Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 30

Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, stokkar upp í ríkisstjórn sinni Radikale miss- ir valdamesta embættið Kaupmannahöfn. Morgunbladið. „BREYTINGARNAR eru í þágu heildarinnar, ekki vantraust á ein- staka aðila, sagði Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dana, þegar hann kynnti nýja ríkisstjóm í gær, þá fjórðu sem hann fer fyrir. Tvö ráðherrahöfuð fjúka við upp- stokkunina og fjórir ráðherrar skipta um embætti, þeirra á meðal Mogens Lykketoft sem færir sig úr stóli fjármálaráðherra yfir í utan- ríkisráðuneytið. Fjórir nýliðar koma inn í ríkisstjómina og í hópi þeirra er að finna mann sem aðeins hefur verið jafnaðarmaður í þijá daga, þótt hann taki nú við ráð- herraembætti fyrir flokkinn, og 27 ára gamlan ráðherra sem verður yngsti kvenráðherra landsins nokkm sinni. Radikale Venstre tap- ar valdamesta embætti flokksins en heldur sama ráðherrafjölda. f>að var brosmildur forsætisráð- herra sem kynnti nýja ríkisstjóm í gær sem hann sagði dæmi um breytingar, framkvæmdavilja og endurnýjun. Honum á hvora hönd sátu konur, sem nú fara með tvö af valdamestu embættunum, fjármála- og efnahagsmálaráðuneytin. „Ég hef mikla trú á peningaviti kvenna, sagði forsætisráðherrann er hann kynnti fyrstu konuna sem sest í stól fjármálaráðherra, Piu Gjellemp, áð- ur atvinnumálaráðherra. Hún á vissulega erfitt verk fyrir höndum þar sem Lykketoft hefur þótt taka fjármálin föstum tökum og hefur mikið til verið þakkaður sá stöð- ugleiki sem ríkir í dönskum fjár- málum. Hvernig Lykketoft tekst svo til í utanríkisráðuneytinu kemur í ljós en vitað var að hann hefur litið embættið hým auga svo sú breyt- ing kom ekki á óvart. Lykketoft er eins og fráfarandi utanríkisráð- herra, Niels Helveg Petersen, sem sagði óvænt af sér í fyrradag, yf- irlýstur Evrópusinni. Hann kvaðst í gær myndu reyna að gera sitt besta til að starfa í þeim þrönga stakk sem fyrirvarar Dana við Maastricht-sáttmálann sníða honum en Helveg Petersen sagði það meginástæðu afsagnar sinnar að hann gæti það ekki leng- ur. Jan Trojborg, nýr vamarmála- ráðherra, mun einnig þurfa að glíma við fyrirvarana á vamarsvið- inu. Var hann í gær varkár í tali um þá, kvaðst munu gera sitt besta til að feta í fótspor fyrirrennarans, Hans Hækkemp, sem nú heldur til Kosovo. Radikale segjast ekki tapa Með brotthvarfi Helveg Petersen missir Radikale Venstre næst-mik- AP Paul Nymp Rasmussen kynnir breytta ráðherraskipan við Amalienborgarhöll í gær. Frá vinstri eru Johannes Lebech, Jan Trojborg, Ole Stavad, Lotte Bundsgaard, Rasmussen, Anita Bay Bundegaard, Pia Gjellerup, Mogens Lykketoft, Frode Sorensen og Arne Rolighed. ilvægasta embætti ríkisstjórnarinn- ar og fær annað minna í staðinn. Marianne Jelved, efnahagsmála- ráðherra og formaður flokksins, vísaði því hins vegar á bug í gær að hann hefði tapað á uppstokkuninni. í hlut Radikale Venstre féllu kirkjumála-og þróunarmálaráðu- neytið en við því síðarnefnda tekur blaðamaðurinn Anita Bay Bunde- gaard. Eins og búist var við var tveimur ráðhermm vikið úr ríkisstjórninni, Jytte Hilden, jafnréttis-, bæjar- og húsnæðismálaráðherra, og Sonju Mikkelsen heilbrigðisráðherra en báðar hafa legið undir mikilli gagn- rýni. Á það hefur þó verið bent að Mikkelsen er sjöundi heilbrigðis- ráðherrann sem situr í rfldsstjórn Nyrap Rasmussen, embættið hefur reynst mörgum of stór biti. Við því tekur maður með traust- vekjandi nafn, Arne Rolighed. Hann hefur mikla reynslu af heil- brigðismálum, var um árabil for- maður sjúkrahússtjómar í Árósum og hefur starfað ötullega að krabbameinsforvömum. Pólitísk reynsla hans er hins vegar tak- mörkuð enda gekk hann í Jafn- aðarmannaflokkinn fyrir þremur dögum. Yngsti ráðherra ríkisstjórnarinn- ar verður svo arftaki Hilden, Lotte Bundsgaard, en hún er aðeins 27 ára, barnaskólakennari frá Óðins- véum. Hún þykir hins vegar hafa til að bera það sem til þurfi í starfið, góðar gáfur, gott skapferli og þekk- ingu á því hvernig fást eigi við vandræðaböm. Amazon.com ★★★★1/2 „Stórbrotin skemmtun." - Kreml.is „Bækur á borð við Fótboltafár eru alitof