Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Vildarklúbbur Flugleiða og Hagkaups
Tilboðsverslun
á N etinu
VILDARKLÚBBUR Flugleiða hef-
ur sett á stofn tilboðsverslunina
Vai.is í' samvinnu við Hagkaup.is.
Fyrstu tilboðin voru send út í síð-
ustu viku og fengu um sextíu þús-
und félagar í Vildar- og Netklúbbi
Flugleiða sendan tölvupóst með
kynningu á þjónustu Val.is. Að
sögn Halldórs Bachmanns, for-
stöðumanns Val.is, er hér á ferð-
inni tilboðsverslun sem gerir
félögum kleift að safna ferða-
punktum um leið og þeir taka til-
boðum á Netinu. Flugleiðir og
Hagkaup hafa ásamt Nýherja og
Islensku vefstofunni unnið náið
saman að því að þróa Val.is.
Mjög góðar viðtökur
I samvinnu við Hagkaup.is býð-
ur Val.is vörur með miklum af-
slætti frá almennu verði auk
ferðapunkta í kaupbæti. Halldór
segir að þetta sé hægt vegna mik-
ils fjölda félaga, hagstæðra samn-
inga og lágs tilkostnaðar og við-
brögðin hafi verið framar vonum.
Á Val.is voru til dæmis í boði 14
tomma sjónvarpstæki á 9.900
krónur sem gáfu auk þess 1.000
ferðapunkta í Vildarklúbbnum en
almennt verð er 14.895 krónur.
Alls voru 200 tæki boðin til sölu og
seldust þau upp á örfáum klukku-
timum. Halldór segir að vegna
fjölda áskorana hafi verið ákveðið
að fjölga þeim sjónvarpstækjum
sem upphaflega stóðu til boða en
þar sem 14 tomma tækin eru upp-
seld hafi í staðinn verið tilboð á 20
tomma sjónvörpum en þau kosta
13.900 auk tvö þúsund ferða-
punkta í kaupbæti en almennt
verð er 19.895. Alls voru 100 slík
tæki boðin til sölu og er skemmst
frá því að segja að þau seldust
einnig öll á örfáum klukkuti'mum.
Halldór segir að vegna þess tíma
sem taki að senda vörur sé nú ekki
lengur hægt að panta vörur sem
eigi að berast fyrir jólin.
Val.is starfar eingöngu á Netinu
og verða tilboð aðeins kynnt með
tölvupósti til félagsmanna. Þegar
HANDELSBANKEN í Svíþjóð hef-
ur keypt sænska tryggingafélagið og
lífeyrissjóðinn SPP fyrir um 60 millj-
arða íslenskra króna, að því er m.a.
kemur fram í Dagens Industri.
Með kaupunum eykst fjármagn í
umsjón Handelsbanken úr um 700
milljörðum í yfir 2.000 milljarða
króna. Markmið bankans er einnig
að ná sem flestum af 610.000 við-
skiptavinum SPP í viðskipti við
bankann.
Hlutdeild Handelsbanken á mark-
aði fyrir líftryggingar og lífeyris-
greiðslur eftir sameininguna við
SPP verður um 20%, þ.e. sú önnur
mesta í Svíþjóð. Á vef Financial Ti-
mes kemur fram að samruninn auki
möguleika á að samþætta banka- og
tryggingaþjónustu og Handelsban-
ken eigi möguleika á að verða
stærsti viðskiptabankinn á sænska
lífeyrissjóðamarkaðnum.
Forstjóri sænska Handelsbanken,
Ame Mártensson, er ánægður með
kaupin á tryggingafélaginu SPP og
segir í samtali við Aftenposten að
það sé mun betri fjárfestingarkostur
en norska Kreditkassen sem for-
svarsmenn Handelsbanken voru
áhugasamir um á tímabili og gerðu
KYNNINGARFYRIRTÆKIÐ At-
hygli ehf. hefur keypt útgáfurétt á
tímaritinu Ægi og Sjómanna-
almanaki Fiskifélagsins af Fiski-
félagsútgáfunni ehf. Athygli hefur
annast útgáfu Ægis og Sjómanna-
almanaksins fyrir Fiskifélag íslands
frá árinu 1996. Stjóm Fiskifélagsins
ákvað að selja útgáfuréttinn og gekk
til samninga við Athygli eftir könn-
unarviðræður.
Nýir útgefendur Ægis og Sjó-
mannaalmanaksins ætla að hafa
áfram náið samstarf við Fiskifélag
ísland og aðildarfélög þess. Þeir
hyggjast fylgja núverandi ritstjóm-
arstefnu í megindráttum og kapp-
kosta að styrkja Ægi og Sjó-
mannalmanakið enn frekar sem
alhliða upplýsinga- og fagmiðla um
og fyrir sjávarútveginn, að því er
ný tilboð berast fá félagar í Val.is
sendan tölvupóst sem tryggir
þeim forgang að tilboðunum. Til
að fá tilboðin send í tölvupósti
þarf að skrá sig á Val.is en þjón-
ustan er ókeypis og öllum opin.
a.m.k. eitt tilboð í. Verðið á SPP var
um 60 milljarðar íslenskra króna en
Kreditkassen hefði kostað Handels-
banken um 260 milljarða króna.
