Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
Sigurður Líndal lagaprófessor
Dómurinn ekki
sérstakt áfall
fyrir Alþingi
SIGURÐUR Líndal lagaprófessor
segist ekki telja að líta eigi á dóm
Hæstaréttar í máli Öryrkjabanda-
lagsins sem sérstakt áfall fyrir Al-
þingi. Hæstiréttur sé í þessu máli að
veita löggjafarvaldinu visst aðhald og
Alþingi geti í framhaldinu sett ný lög
sem samræmist stjómarskrá. Það sé
alls ekki óæskilegt að löggjöf þróist í
víxlverkan löggjafarvalds og dóms-
valdsins. Hann segir dóminn í sam-
ræmi við þróun sem átt hafi sér stað í
evrópskum rétti á seinni árum.
Sigurður vill horfa á dóm Hæsta-
réttar í sögulegu ljósi. „í stjómar-
skránni segir að dómendur eigi ein-
ungis að dæma eftir lögunum. Það
má þá spyrja, hvað em lög? Á ein-
veldisöld fólu ákvarðanir einvaldsins
í sér lög eins og þau birtust í settum
lögum. Síðan færðist þetta vald yfir
til fulltúasamkomunnar. Þá var lengi
viðurkennt að fulltrúasamkoman
mætti ein setja lög. Síðar viður-
kenndu menn venjur, með nokkmm
semingi. Dómstólar höfðu hins vegar
ekkert vald til að setja neinar reglur.
Þeir áttu bara að mæla fyrir munn
löggjafans eins og Montesquieu orð-
aði það. Á þessum tíma var þjóðfélag-
ið frekar einfalt miðað við það sem nú
er og framþróun frekar hæg. Evr-
ópumenn fengu þá hugmynd að það
mætti setja öll lög í eina allsherjar
lögbók og það var reynt án þess að
það tækist nokkurn tímann almenni-
lega.
Þegar fram liðu stundir verður
þróunin hraðari og afleiðingin verður
sú að löggjafinn heldur ekki í við þró-
unina. Þetta birtist í því að annars
vegar hreinlega vantar lög eða lög
em tiltölulega almennt orðuð, oft í
formi svokallaðra vísireglna sem vísa
til almennrar réttarvitundar á hveij-
um tíma, heiðarleika, góðra við-
skiptahátta o.s.frv. Hins vegar birtist
þetta í því að löggjafinn framselur
valdið til framkvæmdarvaldsins, eins
og raunar kom til álita í þessum um-
rædda dómi. Löggjafinn hefur einnig
framselt vald til hagsmunaaðila eins
og aðila vinnumarkaðarins.
Þetta þýðir að upp koma ágrein-
ingsefni sem verður að leysa úr.
Þjóðfélagið þolir ekki óvissu. Hvað
eiga dómstólar þá að gera þegar ann-
aðhvort vantar lög eða lög em mjög
opin og óskýr? Nú, þeir einfaldlega
setja reglur, að vísu ekki með sama
hætti og löggjafinn heldur í anda við-
urkenndra lagasjónarmiða og laga-
hefðar.“
„Ég held að það sé ekki umdeilt að
dómstólar setja reglur. Það er hins
vegar álitamál hversu langt þeir eigi
að ganga. Sumir telja að dómstólar
eigi að halda sig mjög til hlés, en aðr-
ir telja að þeir gangi ekki nógu langt.
Þetta er ekki bara íslensk þróun
heldur er þetta þróun víða um Evr-
ópu. Evrópudómstóllinn hefur geng-
ið mjög langt og sett nokkrar gmnd-
vallarreglur fyrir Evrópusambandið.
Mannréttindadómstóllinn hefur gert
það sama.“
Sigurður sagði að þróun í stjóm-
skipun hefði einnig verið mjög ör.
Áhersla á mannréttindi hefði verið
vaxandi og Mannréttindadómstóllinn
ráðið miklu um þróunina.
„Æðstu dómstólar ríkjanna hafa
bmgðist við og löggjafinn um leið.
Þama hefur því orðið víxlverkan sem
hefur valdið mjög örri þróun. Ég
held að hún hafi beinst í þá átt að
gefa þessum almennt orðuðu yfirlýs-
ingum, eins og er í stjómarskrá og
mannréttindasáttmálum, efnislegt
inntak. Eins og t.d. það að allir eigi
rétt á tiltekinni framfærslu eins og
segir í greininni sem Hæstiréttur
vísar til. „Öllum sem þess þurfa skal
tryggður í lögum réttur til aðstoðar
vegna sjúkleika, örorku, elli ..."
