Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 64
64 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
f
Þýskur
hesta-
hvíslari
með nám-
skeið
HESTAMENN eru nú dðum að taka
hross sín á hús, þrátt fyrir góða tíð,
til að geta farið að ríða út um jólin
eins og hefðin býður upp á hjá
mörgum. Mörg hestamannafelög
eru þegar farin að huga að vetrar-
starfinu, námskciðahaldi og fleira
og er Hestamannafélagið Hörður
með þeim sem fyrst ríða á vaðið. Á
þess vegum verður boðið upp á
tveggja daga námskeið með þýska
„hestahvíslaranum" Gerd Milden-
berger strax eftir áramótin.
Haldin verða tvö námskeið og get-
ur fólk valið um tvenns konar þátt-
töku. Á hvert námskeið verða teknir
inn 8 virkir þátttakendur sem mæta
með hest sem Gerd meðhöndlar og
si'ðan mann og hest saman. Auk þess
verður að hámarki 10 manns boðið
upp á að vera áhorfendur sem taka
þátt í umræðum og skoðanaskiptum
en hafa ekki með sér hest. Fyrra
lámskeiðið hefst miðvikudaginn 3.
anúar kl. 16 og verður á sama tíma
laginn eftir. Seinna námskeiðið
lefst laugardaginn 6. janúar kl. 10
ojg á sama tíma á sunnudeginum.
Ovíst er hvenær námskeiðunum Iýk-
ur á daginn, en það fer eftir verk-
efnum sem liggja fyrir.
Námskeiðin byggja á samspili
manns og hests. Farið verður í
frumtamningu, samskipti og að leið-
rétta vandamál, allt á forsendum
hestsins. Gerd Mildenberger er sér-
fræðingur í margskonar vanda-
málahrossum og því er fólk hvatt til
að koma með slík hross á nám-
skeiðið.
Gerd þessi Mildenberger býr í
smábænum Allenbach í Þýskalandi,
skammt sunnan Moseldals. Hann er
rétt ríflega fimmtugur og hefur
stundað hcstamennsku tæpa þrjá
áratugi. Gerd á einn islenskan hest,
sem er einn þriggja íslenskra hesta
sem voru hans fyrstu hestar. Auk
þess á hann hlut í íslenskri hryssu
sem er hér á landi og tveggja vetra
son hennar. Þá á hann nokkur hross
:0 3
> T3
xl
V- Jc
Q).h
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
í heimilishaldi og iðnaði.
Tíðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, ollu, kíttí, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis.
LYFJA
K. Pétursson ehf
www.kpetursson.net
Landsliðsnefnd LH leggur
fram afreksmannastefnu
Landsliðsnefnd Landssambands hestamanna-
félaga er nú að leggja lokahönd á afreks-
mannastefnu sína. Þetta er gert samkvæmt
nýjum reglum Iþrótta- og ólympíusambands Is-
lands, en öll sérsambönd innan þess þurfa að
vera búin að leggja fram slíkt plagg fyrir næstu
áramót.
Landsliðsnefnd LH hefur sótt um styrki í af-
reksmannasjóð ISI fyrir landslið Islands í
hestaíþróttum. Styrkirnir hafa aðallega verið
notaðir til að greiða kostnað vegna heimsmeist-
aramóta. Að sögn Þrastar Karlssonar formanns
landsliðsnefndar nam styrkurinn fyrir HM 1999
350.000 krónum, en kostnaður við þátttöku í
mótinu var alls um 7 milljónir króna.
Þröstur sagði að nú hefði verið tekin sú
stefna hjá ÍSI að öll sérsambönd skiluðu inn
skriflegri afreksmannastefnu sinni til þess að
hægt yæri að sjá svart á hvítu í hvað styrkirnir
færu. I sjálfu sér væri ekki um neina breytingu
að ræða á þeirri stefnu sem LH hefur farið eft-
ir, en það er að styrkja landsliðið í heild með
það að markmiði að það nái sem bestum ár-
angri í keppni á heimsmeistaramótum. Ekki
verður um að ræða að sækja um styrki í afreks-
mannasjóð fyrir einstaklinga innan greinarinn-
ar, frekar en hjá ýmsum hópíþróttum, svo sem
knattspyrnu og handknattleik.
