Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 55

Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ________UMRÆÐAN________ Hvurs lax er þetta? ÞAÐ er til marks um góðar gáfur að geta skipt um skoðun. Eg hugsaði því með mér, þegar ég rakst á viðtal frá 1988 við Guðmund Val Stefánsson fiskeld- ispostula, að hann hlyti að vera einstakt gáfu- menni. Maðurinn hefur nefnilega sMpt um skoðun á nokkrum helstu grundvallarat- riðum laxeldis. En hvað sagði þessi ágæti herramaður í Mbl. 18. apríl 1988? Það var fyrirsögnin sem vakti fyrst athygli mína: Matfiskeldi mun í auknum mæli flytjast í land. Þetta þótti mér skrýtið miðað við það sem haft hefur verið eftir Guð- mundi á prenti síðustu vikur og mán- uði. Fyrir 12 árum fann hann sjókvíaeldi flest til foráttu og hóf strandeldi upp til skýjanna. Sagði hann meðal annars að Norðmenn hefðu vaxandi áhuga á strandeldi - og hvernig stóð á því? Nú leyfi ég mér að vitna beint í greinina írá 1988: „Þeir þættir sem mæla með strandstöð framyfir sjókvíar eru m.a. þeir, að sögn Guðmundar, að minni smithætta er við strandeldið, betra umhverfi eldisfisksins, auð- veldari stjórnun umhverfisþátta, minni afföll, aukin framleiðslugeta, lægri rekstrarkostnaður, betri gæði, meiri sveigjanleiki með tilliti til eld- istegunda og möguleiM á að yfir- metta vatnið með súrefni, en eftir því sem yfirmettun er meiri verður vatnsþörfin minni.“ Það munar ekM um það! Hér að ofan telur Guðmundur upp nokkra grundvallarþætti sem varða afkomu fiskeldisstöðva og drepur á umhverf- ismál og mengun. Skoðanir mínar á því hvort Stones séu betri en Bítl- arnir geta breyst á 12 árum, en tveir plús tveir eru ávallt fjórir og sólin kemur áfram upp í austri. Ekkert hefur breyst á þessum tíma sem skýrir stökkbreytingu hugarfarsins hjá fiskeldispostulanum. Byggjast vísindi þessara manna einvörðungu á krónutölum og hagn- aðarsjónarmiðum? Kæra þeir sig kollótta um mengun, úrkynjun og sýMngahættu? Rök peningahyggjunnar hljóma oft sannfærandi, ekM síður nú en í aðdraganda fyrra fiskeldisævintýris- ins. Eldisgreifarnir ætla að raka saman peningum og sjá til að almúg- inn í dreifðum byggð- um landsins hafi eitt- hvað við að vera. Hinn 18. nóvember sl. sagði Guðmundur í viðtali við Morgunblað- ið að sjókvíaeldi í Mjóa- firði myndi skapa allt að 100 ný störf og að þetta væri umhverfis- væn stóriðja. Þessi orð hafa eflaust fallið vel í kramið hjá Austfirð- ingum sem hlakka mik- ið til að standa á laxa- planinu með reidda sveðju og afhausa Nor- egslaxinn á forstjóra- launum. íslendingum hefur alltaf þótt svo gaman að vinna í fisM. Nú verða blessaðir Pólverjam- ir líklega sendir heim því að heima- menn krefjast þess auðvitað að fá að sitja að kjötkötlunum. Nokkrum dögum síðar sagði sami maður í sama blaði að gífurleg Laxeldi Ég skora á almenning að láta í sér heyra, segir Börkur Bragi Baldvins- son, og ég skora á Guð- mund Val Stefánsson að skipta aftur um skoðun, hin var miklu betri. áhætta væri samfara fiskeldinu, eng- inn viti hvernig það muni fara. Það er eins og rofi stundum til hjá Guð- mundi, en svo hrökkvi hann í sama farið aftur. Auðvitað veit enginn hvernig þetta fer, en marga grunar að það fari því miður allt á versta veg. I Berufirði ætla greifamir líka