Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýja Bíó
í Keflavfk
opnar nýj-
an sal
NÝR sýningarsalur verður opnaður
í Nýja Bíói í Keflavík um jólin, og
verða þá komnir tveir sýningarsalir
í húsið. Salurinn tekur 100 manns í
sæti, en fyrir er 300 manna salur.
Arni Samúelsson, framkvæmda-
stjóri SAM-bíóanna sem eiga Nýja
Bíó, segir að aðsókn að bíóinu hafi
fjórfaldast á tveimur árum eftir
gagngerar endurbætur, og því hafi
verið tekin ákvörðun um að opna
annan sal.
Arni og fjölskylda hans reka eins
og kunnugt er SAM-bíóin, sem eru
Bíóhöllin, Kringlubíó, Sagabíó og
Bíóborgin í Reykjavík og Nýja Bíó á
Akureyri og Nýja Bíó í Keflavík.
Árni og fjölskylda hans hafa rekið
Nýja Bíó í Keflavík frá árinu 1967,
en þar á undan rak fjölskylda kon-
unnar hans, Guðnýjar Björnsdóttur,
bíóið.
„Björn sonur minn fór út í það að
breyta þessu bíói allverulega fyrir
tveimur árum síðan, og var öllu
mokað út og allt nýtt sett inn. Bíóið
var endumýjað eins og bíó best ger-
ist, en við það fjórfaldaðist aðsóknin
að húsinu. Við ákváðum því að taka í
notkun annan sal, enda vorum við
með ónotað pláss í húsinu sem var á
sínum tíma vinsæll skemmtistaður
sem hét Bergás.“
Framkvæmdir hófust í október
og verður salurinn tekinn formlega í
notkun í kvöld, en fyrstu almennu
sýningarnar verða annan í jólum.
Árni segir að bíórekstur hafi gengið
ágætlega á Akureyri og Suðurnesj-
um, enda sé ágætis grundvöllur fyr-
ir bíóhúsarekstur í þéttbýliskjöm-
um utan höfuðborgarsvæðisins.
„Þar hafa bíóin staðið sig vel. Ef
fólkið út á landi fær samskonar bíó
og í Reykjavík, og sér nýjar myndir
sem sýndar era samhliða bíóunum í
þar, þá ertu með það sem vantar.
En það þarf auðvitað að vera
byggðakjarni fyrir hendi, og þarna
suður frá er komin um 15.000
manna byggð.“
------^4-*------
Fiskur
og kartöflur
til spillis
FLUTNINGAKASSI eyðilagðist og
nokkuð fór til spillis af fiski og kart-
öflum þegar tengivagn valt út af
hringveginum við Þveiti um 10 km
vestan við Höfn í Hornafirði í fyrra-
kvöld. Engin slys urðu á fólki.
Bílstjóri vöraflutningabifreiða-
rinnar mun hafa misst bifreið sína of
mikið út í hægri kant. Tengivagninn
lenti við það utan vegar og flutnings-
kassi sem á honum var losnaði frá og
brotnaði. Bílstjóranum tókst að rétta
bílinn af en ekki vildi betur til en svo
að tengivagninn valt út af veginum
vinstra megin og dróst nokkum spöl
á eftir bílnum. Farmurinn, nokkur
bretti af kartöflum og fiskikör, er að
mestu ónýtur.
----------------
Bflvelta
á Húsavík
ÞRJÁR ungar konur sluppu betur
en á horfðist þegar bifreið þeirra valt
nokkrar veltur fram af háum kanti
við Héðinsbraut á Húsavík í fyrri-
nótt. Óhappið er rakið til hraðakst-
urs en hálka er einnig talin hafa
stuðlað að því hvernig fór.
Flytja varð ökumanninn á sjúkra-
hús, en hún mun ekki hafa verið í ör-
yggisbelti. Reyndust meiðsl hennar
þó ekki mikil og hinar stúlkurnar
sluppu með minniháttar skrámur.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík er
bifreiðin, sem er nýlegur fólksbíll,
ónýt eftir óhappið.
Leiðir til að
draga úr
loftmengun
kannaðar
UMHVERFIS- og heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum í gær að fela gatna-
málastjóra og Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur að vinna að úttekt á
úrræðum sem tiltæk eru borgaryf-
irvöldum tii að draga úr loftmeng-
un. Hrannar B. Amarsson, for-
maður nefndarinnar, tjáði
Morgunblaðinu að tillagan væri
komin til vegna aukins mengandi
svifryks sem rekja megi að miklu
leyti til notkunar nagladekkja.