Mártensson segir að áhugi Hand-
elsbanken á Kreditkassen hafi aldrei
verið eins mikill og áhugi Merita-
Nordbanken sem nú hefur eignast
norska bankann að fullu. Handels-
banken á fyrir norskan banka, Berg-
ensbanken, en Mártensson útilokar
ekki frekari fjárfestingar í Noregi,
Danmörku eða Finnlandi. í Dagens
Næringsliv kemur fram að norska
tryggingafélagið Storebrand hafi
einnig verið meðal nokkurra fyrir-
tækja sem gerðu tilboð í SPP.
Tryggingafélögin tvö hafa átt í sam-
starfi um tíma og eiga m.a. írska
tryggingafélagið Euroben í félagi.
Eignarhaldið verður nú sameigin-
legt með Storebrand og Handels-
banken. írska félagið fékk nýlega
starfsleyfi í Noregi en starfsemin í
Svíþjóð er þegar hafin. Talsmaður
Storebrand segir í samtali við DN að
verðið fyrir SPP hafi reynst of hátt
og virðist það einnig mat fleiri sér-
fræðinga þar sem áður hafði heyrst
að SPP yrði selt fyrir 25-45 milljarða
íslenskra króna.
fram kemur í fréttatilkynningu.
Jóhann Ólafur Halldórsson stjóm-
ar áfram efnisvinnslu og útgáfu Æg-
is í nýrri starfstöð Athygli á Akur-
eyri. Prentvinnsla Ægis er að hluta
þar nyrðra og til viðbótar verður stór
hluti skrifstofuhalds útgáfunnar
fluttur frá Reykjavík til Akureyrar.
Tímaritið Ægir hefur komið út í 93
ár. Yfirbragði blaðsins var breytt í
byrjun árs 2000 og brot þess stækk-
að. Áhersla er lögð á efni sem tengist
útgerð, fiskvinnslu og þjónustu-
greinum sjávarútvegsins.
Sjómannaalmanak Fiskifélagsins
2001 er nýkomið út í 76. sinn og er að
berast föstum kaupendum sínum
þessa dagana. Almanakið er tvískipt
eins og undanfarin ár, þ.e. annars
vegar hefðbundið almanak og hins
vegar skipa- og hafnaskrá.
Fundarlaun
fyrir réttan
starfsmann
Kaupmannahöfn. Morgunblaöið.
• DÖNSK stórfyrirtæki eru farin aö
lýsa eftir nýjum starfskröftum í staö
þess að auglýsa og bjóða há fund-
arlaun fyrir góðan starfsmann.
Tölvufyrirtækin urðu fyrsttil að
greiða fyrir ábendingar en nú hefur
tyggigúmmíframleiöandinn Dandy
boðið starfsmönnum sínum fund-
arlaun að lágmarki sem svarartil
20.000 fsl. kr. fyrir nýliða. Ekkert
hámark er að launum fyrir góðan yf-
irmann. Um 1.000 manns starfa hjá
Dandy og kallast nýja ráðningarfyr-
irkomulagið „Eftirlýst". Kim Henne-
berg, starfsmannastjóri þess, segir
í samtali viö Jyllands Posten kostina
við þessa aöferð vera þá að starfs-
menn fýrirtækisins þekki nýliðana
og geti ábyrgst þá. Nýliöarnir viti
meira um fyrirtækið en ella og áhugi
gömlu starfsmannanna aukist þar
sem þeir þurfi nú að kynna fyr-
irtækið vel.
Dandy hefur að mestu hætt að
auglýsa eftirfólki í dagblöðum en
birtir atvinnuauglýsingar á heima-
sfðu sinni á Netinu og treystir á að
starfsmennirnirfinni nýliða. „í
gamla daga skelltum við auglýsingu
í blöðin án þess að þær segöu nokk-
uð um fyrirtækið. Með því að nota
starfsmennina og Netiö komum við
meiri upplýsingum á framfæri auk
þess sem það er ódýrara en að aug-
lýsa, segir Henneberg, sem fer einn-
ig á milli danskra viðskiptaskóla og
leitar uppi efnilega nemendur.
