Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 72
MORGUNBLAÐIÐ
v? 72 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
DAGBÓK
í dag er fóstudagur 22. desember,
357. dagur ársins 2000. Orð dagsins:
Sé því líkami þinn allur bjartur og
hvergi myrkur í honum, verður
hann allur í birtu, eins og þegar
lampi lýsir á þig með loga sínum,
(Lúk. 11,36.)
Skipin
Reykjavikurhöfn:
Vigri, Goðafoss, Ingar
Iversen, Remöy, Vil-
helm Þorsteinsson, Ge-
vostar, Ako og Faxi RE
koma í dag.
Fréttir
Bdkatíðindi 2000.
Númer föstudagsins 22.
desember er 8096.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar not-
uð frímerki, innlend og
útlend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi. Utlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM og K, Holtavegi
28, Reykjavík, og hjá
' Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
Mannamot
Aflagrandi 40. Bingó
kl. 14, Reynir Jónasson
leikur jólalög í kaffitím-
anum. Allir velkomnir.
Árskógar 4. Perlu- og
kortasaumur kl. 9, tai-
chi leikfimi kl. 11.15,
smíðastofa kl. 13, bingó
kl. 13.30, hár- og fót-
snyrtistofur opnar ld. 9.
Bólstaðarhlfð 43. Hár-
greiðsla kl. 8, böðun kl.
8.30, bókband kl. 9-12,
handavinna og fótaað-
gerð kl. 9-16, vefnaður
og spilað í sal kl. 13.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Hár-
greiðslustofan opin kl.
9, leikfimi kl. 9.45.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Böðun kl.
8, hársnyrting kl. 10,
„opið hús“ kl. 13, spiiað
á spil.
Gullsmári Gullsmára
13. Starfsemi Gullsmára
verður sem hér segir
um jólin. Lokað verður
dagana 23., 24., 25., 26.,
27. og 28. desember.
Föstudaginn 29. des-
ember verður mat-
arþjónustan opin eins
og venjulega, það þarf
að panta mat fyrir kl.
10. Fótaaðgerðastofan
verður opin 27., 28. og
t' 29. desember. Hár-
greiðslustofan verður
opin 28., 29. og 30. des-
ember. Starfsemi Gull-
smára hefst aftur að
nýju þriðjudaginn 2.
janúar 2001. Leikfimi
byrjar miðvikudaginn 3.
janúar á venjulegum
tíma.
Kynningardagur verður
miðvikudaginn 3. janúar
kl. 14-16. Skráning á
námskeið fer fram á
sama tíma. Fólk er
-» hvatt til að mæta og
Koma með tillögu um
hvað hægt er að gera í
félagsheimilinu. Heitt á
könnunni og heimabak-
að meðlæti.
Gjábakki, Fannborg 8.
Málm- og silfursmíði kl.
9.30, gler- og postulíns-
málun kl. 13.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alia virka daga frá
ki. 10-13.
Matur í hádeginu. Ath.
Skrifstofa FEB verður
lokuð á milli jóla og ný-
árs. Opnum aftur
þriðjudaginn 2. janúar
kl. 10. Línudanskennsla
Sigvalda verður mið-
vikudaginn 27. desemb-
er kl. 19.15. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB í
síma 588-2111 frá ki.
10-16.
Gerðuberg, féiagsstarf.
Vinnustofur opnar kl.
9-16.30, spilasalur op-
inn frá hádegi. Miðviku-
dag, fimmtudag og
föstudag milli jóla og
nýárs er opið frá 9-
16.30 spiiasalur opinn
frá hádegi, heitt á könn-
unni. Allar upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575-7720.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10.30 á laug-
ardögum.
Hraunbær 105. Bað-
þjónusta og útskurður
kl. 9-12, hárgreiðsla kl.
9-17, bútasaumur kl. 9-
12.30, leikfimi kl. 11 og
spurt og spjallað.
Hvassaleiti 56-58. Bað-
þjónusta og hárgreiðsla
kl. 9, bútasaumur kl. 9-
12.30, leikfimi kl. 11.
Hæðargarður 31. Hár-
greiðsla kl. 9, göngu-
hópur kl. 9.30 og 14.
Norðurbrún 1. Hár-
greiðsla kl. 9, útskurður
kl. 9-12.30, boccia kl.
10.
