Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 66

Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 66
MORGUNBLAÐIÐ 36 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 „Þessi bók er auðlesin og skýr. Allt vínáhugafólk getur haft gagn af, bæði það sem er að hefja „meðvitaða" léttvíns- drykkju og það sem lengra er komið. Matarkaflarnir skilja eftir vatn í munni." Einar Thoroddsen, Morgunblaðið. Heimur VÍT^SINS Heimur vínsins Tilboð til áskrifenda Morgunblaðsins Fyrsta (slenska alfræðiritið um vín og vínmenningu er komið út. Bókin er m.a. byggð á vinsælum greinum Steingríms Sigurgeirssonar, vín- og matarsérfræðings Morgunblaðsins. Þetta er glæsileg bók sem endur- speglar hrífandi veröld vínmenningarinnar og er prýdd á annað hundrað litljósmyndum. Salka gefur bókina út í samvinnu við Morgunblaðið. Nú gefst áskrifendum Morgunblaðsins einstakt tækifæri til að eignast bókina á tilboðsverði. Tilboðsverð er 3.900 kr. en leiðbeinandi verð er 5,480 kr. Áskrifendur geta komið í Morgunblaðshúsið í Kringlunni 1 eða keypt bókina í Moggabúðinni á mbl.is. Fáðu nýja sýn á veröld vínsins! Salka FRÉTTIR Bifreið afhent í jóla- tombólu Skógarsjóðsins SKÓGARSJÓÐURINN afhenti á dögunum einn af aðalvinningum í jólatombólu sinni, glæsilega bifreið frá Bflheimum, Opel Vectra að verðmæti um 1.660.000 kr. Vinn- ingshafinn heitir Hólmfríður Gísla- dóttir, segir í fréttatilkynningu. Þess má geta að annar bfll sömu gerðar er enn þá á ósóttum miða í jólatombólu Skógarsjóðsins ásamt mörgum öðrum vinningum, svo sem utanlandsferðum, breiðtjalds- sjónvörpum, Playstation 2 og fleira því vinningur er á hverjum miða. Jólatombólan er meginfjáröfl- unarleið Skógarsjóðsins. Afrakstr- inum er varið til Skógræktar í öll- um landsfjórðungum. I því skyni hefur sjóðurinn varið 12 milljónum króna í styrki til yfir 60 ein- staklinga og skógræktarfélaga og nýlega gerði sjóðurinn stærsta uppgræðslusamning sem gerður hefur verið hérlendis um upp- græðslu 1.300 hektara lands í Þjórsárdal. Um það verkefni verð- ur leitað til stórfyrirtækja um sam- starf. Fagna nið- urstöðu Hæstaréttar GEÐH JÁLP hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „Félagið Geðhjálp fagnar niðurstöðu Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags íslands gegn Tryggingastofnun ríkis- ins. Geðhjálp gleðst fyrir hönd skjólstæðinga sinna og allra ör- yrkja yfir því að nú skuli loks- ins hafa reynt á stjórnarskrár- bundinn réttindi þeirra og það misrétti sem þeir hafa búið við undanfarin ár vegna skertrar tekjutryggingar leiðrétt. Félagið vill minna á að hátt hlutfall allra öryrkja eru það vegna geðraskana. Geðsjúk- dómar færast stöðugt ofar í lista þeirra sjúkdóma sem valda mestri örorku og eru samkvæmt Alþjóð heilbrigðis- málastofnuninni nú í öðru sæti. Því er dómurinn mikið fagnað- arefni fyrir öryrkja en hvatning til okkar sem vinnum að hags- munagæslu og forvörnum. “ Rúmfatalag- erinn gefur jolagjof RÚMFATALAGERINN hefur ákveðið að gefa meðferðarheimili Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti í Mos- fellsbæ veglega jólagjöf. Jólagjöfin mun innihalda rúm, dýnur, náttborð, skápa og parket, alls að verðmæti 1,5 milljónir kr. Þessi gjöf mun bæta úr brýnni þörf en vegna þröngs fjárhags hefur eðlileg endurnýjun ekki verið mögu- leg. Lokadagur klinksöfnunar LOKADAGUR Kærleiksklinksöfn- unar Landsbankans er í dag, föstudaginn 22. desember. Þetta er í annað sinn sem Landsbankinn hefur staðið fyrir þessari söfnun til styrktar Um- hyggju, félagi sem vinnur að bætt- um hag sjúkra barna og fjöl- skyldna þeirra. Síðast skilaði sú söfnun 8 milljónum króna til þessa félags. --------------- Bifreið Byrg- isins á ferð um jólin LÍF - BIFREIÐ Byrgisins verður á götum höfuðborgarsvæðisins um jólahátíðina, þ.e. á Þorláksmessu, að- fangadag og annan í jólum. Um borð í bifreiðinni verður kaffi, kakó, súpur og smurt brauð. Hægt verður að setjast inn í bifreiðina og fá ráðgjöf varðandi áfengis- og/eða fíkniefnavanda. --------------- LEIÐRÉTT 45 milljónir í grein Sveins Indriðasonar, sem birtist í Bréfi til blaðsins í gær, kom fram sú villa, að í söfnuninni 1998 til byggingarframkvæmda á Reykja- lundi hefðu safnast 5 milljónir króna. Það er rangt, því alls söfnuðust 45 milljónir. Þetta leiðréttist hér með. Vegarlagning hófst 1929 Það skal áréttað, vegna fréttar um lagningu nýs vegar milli Borgar- fjarðar og Dala, að lagning núver- andi vegar hófst árið 1929 og var vegurinn formlega opnaður 1932.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.