Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skipaður í stöðu for-
stjóra Byggðastofnunar
Iðnaðarráðherra hef-
ur skipað Theodór
Agnar Bjarnason
stöðu forstjóra
Byggðastofnunar frá
1. janúar nk. Stjórn
Byggðastofnunar
mælti með ráðningu
Theodórs í starfið.
I bókun stjórnar-
innar segir: „Stjórnar-
menn telja tvo um-
sækjendur hæfasta,
Theodór A. Bjarnason
og Jón Þórðason. Nið-
urstaða stjórnar er að
leggja til við ráðherra
að Theodór A. Bjarnason verði
ráðinn forstjóri."
Theodór A. Bjarnason er fædd-
ur 20. apríl 1952. Hann lauk versl-
unarskólaprófi frá Verslunarskóla
Islands árið 1972, viðskiptafræði
við Handelshöjskolen í Kaup-
mannahöfn árið 1987 og M.Se.-
Econ frá sama skóla árið 1989.
Sérmenntun hans er á
sviði stjórnunar og
skipulagsfræða.
Frá árinu 1990 hef-
ur Theodór verið að-
stoðarsvæðisstjóri
Norræna fjárfestinga-
bankans í Danmörku.
Áður starfaði hann
sem hagfræðingur hjá
Iðnþróunarsjóði, for-
stöðumaður útlána-
deildar Samvinnu-
banka Islands,
framkvæmdastj óri
hjá KRON, forstjóri
hraðfrystihúss Bíldu-
dals og sveitarstjóri á Bíldudal.
Eiginkona Theodórs er Ágústa
ísafold Sigurðardóttir, félagsfræð-
ingur.
Alls sóttu 14 um stöðu Byggða-
stofnunar. Samkvæmt lögum um
stofnunina skipar iðnaðarráðherra
í starfið til fimm ára að fenginni
tillögu stjórnar stofnunarinnar.
Forstjóri Hollustu-
verndar ríkisins
Umhverfisráðherra,
Siv Friðleifsdóttir, hef-
ur ákveðið að skipa
Davíð Egilsson for-
stjóra Hollustuverndar
ríkisins frá 1. janúar
2001 til 5 ára.
Davíð hefur B.Sc.-
gráðu í jarðfræði frá
Háskóla íslands og
M.Sc.-gráðu í mann-
virkjajarðfræði frá
Durham-háskóla í
Englandi. Hann hefur
víðtæka starfsreynslu
á verksviði stofnunar-
innar. Hann starfaði
sem deildarstjóri mengunardeildar
Siglingamálastofnunar
ríkisins frá 1991-1995
og hefur starfað sem
forstöðumaður Meng-
unarvamasviðs sjávar
hjá Hollustuvemd rík-
isins frá 1995 til 1999 og
sem forstöðumaður
Mengunarvarnasviðs
Hollustuverndar ríkis-
ins frá 1999. Davíð hef-
ur auk þess starfað í
fjölmörgum opinberum
nefndum og tekið virk-
an þátt í alþjóðasam-
starfi bæði fyrir Holl-
ustuvernd ríkisins og
umhverfisráðuneytið.
Varað við hættu-
legu sælgæti
HOLLUSTUVERND ríkisins,
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Ár-
vekni og Löggildingarstofan hafa
sent frá sér fréttatilkynningu þar
sem fólk er hvatt til að vera á varð-
bergi gagnvart hættulegu sælgæti
um jólin.
Á ámnum 1998-99 komu 28 böm
á slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi vegna aðskotahluta í hálsi en
vitað er að mun fleiri börn hafa
orðið fyrir samskonar slysum hér á
landi. Ekki era til heildartölur fyrir
allt landið yfir slys af þessu tagi en
til Árvekni berst fjöldi tilkynninga
árlega vegna slysa sem orðið hafa
þegar sælgæti hefur staðið í börn-
um. í flestum tilfellum hafa nær-
staddir kunnað skyndihjálp og náð
að fjarlægja aðskotahlutinn fljótt
úr koki barnsins eða barnið getað
losað hann sjálft þannig að ekki
hefur hlotist varanlegur skaði af.
„Hollustuvernd ríkisins, Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur, Ár-
vekni og Löggildingarstofan hafa
unnið verkefni þar sem hugtakið
hættulegt sælgæti er skilgreint,
sérstaklega með tilliti til matvæla
sem eru hönnuð, framleidd og
markaðssett fyrir börn, þ.e.a.s.
sælgæti. Meginmarkmið verkefnis-
ins er að fræða og fjalla um eig-
inleika sælgætis sem geta valdið
hættu s.s. stærð, þyngd og lögun.
Ennfremur að upplýsa almenning
um hvers ber að gæta þegar sæl-
gæti er valið og til hvaða aðgerða
ber að grípa ef aðskotahlutur fest-
ist í koki barns.
Úttekt var gerð á sælgæti sem
selt er hér á landi í lausasölu og
var. það, skoðað. meá tillitLtil Jitaacð-
ar, þyngdar og áferðar. í ljós kom
að mikið af sælgæti sem hér er til
sölu getur verið varasamt. Sú teg-
und sælgætis sem mest hætta er á
að hrökkvi ofan í börn og fullorðna
hefur gjarnan þann eiginleika að
vera hart og/eða sleipt. Hart og
sleipt sælgæti er erfitt að tyggja
og getur það því auðveldlega runn-
ið niður í háls - og staðið þar fast.
Einnig ber að hafa í huga að
sumu sælgæti fylgja lítil leikföng
sem hæfa ekki börnum yngri en
þriggja ára og eru þau merkt með
merki,“ segir í tilkynningunni.
