Morgunblaðið - 22.12.2000, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað
þarf til?
VIÐ undirritaðir höfum áhyggjur
af börnum okkar sem eru í fram-
haldsskóla. Verkfall framhaldsskóla-
kennara er að fara illa með þessi
börn og deiluaðilar eru að senda
þeim afar sérkennileg skilaboð. Við
erum vissir um að við erum ekki einu
foreldrarnir í landinu sem hafa
áhyggjur af þessu. Það eru ábyggi-
lega þúsundir foreldra út um allt
land sem geta tekið undir með okk-
ur. Við skiljum ekki hvers vegna í
ósköpunum deiluaðilar ná ekki sam-
komulagi og við höfum alvarlegar
áhyggjur af framvindu mála. I raun
erum við argandi illir út í deiluaðila
og skiljum ekki hvað þessi skrípa-
leikur á að ganga lengi.
Þær eru margar spumingarnar
Kennarar
Við biðjum um, segja
Halldór Leví Björnsson,
Jóhann Thoroddsen og
Þorsteinn Ulfar Björns-
son, að börnum okkar
verði sýnd sú virðing að
þessi deila leysist strax.
sem brenna á vörum okkar en það
eru spurningar sem við getum ein-
ungis spurt út í loftið. Það er erfitt að
fá svör frá deiluaðilum því þeir
benda gjarnan hvor á annan. Okkur
fínnst eins og enginn sé ábyrgur í
þessari deilu.
Við spyrjum okkur t.d. hvort það
sé ekki einhver ábyrgð fylgjandi því
að starfa í pólitík eða í stéttarfélög-
um? Gera deiluaðilar sér fulla grein
fyrir því fjárhagslega og andlega
tjóni, sem nemendur og fjölskyldur
þeirra hafa orðið fyrir nú þegar? Þar
sem þessi önn er þegar farin í vask-
inn gera deiluaðilar sér grein fyrir
því hvað tekur við eftir áramót ef bú-
ið verður að semja? Hvað verður um
þá nemendur sem voru búnir að
ákveða að hefja skólagöngu í janúar
og koma að yfírfullum skólum? Hvað
ætla yfirvöld að gera næsta haust,
þegar þeir sem ljúka samræmdu
prófunum í vor vilja hefja nám í
framhaldsskólum? Hvernig verða
gæði þeirrar þjónustu (kennslu) sem
boðið verður upp á eftir verkfall?
Verður það einhver hraðsuða sex
daga vikunnar? Er það ásættanlegt
fyrir nemendur eða foreldra sem í
flestum tilfellum greiða skólagjöld
fyrir börnin sín? Svona gætum við
haldið áfram að spyrja því nóg er af
spurningum.
Við undirritaðir skorum á samn-
ingsaðila að semja ekki síðar en
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 6 M.
UMRÆÐAN
strax. Sýnið þá dirfsku og það þor
sem til þarf. Umfram allt biðjum við
um að börnum okkar verði sýnd sú
virðing að þessi deila leysist strax.
Við aðra foreldra viljum við segja að
við getum ekki setið hjá og látið
deiluaðila senda bömum okkar þau
skilaboð að þau séu hálfgert fyrir-
komuvandamál í þessu samfélagi.
Við þurfum að sýna börnum okkar
stuðning, sýna þeim í verki að okkur
stendur ekki á sama um þau. Til að
sameina krafta okkar til framtíðar
skorum við á alla foreldra framhalds-
skólanema að setja sig í samband við
skrifstofu Landssamtakanna Heim-
ili og skóli og skrá nafn sitt þar og
hvernig hægt sé að ná til þeirra. Um-
fang þess sem við foreldrar emm
megnug að gera ræðst af fjöldanum
og samstöðunni. Sími skrifstofunnar
er 562 7475, fax 552 2721, netfang er
heimskol@heimskol.is.
Höfundar eru feður framhalds-
skólanema.
Fasteignir á Netinu
0mbUs
Tilkynning frá Kirkjugöröum
Reykjavíkurprófastsdæma
Jólaþjónusta starfsfólks
Jól í göröunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogskirkjugarö, Gufuneskirkjugarö
og Suöurgötugarö til þess aö huga aö leiðum ástvina sinna.
Viö munum leitast viö aö leiðbeina ykkur eftir bestu getu.
Þjónustusímar 551 8166 og 587 3325
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 551 8166, og skrifstofan í Gufunesi,
sfmi 587 3325, eru opnar alla virka daga frá kl. 8.30 - 16.00.
Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu og aöfangadag frá
kl. 9.00 til 15.00. Þar veitum viö upplýsingar, gefum leiöbeiningar
um aðhlynningu leiða og afhendum ratkort ef þörf krefur.
Leiösögn og prestsþjónusta
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 10.00 og 15.00, verða
Fossvogskirkja og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin.
Á aöfangadag munu prestar veröa til staöar fyrir þá, sem vilja
staldra viö í dagsins önn. Starfsmenn kirkjugarðanna veröa á
vettvangi í görðunum báöa þessa daga og leiðbeina fólki
frá kl. 9.00 til 15.00.
Æ\
Vkmá
Gleöilega jólahátíð
Kirkjugaröar Reykjavíkurprófastsdæma
http://www.kirkjugardar.is