Að sögn danskra ráögjafafyr-
irtækja eru fundarlaunin að ná fót-
festu í Danmörku en eru þó ekkert í
Ifkingu við það sem gerist í Banda-
ríkjunum. Vara fyrirtækin þó við því
að aöferðin sé notuð eingöngu; hún
reynist vel þegar ráða þurfi fjölda
fólks og það hratt eða þegar veriö
sé að leita að mjög sérhæfðum
starfskrafti. Oft þekkistfólk hins
vegar aðeins utan vinnu, í gegnum
tómstundastarf t.d. og viti því ekki
hvort um gottfagfólk sé að ræða.
Reynist nýliðinn ekki standa sig,
verði sá sem fann hann geröur
ábyrgur. Þessu vísar Henneberg á
bug og segir ábyrgöina liggja hjá
starfsmannahaldinu. Af öðrum fyr-
irtækjum sem greiða fundarlaun má
nefna Ericsson, sem hefur lofaö
100.000 til 200.000 ísl. kr. fyrir
fólk í ákveðnar stöður. Þá hafa
tölvufyrirtækin IBM í Danmörku,
CSC Danmark og Damgaard Data
einnig boðið fundarlaun.
-------UH----------
NRK finnur
ekki yfir-
mann
Ósló. Morgunblaðið.
e SÉRFRÆÐINGAR undrast ekki að
stjórn Norska ríkisútvarpsins, NRK,
eigi t vandræöum með að finna
hæfa manneskju til að gegna starfi
forstjóra NRK. Fyrir mánuói var
greint frá því að íslendingurinn
Kristenn Einarsson hefði afþakkað
starfiö.
í samtali við Dagens Næringsliv
segir Gro Mpllerstad, kölluð
„hausaveiöari", að stjórnin leiti að
manneskju sem sé ekki til. Hún
bendir stjórnarmönnum á að breyta
stefnunni og ráða t.d. þrjár mann-
eskjur til starfans.
Sé það gert þurfi ekki að leita að
mörgum mismunandi eiginleikum í
fari einnar og sömu manneskj-
unnar, en yfirmaður NRK er yfir
rekstri stofnunarinnar ogjafnframt
útvarps- og sjónvarpsstjóri. Að mati
Mpllerstad var það óheppilegt að
Kristenn Einarsson afþakkaði starf-
ið og það verði erfitt fyrir þann sem
verður kallaður til að vera eiginlega
í öðru sæti.
Áætlaö var að Einar Fprde, nú-
verandi yfirmaður NRK, myndi láta
af störfum nú fyrir jólin en því hefur
veriö frestað um óákveðinn tíma
þar sem stjórninni hefur ekki tekist
að ráða eftirmann hans. Taliö er að
erfitt verði fyrir eftirmann Fprdes
að feta í fótspor hans, auk þess
sem NRK á í rekstrarerfiöleikum.
Fékkstu kartöflu
í skóinn?
Snúðu þá vörn í sókn!
Gerðu bara eins og Marentza Paulsen, reykt’ana!
Þú setur kartöfluna í vatn og lætur hana sjóða
svolítið. Svo skaltu salta hana mikið og stinga
henni í reykofn í tvo klukkutíma. Ef þú lendir í
vandræðum með reykofninn skaltu bara finna
einhvern fullorðinn sem er til í að hjálpa þér og
saman getið þið svo borðað sannkallað
■§»*- kóngafæði; reykta kartöflu.
Pínirvinir
íslenskir kartöflubændur
jfi
ÍSLENSK VERÐBRÉF
-fyrít ogfremtl t fjármálmn!
Skráning hlutabréfatengdra skuldabréfa
Útgefandi: íslensk verðbréf hf, Skipagötu 9, 600 Akureyri.
Lýsing á flokknum: Heiti flokksins er 1. flokkur 2000. Bréfin eru tengd þróun NDX vísitölunnar og verður vísitöluálag, ef eitthvað verður, greitt í Bandarikjadölum. Hæsta mögulega greiðsla er 75% af viðmiðunarhöfuðstól í Bandaríkjadölum.
Nafnverð útgáfu: Heildarfjárhæð útgáfunnar er 200.000.000 kr. að nafnverði. Þegar er búið að gefa út 200.000.000 kr að nafnvirði og eru öll bréfin seid.
Gjalddagi: Gjalddagi bréfsins er 15. okt., 2003. Höfuðstóll bréfsins verður greiddur í íslenskum krónum og vísitöluálag í Bandaríkjadölum.
Innköllunarákvæði: Engin
Rafræn skráning: Bréfin eru rafrænt skráð
Skráningardagur: Bréfin verða skráð á VÞÍ þann 27. desember 2000.
Milliganga vegna skráningar: íslensk verðbréf, kt. 610587-1519. Skipagötu 9, 600 Akureyri.
Skráningarlýsingu og önnur gögn má nálgast
hjá íslenskum verðbréfum hf., Skipagötu 9, 600 Akureyri.
Handelsbanken
kaupir trygg-
ingafélag
Ósló. Morgunblaðið.
Athygli kaupir
tímaritið Ægi