Vesturgata 7. Fótaað-
gerðir og hárgreiðsla ki.
9, handavinna kl. 9.15,
sungið við flygilinn ki.
13, dansað í aðalsal ki.
14.30 - Sigvaldi.
Vitatorg. Smiðjan og
hárgreiðsla kl. 9, bók-
band og morgunstund
kl. 9.30, leikfimi og fóta-
aðgerð kl. 10.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Ailir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll kl. 10.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félagsheim-
ilinu Leirvogstungu.
Kaffi og meðlæti.
Minningarkort
MS-félags íslands.
Minningarkort MS-
félagsins eru afgreidd á
Sléttuvegi 5, Rvk, í
síma 568-8620 og mynd-
rita s. 568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöidum stöðum: í síma
588-9220 (gíró) Hoits-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafnarfjarð-
arapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á ís-
landi eru afgreidd í
síma 552-4440, hjá Ás-
laugu í síma 552-7417
og hjá Nínu í síma 564-
5304.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna,
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9—13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótek-
um. Gíró-og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arféiags vangefinna, s.
551-5941 gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp. Minningarsjóður
Jóhanns Guðmunds-
sonar læknis. Tekið á
móti minningargjöfum í
síma 588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Minningarkort Rauða
kross íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavikurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 5691222, auglýsingar 5691110, skrifstofa 5681811, gjaldkeri 5691115. NETFANG: RIT-
STJtci’MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaniands. í lauBasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKAMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
ANNA hafði samband við
Velvakanda vegna jólaljósa
í Kirkjugarði Hafnarfjarð-
ar. Sagðist hún hafa gengið
frá að sett yrðu jólaljós á
tvö leiði náinna ættingja í
Kirkjugarðinum i Hafnar-
firði. Sagðist hún síðan
kvöld eitt hafa ætlað að
sýna móður sinni Ijósin á
leiðunum en þá var allt
slökkt. Þegar hún fór að
grennslast fyrir um hverju
sætti var henni sagt að ljós-
in væru slökkt kl. 19 á
kvöldin.
Undrast hún þessa ráð-
stöfun og spyr hverju það
sæti að ljósin séu ekki
kveikt á kvöldin í skamm-
deginu þannig að fólk geti
notið þeirra ef það vitjar
leiðis eftir vinnutíma - eða
hvort ekki megi vera kveikt
á Ijósunum allan sólar-
hringinn á aðventunni og
yfir hátíðisdagana.
Kennslustund
í innbrotum
RÍKISSJÓNVARPIÐ í
sýndi mánudaginn 11. des-
ember sl. hvemig þjófar
haga sér við innbrot. Þetta
var eins og kennslustund í
innbrotum. Auðvitað má
vara fólk við þjófum, en
þetta var fyrir neðan allar
hellur.
Eldri borgari,
Áskorun til
kráareigenda
EG vil beina því til eigenda
kráa og öldurhúsa að hafa
lokað hjá sér á aðfangadag
ogáannan dagjóla.
Það mundi áreiðanlega
gleðja marga, ekki síst
böm, því áfengisneysla á
jólum spillir jólagleði heim-
ilanna.
Vilhjálmur Sigurðsson,
Dýr
EG get ekki annað en tekið
mér penna í hönd, því í
Morgunblaðinu 12. des-
ember sl. kom sú frétt í
frétt í blaðinu að Fjör-
gammur væri á föram til
Þýskalands. Það er stóð-
hesturinn Otur sem er 18
vetra.
Nú spyr ég, hvað er að
svona mönnum? Er það fé-
græðgi að selja svona gaml-
an hest, hefði nú ekki verið
nær að Ieyfa honum að eyða
því sem eftir er ævi sinnar
hér og vera frjáls? Nei, í
staðinn fær hann að búa í
Þýskalandi, mjög trúlegt
að hann fái sumarexem, en
áður þarf hann líka að þola
flutning úr landi og sjálf-
sagt fleiri flutninga. Ekki
má gleyma heimþránni.
Eru engin lög til hér um
dýr? Hvað mega þau vera
orðin gömul, þegar þau era
flutt úr landi?
Mér finnst að yfirdýra-
læknirinn hér á landi ætti
að taka í taumana. Eins
finnst mér Dýraverndar-
samtökin vera engin hér á
landi. Það er bara símsvari
og netfang. Það er ekki
mikið verið að hugsa um
þarfasta þjóninn, hvað hon-
um á eftir að líða illa, held-
ur hvað græði ég mikið.