Nýja landsliðsnefndin hefur haldið einn fund
frá síðasta ársþingi LH og ákvað þá að úrtaka
fyrir HM í Austurríki næsta sumar færi fram
dagana 12. og 13. og 15. og 16. júní nk. Mikið
undirbúningsstarf hefur þegar verið unnið af
gömlu landsliðsnefndinni. Meðal annars hefur
mótssvæðið í Austurríki verið skoðað og búið er
að ganga frá plássi fyrir hesta íslenska liðsins.
Þeir verða eins og venjulega á einangruðu
svæði í útjaðri mótssvæðisins sem verður girt
af og vaktað. Þar verða þeir í básum sem tjald-
að verður yfir. Knaparnir munu hins vegar
gista í 20-30 km. fjarlægð frá mótssvæðinu, en
ekki er um að ræða að fá gistingu nær. Þröstur
sagði að nú væru Flugleiðir, sem er stærsti
styrktaraðili landsliðsins, að kanna hvar mætti
lenda flugvélum með lifandi dýr sem næst
mótssvæðinu.
Hann sagði að enn hefði ekki verið rætt um
hugsanlegan landsliðseinvald og sagðist hann
ekki búast við að ákvörðun um hver það yrði
lægi fyrir fyrr en í febrúar.
af öðrum kynjum þar á meðal Trott-
er-hryssu eða kerrubrokkara sem
töltir.
Gerd hefur stundað svokallaðar
„grænar“ eða hestvænar tamn-
ingaaðferðir sem hann kennir nú.
Þessi fræði lærði hann þjá banda-
rískum hestamanni, Georg James,
og hefur skapað sér gott orð í
Þýskalandi á þessu sviði.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin er að finna á heimasiðu
Hestamannafélagsins Harðar,
www.hestamenn.is.
Ir
sv
Pipar og sait kvarnir,
mikið úrval
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
ÁSTUnD
Morgunblaðið/V aldimar
Nokkru færri hross
flutt út en í fyrra
UTFLUTNINGUR hrossa dróst að-
eins saman á milli áranna 1999 og
2000, þó ekki umtalsvert. AIls hafa
verið flutt út 1.898 hross það sem af
er þessu ári. Ekki er búist við að um
meiri útflutning verði að ræða til
áramóta og nemur samdrátturinn
því 57 hrossum, en árið 1999 fóru út
1.955 hross.
Enn minnkar útflutningur til
Þýskalands og voru flutt þangað 377
hross eða 80 færri en á sama tíma í
fyrra. Athygli vekur þó að samdrátt-
urinn er meiri í útflutningi til Dan-
merkur en þangað fóru 204 hross
sem er 104 hrossum færra en í fyrra.
Flest hross voru seld til Svíþjóðar,
eða 543 hross, sem eru þó 14 hross-
um færra en í fyrra. Mest er aukning
í útflutningi til Noregs. Þangað voru
seld 249 hross á árinu á móti 127 í
fyrra, eða 122 hrossum fleiri. Einnig
eykst sala til Bandaríkjanna um 69
hross, úr 150 í 219.
Flest hross voru seld til Svíþjóðar
eins og áður segir eða 543, 377 til
Þýskalands, 249 til Noregs, 204 til
Danmerkur, 219 til Bandaríkjanna
og 106 til Sviss sem er 41 hrossi
færra en þangað seldust í fyrra.
Land
Austurríki, A
Belgía, B
Kanada, CDN
Sviss, CH
Þýskaland, D
Danmörk, DK
Morgunblaðið/V aldimar
Frakkland, F 2 1 -1 Grænland, Q 4 -4
1999 2000 Mism. Finnland, FIN 71 67 -4 Svíþjóð, S 557 543 -14
23 31 8 Færeyjar, FR 13 16 3 Slóvenía, SLO 1 1
17 6 19 6 2 Bretland, GB Ítalía, I 13 3 11 3 -2 Bandaríkin, USA 150 219 69
147 106 -41 Lúxemburg, L 2 -2
457 308 377 204 -80 -104 Noregur, N Holland, NL 127 60 249 45 122 -15 Heildarfjöldi 19551898 -57
*