að búa til slatta af störfum. Þar verða til hátt í 60 ný störf og íbúar Djúpavogs verða allir ríkir á einu bretti. Þeir þrá það framar öllu öðm að komast í 66°N gallann og fá að slátra laxi á bullandi akkorði. Þetta er allt borð- leggjandi. Sama sem engin mengun, þörungablómi og sníkjudýr bara goðsögur sem aldrei hafa þrifist hér frekar en nasisminn í Þýskalandi - og það sleppur auðvitað ekM eitt ein- asta kvikindi af þessum erfðabreytta laxi. Reynsla annarra þjóða segir okk- ur reyndar að þar séu sníkjudýrin að færa sig upp á skaftið og það kosti stórfé af skattpeningum borgaranna að sporna við mengun frá eldinu. Stórslys hafa orðið þegar hellingur af dekurlaxi sleppur út í villta nátt- úru þar sem hann blandast villtum stofnum og keppii' við þá um fæðu og búsvæði. Að auM hafa sagt mér trillukarlar fyrir austan, sem hafa stundað veiðar í Bemfirði áratugum saman, að planta eigi þessum kvíum beint ofan á einhver gjöfulustu skarkolamið Austfjarða. En hvern varðar um það þegar „umhverfisvæn stóriðja“ er annars vegar? Þetta trillubrölt skilar samfélaginu eystra bara nokkrum hundraðum milljóna króna á ári og er svo sem ekkert sér- lega umhverfisvænt. Hver veit nema karlamir hræki annað slagið út yfir borðstokkinn eða láti eitthvað þaðan af verra vaða ofan í sjóinn? Ég held að öllum hljóti að vera ljóst að sjókvíapostularnir láta stjórnast af skammtímagróðasjónar- miðum. Þeir era ekM þekktir af því að unna verkalýðnum neitt sérstak- lega. Ætlunin er auðvitað að hafa bara nokkra milljarða upp úr krafs- inu og færa sig síðan yfir í næsta fjörð, þegar skíturinn verður of mik- ill, skarkolinn dauður og fólMð flúið af laxaplaninu. 160 ný störf? Það var og- Saga síðustu áratuga sannar að patentlausnir á byggðavandanum duga skammt. Man einhver eftir loð- dýrabúunum og laxeldisævintýrinu hinu fyrra? Man einhver hvernig fór og hvað þetta kostaði þjóðarbúið þegar upp var staðið? Þeir era örvæntingafullir, fram- sóknarráðherrarnir þrír sem mest hafa komið nálægt þessu máli, og skyldi engan undra, flokkurinn er á fallanda fæti og þeir verða dregnir til ábyrgðar áður en langt um líður. Þessir frammámenn bændaflokksins mæra náttúrana í orði en nauðga henni á borði (fýrirgefiðið samlík- inguna). Börnin sem nú eru að fæð- ast munu kunna þeim litlar þakkir fyrir. Hvurs lax er þetta eiginlega? Svarið er: Næstu kynslóða! Ég skora á veiðibændur þessa lands, alla sem unna náttúra Islands og tengjast á einhvern hátt stanga- veiði, að sýna reiði sína og gremju í næstu kosningum. Kjósum ekki aðra eins náttúraníðinga yfir okkur aftur. Ég skora á almenning að láta í sér heyra og ég skora á Guðmund Val Stefánsson að sMpta aftur um skoð- un, hin var miklu betri. Höfundur er kvikmynda- gerðarmaður og fluguveiðimaður. Börkur Bragi Baldvinsson Vitatorg Bilahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. 223 stæði Notið þægindin Notaleg stæði í sex bflahúsum bíða þín í jólaumferðinni. m Q • / FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 55 KrtKc t\C<K Opið til kl. 22:00 í kvöld Skemmtileg stemmning með lifnndi tónlist og jólasveinnr verða ó ferðinni. Veitingostoðir og Kringlubíó eru með opið lengur ð kvöldin og um helgor.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.