu um
framhaldsmenntunarmál á lyflækn-
ingasviðunum báðum og þau væru
stór hluti af spítalanum. Framundan
væri talsverð þróunarvinna og
margvíslegar nýjungar hefðu verið
til umræðu að undanförnu.
„í þessu felst nokkur áherslu-
breyting hvað varðar málefni fram-
haldsmenntunar í heild. Þau eru nú
færð nær sviðum og deildum spít-
alans og svo kann að fara að skipaðir
verði kennslustjórar við stóru svið-
in. Ég hef stungið upp á því að sam-
ræming þessara mála fari fram í
framhaldsmenntunarráði lækna-
deildar og vel hefur verið tekið í að
málin fari í þann farveg.“
En er afskiptum Steins af hug-
myndum um aukinn einkarekstur í
heilbrigðiskerfinu lokið með þessu
samkomulagi?
„Nei. í umræðunni að undanförnu
höfum við náð að skýra betur sjón-
armið okkar í þeim efnum og ég
held að flestir geri sér nú grein fyrir
því að þeir sem gagnrýndu málið
hvað mest gerðu það út frá villandi
upplýsingum. Það er ekki verið að
tala um einkaspítala sem slíkan,
heldur nánari útfærslu á sérfræði-
þjónustu utan sjúkrahúsa og nánari 1
samvinnu læknamiðstöðvanna í
Reykjavík. Þær viðræður munu
halda áfram og við munum ljúka |
þeirri hagkvæmniathugun sem
stendur yfir og stefnum á að kynna
niðurstöður hennar fyrir heilbrigð-
isráðherra og Tryggingastofnun
þegar þar að kemur,“ segir Steinn
Jónsson.
Ekki náðist í Magnús Pétursson
vegna þessa máls í gær, en yfirlýs-
ing hans og Steins fer hér á eftir:
„Steinn Jónsson læknir og Magn-
ús Pétursson, forstjóri Landspítala
- háskólasjúkrahúss, hafa orðið
sammála um að Steinn taki að sér
skipulagningu og samræmingu
framhaldsmenntunar aðstoðar-
lækna og deildarlækna í klínísku
námi á lyflækningasviðum spítalans.
Unnið er að því að efla háskóla-
sjúkrahúsið með ýmsum hætti og er
þetta samkomulag liður í því-
Ákvörðunin er tekin í samráði við
forystumann lyflækninga í lækna-
deild Háskóla Islands.
Steinn Jónsson verður áfram sér-
fræðingur í lyf- og lungnalækning-
um á Landspítala - háskólasjúkra-
húsi.“
áiMMtXÍX
BÍÓBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
-wmmsasm