I tillögunni er gert ráð fyrir að
sérstaklega verði kannað hvernig
hægt sé að draga úr loftmengun
vegna umferðar og notkunar
nagladekkja. Einnig að steypa
verði skoðuð sem valkostur við
malbikun. Hrannar B. Arnarsson
segir það tilgang tillögunnar að
leita leiða til að takmarka eða
banna notkun nagladekkja þar sem
sterk rök hafi hnigið að því að auk-
ið svifryk megi rekja að miklu leyti
til notkunar nagladekkja og auk-
innar umferðar á höfuðborgar-
svæðinu.
Bregðast verður við
auknu svifryki
I greinargerð með tillögunni
segir að reglubundnar loftmæling-
ar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
sýni að samhliða minnkandi styrk
ýmissa mengandi efna vegna út-
blásturs bíla hafi magn svifryks
aukist jafnt og þétt. Bregðast verði
við þessari aukningu þess með
markvissum hætti enda nálgist hún
hættumörk verði ekkert að gert.
„Áður en gripið verður til aðgerða
er nauðsynlegt að liggi fyrir hver
úrræði borgaryfirvalda eru og ekki
síður á hvaða sviðum væri nauð-
synlegt að leita eftir samstarfi við
ríkisvaldið og nærliggjandi sveit-
arfélög," segir í greinargerðinni.
Morgunblaðið/ Kristínn.
Margrét Rún Einarsdóttir, nemandi í Borgarholtsskóla og í stjórn Félags framhaldskólanema, Ómar Örn Ólafs-
son, ármaður skólafélags MS, og Gísli Berg, tækjavörður og nemandi í MR, sem hannaði póstkortið.
Barist gegn áfengisneyslu
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í hand-
bolta og fleira ungt fólk dreifði í
gær og dreifir næstu daga póst-
kortum með ábendingum ætluðum
foreldrum og öðrum fullorðnum.
Eru þeir hvattir til að berjast
gegn áfengisneyslu unglinga á
framhaldsskólaaldri. Átakið er á
vegum samráðshóps Félags fram-
haldsskólanema. Áfengis- og
vímuvarnaráðs, Islands án eitur-
lyfja, Lögreglunnar í Reykjavík,
Félags framhaldsskólanna og
Heimilis og skóla í samstarfi við
ÁTVR, HSÍ og unglingalandslið
kvenna í handbolta.
Á blaðamannafundi þar sem
átakið var kynnt kom fram að
talsvert hefur dregið úr ölv-
unardrykkju unglinga í efstu
bekkjum grunnskólans. Hins veg-
ar séu vísbendingar um að þegar
unglingar komast á framhalds-
skólaaldurinn aukist áfeng-
isneysla þeirra verulega. Af þess-
um sökum sé ástæða til að brýna
rekstraraðila vínveitingahúsa til
að virða reglur um áfeng-
iskaupaaldur.
Átakið beinist hins vegar al-
mennt að foreldrum og öðrum
fullorðnum. Unglingalandslið
kvenna í handbolta og fleira ungt
fólk dreifir í þessu skyni póst-
kortum við áfengisverslanir víða
um land. Foreldrar eru beðnir að
styðja unglingana og setja þeim
skýr mörk með því að segja nei
við áfengisneyslu þeirra. Þá er
bent á að foreldrar verða að geta
treyst því að aðrir fullorðnir
hvorki veiti né kaupi áfengi fyrir
börn þeirra, né veiti þeim aðstöðu
til áfengis- eða fíkniefnaneyslu.
Gísli Berg, tækjavörður og
nemandi í MR, hannaði póst-
kortið. Hann segir að póstkortið
sé stflað til foreldra og annarra
sem bera hag ungs fólks fyrir
brjósti.
Margrét Rún Einarsdóttir, nem-
andi í Borgarholtsskóla og í
stjórn Félags framhaidsskóla-
nema, átti hugmyndina að dreif-
ingu póstkortanna. Hún segir afar
auðvelt fyrir framhaldsskólanema
að nálgast áfengi. „Ég ætla ekki
að segja að allir foreldrar kaupi
áfengi fyrir börnin sín en það er
samt hluti af heildinni. Ég held að
sniðugast sé að byrja á foreldrum,
þar sem þeir eru fyrirmyndin."
Ómar Órn Ólafsson, ármaður
skólafélags Menntaskólans við
Sund, er einn þeirra sem stóðu að
ákvörðun um gerð póstkortsins.
Hann telur líklegt að sú stað-
reynd að ekki hafa verið haldin
skólaböll í kennaraverkfallinu
hafi leitt til þess að nemendur
hafi leitað í auknum mæli inn á
almenna vínveitingastaði. „Það er
geysilega mikil áfengisnotkun hjá
aldurshópnum frá 16 til 20 ára.
