Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. DESBMBER 2000 39
FJÖLMIÐLUN
þeim ófaglegu vinnubrögðum, sem
Hollick og ráðgjafar hans hafa
beitt,“ segir Colson, „og við furðum
okkur á, að þeir skyldu ákveða að
selja þegar þeir gátu hugsanlega
fengið betra verð fyrir hluthafana."
f sex mánuði hjá
samkeppnisyfirvöldum?
Hinir tveir bjóðendurnir, Daily
Mail & General Trust og Press
Holdings þeirra Barclays-bræðra,
eru sama sinnis og í öllum þremur
fyrirtækjunum nota menn slíkt
orðbragð um Hollick, að ekki er
víst, að þætti einu sinni birting-
arhæft í Asian Babes og Nude
Readers’ Wives, klámblöðunum
hans Desmonds.
Hjá United hafa menn þó svarið
á reiðum höndum. Þeir segja, að
hefðu þeir samið við eitthvert fyr-
irtækjanna þriggja, hefði samning-
urinn komið til kasta samkeppn-
isyfirvalda og þar hefði hann getað
tafist í allt að sex mánuði. Eins lík-
legt væri, að á þeim tíma minnkaði
verðmæti Express-blaðanna. Salan
til Desmonds hefði hins vegar verið
einföld og fljótleg afgreiðsla.
Hvað sem þessu líður finnst
helstu blaðamönnunum hjá Ex-
press sem Hollick hafi svikið þá.
Þeir segjast raunar aldrei hafa
skilið hvers vegna hann keypti Ex-
press á sínum tíma því hann hafi
aldrei sýnt fyrirtækinu mikinn
áhuga og aldrei lagt því til nægi-
legt fjármagn. Þá þykja önnur af-
skipti hans af hræringum á blaða-
markaði ekki hafa aukið hróður
hans.
Sumir blaðamannanna telja jafn-
vel, að með sölunni til Desmonds
hafi Hollick verið og nota síðasta
tækifærið til að gera þeim ein-
hverja skráveifu. Ef eitt-
hvert hinna fyrirtækj-
anna þriggja hefði keypt
Express-blöðin, hefði
hagur þeirra líklega
vænkast, en með því að
selja þau Desmond, sem
hefur enga reynslu eða
þekkingu á blaðaútgáfu,
er ekki ósennilegt, að
reksturinn verði erfiðari.
Ef svo fer, getur Hollick
sagt sem svo, að honum
hafi bara tekist vel upp
við reksturinn.
Ekki fer á milli mála,
að Desmond er dauðans
alvara með kaupunum á
Express og sagt er, að hann hafi
sýnt fyrirtækinu meiri áhuga á
fyrstu fjórum dögunum en Hollick
á fjórum árum. Honum er líka um-
hugað um að losa sig við klámrita-
orðsporið og segir
nú fullum fetum, að
hann gefi ekki út
nein klámrit, enda
séu þau bönnuð.
Hann gefi bara út
tímarit fyrir fullorð-
ið fólk. Hann hefur
látið auka prentað
upplag blaðanna um
250.000 á dag og
hefur hrint af stað
auglýsingaherferð í
sjónvarpi fyrir hátt
í 130 milljónir ísl.
kr. Þá ætlar hann
að hætta með fjórar
vefsíður á vegum
blaðanna og nota þann milljarð kr.,
sem við það sparast, í þágu þeirra
sjálfra.
Margar yfirlýsingar Desmonds
þykja þó dálítið barnalegar og
hann segir fullum fetum, að hann
ætli sér að verða nýr Beaverbrook
lávarður og milljarðamæringur að
auki.
Desmond er 48 ára gamall,
sterkefnaður, og fyrrverandi sam-
starfsmenn hans segja, að hann
geti verið mjög heillandi. í raun sé
hann þó „mjög miskunnarlaus mað-
ur, sem lætur stjórnast af löngun í
peninga, upphefð og völd“. Des-
mond segist vera jafnaðarmaður og
mikill Evrópusinni, hampar Tony
Blair en hallmælir William Hague.
Honum finnst samt, að Daily Ex-
press sé allt of vinstrisinnað.
Framtíð Express-blaðanna er
greinilega dálítið óviss um þessar
mundir. Það hefur lengi verið við-
kvæðið hjá blaðamönnum þeirra,
að allt sé betra en Hollick en nú
vita þeir hreint ekki hvað segja
skal.
Richard Desmond
Glæsilegt úrval af
kápum og jökkum
Casmir ull
Verð frá 12.950
Samkvæmisfatnaður
í úrvali
LOVISA
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3A
S(MI 562 6999
LANGUR LAFGAUDAGUR
Drottningin
I, er komin
í jólaskap
KNICKERBOX
\ Gleðileg jol
Fullar búðir af
fallegum jólavörum
fyrir hana.
Heppnir
viðskiptavirtir
fá háisfesti í
jóiagjöf
rum víð þig þvi þú ert lang flottust
Munið gjafakortin
Sendum í póstkröfu
Fallegar gjafaöskjur
iia/ví
I AyUrAVI Gl 117 - SÍMI 511 6665
rjóstahaldari 3.099 kr.
nærbuxur classic eða
g-string 1499 kr.
KNICKERBOX
Laugavegt 62, sími 551 5444
Kringlunni, simi 533 4555
Póstsendum
:auqur A. Moqnússon
GJAFAKORT
Laugavegi 60
s.552 0253
Ísíensí^hönnun oij smiði i 75 ár