-----------------
Skipaður
í orðu-
nefnd
FORSETI íslands hefur að tillögu
forsætisráðherra skipað Jón Helga-
son, fyirverandi ráðherra og alþing-
ismann í orðunefnd Hinnar íslensku
fálkaorðu í stað Indriða G. Þor-
steinssonar, rithöfundar, sem lést
fyiT á þessu ári.
Nefndina skipa að öðra leyti: Ás-
geir Pétursson, fyrrverandi bæjar-
fógeti, formaður, Hulda Valtýsdótt-
ir, blaðamaður, Sigmundur Guð-
bjarnason, prófessor og Stefán L.
Stefánsson, forsetaritari, sem jafn-
framt er orðuritari. Varamaður er
Guðný Guðmundsdóttir, konsert-
meistari. ... .*****___
Morgunblaðið/Kristj án
Stelpurnar sem þátt tóku í jólasýningn Fimleikaráðs Akureyrar sýndu skemmtileg tilþrif.
Jólasýning Fimleikaráðs
ÞAÐ ríkti sannkölluð hátíðar-
stemmning á jólasýningu Fimleika-
ráðs Akureyrar í Glerárskóla ný-
lega. Þar sýndu yngstu iðkendumir
foreldrum sínum og systkinum listir
sínar við mikinn fögnuð viðstaddra.
Ekki voru allir þátttakendurnir há-
ir í loftinu en allir gerðu sitt besta
og höfðu gaman af. Töluverður
fjöldi stúlkna æfir fimleika hjá FRA
á hvetjum vetri en heldur fer lítið
fyrir strákunum í þessari íþrótt.
Óvíst með opnun keilu- og spilasalar á Akureyri
Erfiðlega gengur að
fjármagna verkefnið
ALLS óvíst er að keilu- og spilasal-
ur verði opnaður á Akureyri næsta
sumar eins og til stóð, þar sem erf-
iðlega hefur gengið að fá fjármagn
til verkefnisins. Einkahlutafélagið
Keilusalurinn ehf. festi nýlega
kaup á um 750 fermetra húsnæði
við Dalsbraut 1, þar sem fyrirhug-
að var að opna keilu- og spilasal
næsta sumar. Áætlaður heildar-
kostnaður við verkefnið er um 65
milljónir króna.
Jóhannes Valgeirsson einn eig-
enda Keilusalarins sagði að með
kaupum á húsnæðinu hefðu að-
standendur félagsins talið að
stærsta vandamálið væri yfirstað-
ið, enda húsnæðið á besta stað í
bænum. Hann sagði að í kjölfarið
hafi verið leitað eftir fjármagni í
verkefnið, hjá Akureyrarbæ, ein-
staklingum, fyrirtækjum og sjóð-
um en mönnum hafi orðið lítið
ágengt. Bæði áhættufjárfestinga-
sjóðurinn Tækifæri og Nýsköpun-
arsjóður atvinnulífsins höfnuðu
þátttöku. Jóhannes sagði að Tæki-
færi hafi hafnað umsókn félagsins,
þar sem sjóðurinn þyrfti að fá 20%
arðsemi á sitt fjármagn og Ný-
sköpunarsjóðurinn á þeim forsend-
um að þessi starfsemi væri í sam-
keppni við aðra starfsemi í bænum
m.a. sjoppur.
Ýmsir hafa áhuga
á húsnæðinu
„Það að svona sjóðir og ég nefni
þá sérstaklega Tækifæri, skuli gefa
neikvætt svar er ákveðinn dómur
fyrir okkur og af hverju ættu þá
aðrir að leggja í þetta fjármagn.
Atvinnuþróunarfélagið vísaði okk-
ur á Tækifæri og taldi þetta kjörið
verkefni fyrir sjóðinn en það gekk
ekki. Við erum því í pattstöðu og
veltum fyrir okkur næstu skref-
um.“ Jóhannes sagði allt eins lík-
legt að hugmyndinni yrði velt út af
borðinu. Húsnæðið hafi kostað
rúmar 40 milljónir króna sem þurfi
að greiðast fyrir vorið. „Það hafa
ýmsir verslunaraðilar lýst yfir
áhuga á húsnæðinu og því eins lík-
legt að við seljum það hæstbjóð-
anda. En það verður svekkjandi ef
þetta verður ekki að veruleika,
enda er ég búinn að eyða tveggja
ára vinnu í undirbúning."
Hann sagði að þrátt fyrir þá
stöðu sem nú er uppi, hafi allir haft
mikla trú á þessu verkefni, alla
vega í orði. Mikið hafi verið rætt
um Akureyri sem ráðstefnu- og
ferðamannabæ, þar sem nauðsyn-
legt sé að bjóða upp á fjölbreytta
afþreyingu. Því séu það mikil mis-
tök ef ekki finnst farvegur fyrir
þetta verkefni.
Morgunblaðið/Kristján
Mynd-
skreyttur
flutningabíll
FYRIRTÆKIÐ Sandblástur og
málmhúðun hf. á Akureyri hefur
fengið afhentan nýjan og öflugan
flutningabfl af gerðinni MAN. Bíll-
inn er af nýrri kynslóð MAN vöru-
bifreiða og er þetta fyrsti bíllinn
sem afhentur er Akureyringum.
Flutningabfllinn er þjónustubíll fyr-
irtækisins við höfuðborgarsvæðið
og flytur vörur til og frá Reykjavfk,
auk þess að losa vörur á þeirri leið.
Bíllinn er skreyttur myndum frá
Akureyri líkt og fyrri bifreið fyr-
irtækisins, sem vakti athygli hvar
sem hún kom. Sverrir Torfason bíl-
sljóri er til hægri en Þorsteinn Jós-
epsson frá Kraftbflum ehf. til
vinstri.