Hún virðist hefjast um leið og
unglingar koma í framhalds-
skólana og þar virðist vera mikill
félagslegur þrýstingur."
NÝ úrræði varðandi húsnæðismál
fatlaðra vora kynnt á fundi félags-
málaráðherra í gær, þar sem m.a.
kom fram að tekið verður í notkun
nýtt húsnæði með rýmum fyrir 34
einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu
og Reykjanesi á næsta ári, og að
þeim verði fjölgað a.m.k. um 60
næstu tvö árin.
Á fundinum skrifuðu Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra og Helgi
Hjörvar, formaður Hússjóðs Ör-
yrkjabandalagsins, undir nýjan
samning um húsnæðismál fatlaðra,
þar sem gert er ráð íyrir að Hús-
sjóður ÖBÍ taki að sér að láta félags-
málaráðuneytinu í té sérhæft hús-
næði á næstu tveimur árum í
Reykjavík fyrir 17 fatlaða einstak-
linga í þremur sambýlum.
Samningur þessi er í framhaldi af
undirritun viljayfirlýsingar félags-
málaráðuneytisins og Hússjóðs Ör-
yrkjabandalagsins í byrjun desem-
ber, um að hefja formlegt samstarf í
húsnæðismálum fatlaðra. Markmið-
ið er að mæta þörf fatlaðra fyrir
sambýli í samræmi við skýrslu
starfshóps félagsmálaráðuneytisins
frá nóvember 2000 um búsetu fatl-
aðra. Samstarfið felur í sér að Hús-
sjóður lætur í té húsnæði fyrir sam-
býli fatlaðra, sem íbúðalánasjóður
veitir lán til að kaupa og félagsmála-
ráðuneytið tekur að sér að reka. Með
Morgunblaðí/Þorkell
Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Helgi Hjörvar, formaður Hús-
sjóðs ÖBI, undirrituðu nýjan samning varðandi úrræði í húsnæðismál-
um fatlaðra. Þeim á hægri hönd er Björn Sigurbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.
þessu fyrirkomulagi er stefnt að því
að mæta allri þörf fyrir sambýli fatl-
aðra á næstu fimm áram.
Samkvæmt samningnum sem
undirritaður var í gær mun Hússjóð-
ur útvega félagsmálaráðuneytinu
húsnæði fyrir þrjú sambýli í Reykja-
vík. Fyrsta afhending fer fram 1.
nóvember á næsta ári, en það sam-
býli er ætlað fyrir 5 einstaklinga.
Gert er ráð fyrir að einhverjir íbúar
af Kópavogshæli flytji þangað.
Nýjum rýmum íjölgi um
60 innan tveggja ára
Þá mun Hússjóður ÖBI reisa sér-
hæft sambýli við Barðastaði fyrir sex
einstaklinga sem þurfa mikla aðstoð
og annað við Hólmasund fyrir sama
fjölda. Áætlað er að þessi sambýli
verði afhent 1. apríl 2002, og mun
félagsmálaráðuneytið leigja hús-
næðið til 25 ára.
Ráðherra og formaður Hússjóðs
ÖBÍ undirrituðu einnig nýjan samn-
ing um að Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra í Reykjavík taki á leigu aðra
hæð fjölbýlishúss að Sléttuvegi 9 í
Reykjavík, en þar mun Svæðisskrif-
stofan reka heimili fyrir 9-11 fatlaða
einstaklinga. Þar er um að ræða að-
skildar íbúðir með sameiginlegu eld-
húsi, og er gert ráð fyrir að þetta
húsnæði verði tekið í notkun í apríl á
næsta ári.
Samkvæmt niðurstöðum starfs-
hóps um húsnæðismál fatlaðra skipt-
ist biðlisti eftir sambýlum þannig að
83 einstaklingar era á biðlista í
Reykjavík, 34 á Reykjanesi og 17 á
landsbyggðinni og dreifist sá fjöldi á
fjögur svæði.
I samstarfsverkefni félagsmála-
ráðuneytisins og Hússjóðs ÓBÍ er
gert ráð fyrir að nýjum rýmum fjölgi
alls um 60 fram til október 2002. Á
næsta ári er ætlunin að bæta við 13
nýjum rýmum í Reykjavík, auk
tveggja skammtímavistana og
stækkunar dagvistarinnar á Gylfa-
flöt. Á Reykjanesi er gert ráð fyrir
16 nýjum rýmum á næsta ári og 5
rýmum á höfuðborgarsvæðinu.
Félagsmálaráðherra kynnir ný úrræði í húsnæðismálum fatlaðra
Ný rými fyrir 34 ein-
staklinga á næsta ári