Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 6'Í
FRÉTTIR
Síðasta laugardag mættu jólasveinar niður á Akratorg til að ná í pakka sem verslunareigendur höfðu komið
fyrir f jólatrénu þar. Jólasveinarnir þurftu að nota körfubíl við verkið.
Jólastemmning á Akranesi
ÍÞRÓTTABÆRINN Akranes hefur
verið með Qölbreytta jóladagskrá
nú í desember. Jólabingó og jóla-
land er á staðnum og 2. desember
var jólatrésskemmtun í tengslum
við að ljósin voru tendruð.
Sl. laugardag mættu jólasveinar
á Akratorg til að ná í pakka sem
verslunareigendur höfðu komið
fyrir í jólatrénu. Jólasveinarnir
þurftu að nota körfubfl Akranes-
veitu til að ná þeim niður. Coca-
Cola-bíll var á svæðinu og deildi
einnig út gjöfum til bamanna.
Jólasveinar hafa mætt á ólíkum
stöðum í bænum og gefið bömum
gjafir. Nú sfðast vom þeir á ferð-
inni á bókasafninu þar sem þeir
lásu jólasögur fyrir bömin.
Á Þorláksmessu verður einnig
mikið um að vera á Akranesi. Versl-
anir verða opnar til kl. 23 og því má
búast við mikilli umferð gangandi
og akandi vegfarenda. Meðal þeirra
sem verða á ferð eru jólasveinar og
sönghópur og verða þeir á röltinu
milli ld. 14 og 18 og aftur kl. 20-23.
Lukkukista jólasveinanna er á
sínum stað í jólalandinu, en um 400
böra hafa sett nöfn sín í kistuna.
Nýtt Kjarvalskort
LITBRÁ hefur gefið út nýtt kort af
málverki eftir Jóhannes Kjarval.
Málverkið er 102 x 152 sm að stærð
og heitir Skjaldmey. Það er málað
1961 og er í eigu Listasafns Reykja-
víkur.
Þetta er 18. kortið sem Litbrá gef-
ur út eftir Kjai’val. Einnig hefur
Litbrá gefið út 8 ný jólakort með
vetrarmyndum eftir Rafn Hafnfjörð.
Kortin eru til sölu í flestum bóka-,
blóma- og gjafavöruverslunum.
Styrktarfélag
vangefínna
Drætti
frestað í
happdrætti
VEGNA seinkunar í undirbúningi
happdrættis Styrktarfélags vangef-
inna hefur verið ákveðið að fresta
drætti til 15 janúar nk., en hann átti
venju samkvæmt að fara fram 24.
desember.
Vonast er til að þessi frestur muni
nýtast velunnurum félagsins til að
sýna stuðning í verki með kaupum á
happdrættismiðum, segir í fréttatil-
kyninngu. Vinningar í happdrættinu
eru þrjár Nissan Primera-bifreiðir
frá Ingvari Helgasyni, hver að verð-
mæti um 1.700 þúsund kr.
Maimvernd andvig samn-
ingum sjúkrahúsa við IE
MANNVERND hefur sent frá sér
eftirfarandi vegna samninga fram-
kvæmdastjórna nokkurra sjúkra-
húsa við dótturfyrirtæki deCODE
Genetics Inc.:
„Samningar þessir hafa verið
gerðii- í andstöðu við marga starfs-
menn sjúkrahúsanna. A mörgum
þessara sjúkrahúsa hafa allir lækn-
arnir lýst andstöðu við samninginn,
enda felur hann í sér brot á siða-
reglum lækna. Læknamir hafa sam-
þykkt ályktanir gegn samningnum
og auk þess hafa mai’gir læknanna
lýst því yfir skriflega að þeir muni
ekki senda gögn í væntanlegan
gagnagrunn nema með samþykki
sjúklings (sjá www.mannvernd.is).
Hér hafa aftur á móti viðskiptahags-
munir haft meira vægi en réttindi
sjúklinga.
Athyglisvert er að sami aðilinn,
sérleyfishafinn, er alls staðar í ferl-
inu. Öryggið er ekki mikið ef einn og
sami aðilinn sér um gerð hugbúnað-
ar, skráningu, öryggismál og eftirlit.
Hagsmunaárekstrar munu ekki líð-
ast lengur, hvorki hér á landi né í ná-
grannalöndum.