Hæstiréttur telur að þessi regla feli í
sér að mönnum séu tryggð einhver
tiltekin lágmarkskjör, sem yrðu þá
væntanlega miðuð við það sem tíðk-
ast í hlutaðeigandi samfélagi.“
Tekjutengingar ekki ólöglegar
„í dóminum virðist lagt til gmnd-
vallar að ákveðnum hópi hafi verið
mismunað meira en öðrum. Þetta
þýðir ekki að mínum dómi að tekju-
tenging til skerðingar sé alveg for-
takslaust ólögleg," sagði Sigurður.
Það sjónarmið hefur komið íram
að Hæstiréttur hafi í þessum dómi
gengið of langt.
„Löggjafinn hefur alltaf það úr-
ræði að bregðast við og setja skýrar
reglur innan marka stjómarskrár.
Þannig getur hann hamið dómsvaldið
ef svo má segja og ég held að það sé
alls ekki óæskilegt að löggjöf þróist í
víxlverkan löggjafarvalds og dóms-
valdsins. Ég tel því að það þurfi ekki
að líta á þennan hæstaréttardóm sem
eitthvert sérstakt áfall fyrir Alþingi.
Löggjafinn þarf sitt aðhald og dóms-
valdið þarf einnig aðhald. Er ekki
lýðræðið fólgið í því að ein stofnun
tempri aðra? Það slæma í þessu er
hins vegar þessi afturvirkni. Dóms-
valdið er alltaf í nokkmm vanda þeg-
ar það stendur frammi fyrir því að
lagðir hafa verið á ólöglegir skattar
fyrir einhveijum ámm. Það slæma
við lagasetningarvald dómsvaldsins
er að það er öðmm þræði afturvirkt."
"m Það
n taka
margirnýju
Compaq litunum
' - fagnánði.
^ Sérstaklega þeir sem eru
með tölvuna í stofunni.
Pakkinn samanstendur af 5
hlutum: Spjöldum fyrir hátalara, lykla-
borð og tölvuna sjálta. 5 Irtir fáanlegir.
COMPACL
Grafarvogi
Skeifunni <
Reykjanesbæ
Hafnarfirði • Kringlunni
• Akureyri • Egilsstöðum
niHuorUi'
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Betur fór en á horfðist þegar steypubfllinn valt ofan á fólksbifreiðina. í steypubflnum vom um 6 ms af steypu.
Steypubíll valt ofan á fólksbíl
STEYPUBILL ók á fólksbifreið í
Engidal í Hafnarfirði í gærmorg-
un. Við það snerist fólksbfllinn í
hálfhring en steypubfllinn hafnaði
á umferðareyju og valt því næst
ofan á afturhluta bflsins.
Lögreglan í Hafnarfirði segir
flest benda til þess að ökumaður
steypubflsins hafi ekið yfir á
rauðu ljósi og þannig orðið valdur
að árekstrinum. Fólkbfllinn var á
leið inn í Hafnarfjörð þegar
steypubfllinn skall á vinstri hlið
hans. Tveir karlmenn voru í fólk-
bílnum og voru þeir ásamt öku-
manni steypubflsins fluttir á
slysadeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi.
Heilbrigðisráðherra segir að nefnd verði falið að semja
frumvarp um tryggingabætur
Ekki greitt fyrr en ný
lög hafa verið sett
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra segir að ekki verði hægt
að greiða öryrkjum tryggingabætur
í samræmi við niðurstöðu Hæsta-
réttar í máli Öryrkjabandalagsins
fyrr en lögum hafi verið breytt á Al-
þingi. Fjórir ráðherrar í ríkisstjóm-
inni áttu í gær fundi með ríkislög-
manni þar sem farið var yfir dóminn.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að á fundinum hefði verið farið
yfir málin með lögfræðingum sem
hefðu verið að undirbúa minnisblöð
fyrir ríkisstjómarfund sem verður í
dag.
„Það var aðeins verið að fá skýr-
ingar lögfróðra manna á þessum
dómi sem er dálítið óklár og óljós í
ýmsum efnum og lögfræðilega afar
sérstakur svo ekki sé nú meira
sagt,“ sagði Davíð.
Ingibjörg sagði að dómur Hæsta-
réttar væri viðurkenningardómur.
Málið væri ekki höfðað af einstak-
lingi sem krefðist bóta af Trygginga-
stofnun og því væri ekki í dómnum
að finna útlistan á því hvernig bæri
að reikna út bætunar.
„Á þessum fundi vomm við að fara
yfir þessi flóknu mál með ríkislög-
manni. Við stefnum að því að greiða
bætur í samræmi við niðurstöðu
dómsins eins hratt og mögulegt er.
