Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 5
Skáldskapur slunginn
visku og töfrum
Skáldskapur Þorsteins frá Hamri er slunginn visku og töfrum máls.
í Ijóðum hans hljómar rödd úr veröld hins ósegjanlega og bregður sífellt
nýju, undarlegu ljósi á tilveru okkar. Þeirrar ættar er hin besta hst.
„Þessi mögnuðu ljóð skýra vel andstæðuna milli lífsþrár og feigðargruns sem
er ef vel er að gætt sú spenna sem mest einkennir mennska tilvist...
Vetrarmyndin er fimmtánda ljóðabók Þorsteins og bregst ekki vonum, enda
þarf engar sönnur á það lengur hversu gott skáld Þorsteinn er. Lesandans bíður
það eitt að þakka fyrir sig og gleðjast yfir því að vera hfandi með slíkum ljóðum.“
Úr ritdómi í DV
„... mesta ljóðskáld okkar á seinnihluta 20. aldar... einstök stílsnihd...
Einstakt listaverk, eftir mesta núlifandi ljóðskáld Islendinga ...“
Hrafn Jökulsson í Kastljósi
Endalok örlagasögu
Enginn íslenskur athafnamaður átti sér stærri drauma í upphafi aldar
en Einar Benediktsson, ekkert skáld hugsaði hærra og enginn
persónuleiki var margslungnari. En eftir umbrotamikinn áratug,
þegar glæstar borgir hrynja og háleitar hugsjónir verða að víkja fyrir
bláköldum veruleikanum, er hafáttin farin að hleypa
skammdegisbrúnum að skáldjöffinum. Smám saman fykur í skjólin
og stoðirnar bresta þótt enn eigi eldhuginn Einar Benediktsson til
þann töfrakraft sem hrífur og heihar. Slíkir menn hverfa ekki
þegjandi og hljóðalaust af sjónarsviðinu og kannski var Einar sjaldan
stærri í sniðum en eftir að haha tók undan fæti í lífi hans, skuldum
vafinn heimsborgari sem lauk að lokum ævinni á afskekktum
sveitabæ.
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur lýkur hér hinni miklu ævisögu
þjóðskáldsins, hugsjónamannsins og snillingsins dáða og umdeilda,
Einars Benediktssonar, sem um leið er saga íslensks þjóðfélags í
árdaga nýrrar aldar. Með umfangsmikilli heimildavinnu, heilsteyptri
úrvinnslu og skáldlegu innsæi dregur hann upp áhrifamikla mynd af
manni sem átti stærri og viðburðaríkari sögu en nokkur
samtímamaður hans.
Guðjón Friðriksson hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fýrir fýrsta
bindi ævisögu Einars Benediktssonar.
IÐUNN