Samningar standa enn yfir milli
deCODE og Læknafélags Islands
um hvernig standa skuli að þessu
máli. Samkomulagið sem sjúkrahús-
in hafa nú gert við sérleyfishafann er
vanvirðing við samningaumleitanir
Læknafélagsins og við landlækni og
aðra sem hafa reynt að finna leið til
sátta. Ljóst er að um sýndarviðræð-
ur hefur verið að ræða af hálfu sér-
leyfishafans. Tillaga landlæknis um
takmarkað samþykki sjúklings er að
engu höfð.
Aðalfundur LÍ ályktaði gegn því
fyrirkomulagi sem nú er haft til
grundvallar í samningum við sjúkra-
húsin. Ástæðan fyrir andmælunum
er að um er að ræða brot á grund-
vallarmannréttindum um friðhelgi
einkalífsins. Fulltníar ríkisstjómar-
innar sem voru viðstaddir undirrit-
unina og hafa knúið á um samnings-
gerðina fyrir hönd eigenda deCODE
eru þannig ábyrgir fyrir broti á rétt-
indum borgaranna.
Sérleyfishafinn og yfirvöld hafa
tekið sér það vald að ráðskast með
viðkvæmustu persónupplýsingar
sem til eru, án samráðs við eigendur
þeirra, sjúklingana, eða nokkurn
annan utan ríkisstjórnar. Það virðist
gleymast í þessu máli að það eru
læknamir sem skrifa sjúkraskrárn-
ar. Sjúklingarnir treysta þeim fyrir
viðkvæmum upplýsingum vegna
þess að læknamir hafa þagnar-
skyldu. Læknar hafa siðareglur sem
banna þeim að upplýsa aðra um
trúnaðarmál, hvað þá að afhenda á
silfurfati allar upplýsingar í öllum
sjúkraskrám landsins erlendu fyrir-
tæki. Trausti sjúklinga til lækna og
vísinda er stefnt í hættu með samn-
ingum þeim sem nú hafa verið gerð-
ir.
Þetta sýnir hversu mikilvægt það
er að láta dómstóla skera úr um
hvort gagnagrunnslögin séu brot á
stjórnarskrá landsins og alþjóðleg-
um sáttmálum. Mannvernd hyggst
gera það. Líkur eru á að slíkt dóms-
mál fari sömu leið og önnur nýleg
mál þar sem lög þessarar ríkis-
stjórnar hafa verið dæmd ógild.
Því verður ekki trúað fyrr en á
reynir að mannréttindabrot þau sem
felast í gerð gagnagrunnsins verði
látin viðgangast, jafnvel þótt um-
stangið kringum gagnagrunninn
verði „mikil lyftistöng íyrir bæjarlíf-
ið á Akureyri“.
Guðrún Guðlaugsdóttir kveður sér hér
eftirminnilega hljóðs með djarfri og
átakamikilli sögu Margrétar Hannesdóttur.
Örlagaþræðir Margrétar eru ofnir af mikilli
snilld; landflótta Kúrdi, ást í meinum og
leyndarmál fortíðar gera frásögnina ótrúlega
spennandi.
Guðrún hefur hér skrifað fjölþætta
nútímasögu og hún veigrar sér ekki við að
taka á viðkvæmum málum samtímans.
(órólegum takti er margslungin saga konu
sem að lokum neyðist til að velja - og val
hennar kemur á óvart.
„Stórskemmtileg bók“
Vilborg Halldórsdóttir, Tvípunkti
(í órólegum takti er ein þeirra bóka)
sem taka af mestri alvöru og
af raunsæi á þeim tímum sem
við erum að lifa í dag...
Súsanna Svavarsdóttir
Morgunblaðinu 6. desember 2000
i
„...frásagnarhátturinn er hóf-
stilltur og laus við væmni og
málskrúð.
Ingi Bogi Bogason Morgunblaðinu
6. desember 2000
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR.
73?
bækur fyrir alla
í ÓRÓLEGUM TAKTI í ÓRÓLEGUM TAKTI í ÓRÓLEGUM TAKTI í ÓRÓLEGUM TAKTI í ÓRÓLEGUM TAKTI f ÓRÓLEGUM TAKTI í ORÓLEGUM