sjaldséðar. Það er nefnilega millivegur milli King og Kundera. Bækur sem sam- kvæmt skilgreiningunni flokk- ast hvorki til hámenningar né hreinræktaðs léttmetis eru að mínum dómi skemmtilegustu og oft bestu bækurnar. Fótboltafár er millivegur. Frábær bók.” - Stefán Hrafn Hagalín, Strik.is „Snilld" Sonur Mitterrands bendl- aður við spillingarmál París. AFP. JEAN-Christophe Mitt- errand, sonur Francois Mitterrand, fyrrverandi Frakklandsforseta, var í gær hnepptur í gæzluvarð- hald vegna rannsóknar á ólöglegri vopnasölu til Angóla. Mitterrand yngri, sem var ráðgjafi föður síns í Afríkumálum frá 1986- 1992, var yfirheyrður af lögreglumönnum sér- hæfðum í svikamálum. Að sögn heimildamanna AFP-fréttastofunn- ar snemst yfirheyrslumar um meintar mútugreiðslur sem hann á að hafa fengið frá vopnakaupmann- inum Pierre Falcone. I tengslum við rannsóknina var vel þekktur rithöfundur og fyrrver- andi kaupsýslumaður í Frakklandi, Paul-Loup Sulitzer, hand- tekinn í gær. Er hann einnig gmnaður um að hafa þegið greiðslur frá Falcone. Falcone þessi mun vera granaður um að hafa greitt Mitterrand yngri hundmð þúsunda franka, andvirði nokkurra milljóna króna, fyrir að fá aðgang að tengslaneti hans í hinum ýmsu Afríkulöndum í því skyni að auðvelda vopnasölu þangað. Rannsókn var hafm á starfsemi Falcones fyrr í þessum mánuði en hann er sakaður um ólögleg vopna- viðskipti, skattsvik og spillingu. Hann seldi meðal annars rússnesk- an vopnabúnað til Angóla árið 1993 fyrir rúma fjóra milljarða króna. Spænskt „hör- hneyksli“ bloss- ar upp á ný Meðlimur framkvæmdastjórnar ESB þarf að verjast ásökunum Madríd, Brussel. AP, Daily Telegraph. HNEYKSLI sem spænska ríkis- stjórnin reyndi í fyrra að kveða niður hefur nú blossað upp á ný, eftir að spænskur saksóknari sem sérhæfir sig í spillingarmálum lýsti því yfir á þriðjudag að hann myndi leggja fram ákærur í málinu, sem snýst um að fé var svikið út úr landbúnaðarstyrkjakerfi Evrópu- sambandsins (ESB) til spænskra hörframleiðenda. Saksóknarinn gat þess þó ekki að sinni, gegn hverj- um ákærurnar myndu beinast. Óháð því hverjir verða ákærðir telja spænskir fréttaskýrendur að málið sé hið vandræðalegasta fyrir spænsk stjórnvöld. Og það getur reynzt einum varaforseta fram- kvæmdastjórnar ESB, Loyola de Palacio, skeinuhætt, en hún var landbúnaðarráðherra í spænsku ríkisstjórninni frá 1996 til 1999. Innan framkvæmdastjórnarinnar er hún ábyrg fyrir samgöngu- málum. Mikið af uppskerunni aðeins til á pappírnum Það var eitt af síðustu verkum Palacio í embætti landbúnaðarráð- herra Spánar áður en hún flutti til Bmssel að lýsa því yfir að „hör- hneykslið“ væri búið mál eftir af- sögn tveggja embættismanna, sem áttu hlut í búum eða verksmiðjum sem framleiddu og unnu hör, sem styrktur var háum niðurgreiðslum úr sjóðum ESB. Annar þessara embættismanna var yfir þeirri stjórnarskrifstofu í Madríd, sem sá um að beina ESB-styrkjum til spænskra bænda. „Hörstyrkjaáætlun ESB er eitt- hvert versta slys hinnar sameig- inlegu landbúnaðarstefnu sam- bandsins (CAP),“ segir brezka blaðið The Daily Telegraph um málið. Uppmnalega hugmyndin hafi verið sú, að hvetja til rækt- unar hágæðahörs, sem hægt væri að nota til framleiðslu á líni og annarri sérvöru, m.a. til að bólstra bílsæti. Þar sem andvirði um 60.000 kr. voru í boði frá ESB í styrki á hvern hektara sem nýttur væri til ræktunar gæðahörs - sem er hátt í fimm sinnum meira en fæst í niðurgreiðslur fyrir korn- framleiðslu - fóm margir spænskir bændur út í slíka ræktun. Um 91.000 hektarar vom snarlega lýst- ir hörræktarsvæði „með það eitt að markmiði að kría út styrkina" eins og fullyrt er í Daily Tele- graph. Mikið af uppskerunni sem gefin var upp á skýrslum til ESB var aðeins til á pappírnum. Þrír fjórðu hlutar hinnar uppgefnu framleiðslu á unnum hör hurfu. Mikið af sönnunargögnunum brann í dularfullum eldsvoðum í birgðageymslum. Er talið að með þessu hafi árlega verið sviknar allt að 4,7 milljarðar króna út úr styrkjakerfinu, unz framkvæmda- stjórn ESB stöðvaði greiðslurnar í júlí á þessu ári og nýjar reglur tóku gildi. I I i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.