Það verður fljótlega skipaður starfs-
hópur til að semja fmmvarp um
þetta mál,“ sagði Ingibjörg.
Ingibjörg sagðist ekkert geta tjáð
sig um innihald þessa fmmvarps.
Dómurinn næði eingöngu til öryrkja
og það væri óljóst hvort starfshóp-
urinn myndi leggja til einhverjar
breytingar á greiðslum til aldraðra.
Lækkun tekjuteng-ingar
kostaði 800 milljónir á 3 árum
„Það er nauðsynlegt að hafa í
huga að bætur öryrkja hafa verið
tengdar við tekjur maka í um 60 ár.
Eftir að ég varð heilbrigðisráðherra
hef ég beitt mér íyrir því minnka
þessar tekjutengingar. Þeir sem nú
tala hæst um þessi mál gerðu hins
vegar engar breytingar á tekjuteng-
ingunni meðan þeir vom í ríkis-
stjóm. Ég hef tvívegis beitt mér fyr-
ir því að draga úr þessari
tekjutengingu. Á síðustu þremur ár-
um hafa um 800 milljónir farið í að
draga úr þessari tengingu."
Ingibjörg sagðist vera þeirrar
skoðunar að almennt væri nauðsyn-
legt að beita tekjutengingum í al-
mannatryggingalöggöfinni því að að-
eins þannig væri hægt að koma á
móts við þá sem minnst hefðu milli
handa.
Á fundinum í gær vora, auk Ingi-
bjargar og Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra, Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra, Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra og Jón G. Tómas-
son ríkislögmaður.
* • •
Halldór Asgrímsson um dóm í máli Oryrkjabandalagsins
Fjallar um möguleika Al-
þingis til að jafna kjörin
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, segir að dómur Hæsta-
réttar í máli Öryrkjabandalagsins
varði mjög vald löggjafans og mögu-
leika löggjafarvaldsins til að jafna
kjör börgaranna. Hann segir ekki
Ijóst hver viðbrögð stjórnvalda verði
fyrr en lögfræðingar ríkisstjórnar-
innar séu búnir að fara betur yfir
dóminn.
„Þessi dómur fjallar um grund-
vallarmál. Hann fjallar um mögu-
leika löggjafarvaldsins til að jafna
kjör borgaranna. Það má alltaf um
það deila hvemig það skuli gert.
Frá upphafi hefur það verið viðtekin
venja í íslensku samfélagi að taka
tillit til aðstæðna fólks, m.a. tekna
og eigna og annarra aðstæðna fjöl-
skyldna. Við höfum á undanfömum
ámm verið að ganga í þá átt að
draga heldur úr því sem kallað er
tekjuskerðingar en jafnhliða því má
vera Ijóst að þeir peningar verða þá
ekki notaðir til að bæta kjör þeirra
sem verstu aðstæðurnar hafa.
Þetta er jafnvægislist sem hefur
verið á verkefni stjórnmálamanna
og allir stjórnmálaflokkar hafa verið
sammála um.
Það liggur alveg ljóst fyrir að það
mun ekki eiga sér stað breyting í
þessu efni nema að það komi til
breyting á lögum. Það þarf að und-
irbúa slíka löggjöf og hún þarl' að
fara fyrir Alþingi. Það er fyrst þá
sem Ijóst er hvaða afleiðingar þessi
dómur hefur.“
Halldór vildi ekki fullyrða neitt
um hvenær Alþingi kæmi saman til
að fjalla um málið. Lögfræðingar
ríkisstjórnarinnar þyrftu að fara
vandlega yfir málið og í framhaldi af
því þyrftu stjórnvöld að taka póli-
tískar ákvarðanir um viðbrögð og
leggja þær síðan fyrir Alþingi.
„Þetta mál varðar mjög löggjaf-
arvaldið og valdsvið þess. Hér er
um að ræða löggjöf sem fleiri hafa
staðið að en núverandi stjómar-
flokkai’. Hún á rætur sínar að rekja
langt aftur í tímann. Sú löggjöf sem
dómurinn byggir fyrst og fremst á
er frá árinu 1993 þegar Alþýðu-
flokkurinn fór með stjórn heilbrigð-
ismála."
Halldór sagði að þessi dómur
fjallaði eingöngu um öryrkja og
ekkert annað. „Ef þetta varðar allt
sviðið, hvort sem það em aldraðir,
námsmenn eða millifæranlegan per-
sónufrádrátt og mismunandi
skattprósentu hefur verksvið
stjórnmálamanna minnkað afar
mikið. Ég lít þannig á að hér sé um
dóm að ræða sem varðar fyrst og
fremst málefni öryrkja og það beri
að fjalla um hann sem slíkan.“