Þykir fólki ekki vænt um
dýrin sín lengur, ég bara
spyr?
Ég vona að þeir sem áttu
Otur eigi gleðileg jól, ekki
hefði ég þau eftir að hafa
selt besta vin minn úr landi.
Dýravinur,
kt.111043-2139,
Tapað/fundið
Kúrlandssystur
JÓLAGJÖF fannst á Berg-
staðastræti miðvikudaginn
20. desember sl. Upplýs-
ingar í síma 561-2355.
SAAB Lyklakippa
LYKLAKIPPA fannst í
aftasta sæti stórs leigubíls
föstudagskvöldið 15.
desember sl. Á kippunni,
sem er úr leðri með SAAB/
SCANIA-merki úr málmi,
eru tveir lyklar. Annar lyk-
illinn er af bifreið og hinn
er húslykill.
Upplýsingar um lykilinn
er hægt að nálgast í síma
865-1086.
Dýrahald
Kári er týndur
KÆRU lesendur. Nú er
Kári Snæland búinn að
vera týndur í tæpar þrjár
vikur og ég orðin verulega
áhyggjufull. Kári er
tveggja ára fressköttur,
dökkbröndóttur og stór.
Hann var með hálsól þegar
hann hvarf og hann er
eyrnamerktur (tattóverað-
ur). Við búum í Stangar-
holti í Reykjavík og mestar
líkur eru á að Kári hafi far-
ið í skoðunarferð um nær-
liggjandi bæjarhluta og
ekki ratað heim. Mér þykir
Iíklegt að hann sníki sér
mat hjá góðhjörtuðu fólki
sem kannski áttar sig ekki
á að hann er á flækingi.
Vinsamlega hafið samband
ef þið getið hjálpað mér að
finna Kára lifandi eða dauð-
an. Gleðilega hátíð, Þór-
hildur Snæland, símar 562
4622 og 897 0032.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 skrautgjarn, 8 fiskveið-
ar, 9 hrósar, 10 slæm, 11
dregur, 13 mannsnafn, 15
æki, 18 ofsamaður, 21
guð, 22 ginni, 23 fuglinn,
24 nábýliskona.
LÓÐRÉTT:
2 slóttug, 3 talar, 4 Iítill
bátur, 5 skottið, 6 knippi,
7 ósoðinn, 12 bardaga, 14
sefa, 15 hæð, 16 flát, 17
stff, 18 ósvífin, 19 sárið,
20 skýra frá.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 trýni, 4 bolti, 7 nefna, 8 riftu, 9 níð, 11 rýrt, 13
grun, 14 askur, 15 fork, 17 árás, 20 urt, 22 mokar, 23 efn-
uð, 24 linna, 25 glita.
Lóðrétt: 1 týnir, 2 ýlfur, 3 iðan, 4 borð, 5 lifir, 6 Iðunn, 10
ískur, 12 tak, 13 grá, 15 fámál, 16 rakan, 18 rengi, 19
síðla, 20 urða, 21 teig.
Víkverji skrifar...
VINKONA Víkverja, sem er
viðskiptamaður hjá Tali, sagði
sínar farir ekki sléttar. í tvígang
að minnsta kosti hafði það hent
hana að hún hafði keypt inneign á
Frelsiskort og síðan þegar sízt
skyldi hafði fyrirtækið gert upp-
tæka inneign hennar, þ.e.a.s.
greiðslan inn á kortið hafði fyrnzt
og þegar hún hringdi kom rödd,
sem sagði að hún ætti ekki fyrir
símtalinu, þrátt fyrir að örfáum
dögum áður höfðu verið inni á
kortinu um 1.200 krónur.
Þessi kona spurði: Getur verið
að það séu góðir og löglegir við-
skiptahættir að fyrna fjárhæðir,
sem fólk hefur greitt, bara vegna
þess að fólk tekur ekki af innstæð-
unni, sem það sannanlega á á þeim
hraða sem fyrirtækinu þóknazt?
Konan sagði, ég kaupi af SVR af-
sláttarmiða, sem ég get síðan notað
í mörg ár, svo lengi sem þeir end-
ast. Engum dettur í hug að fyrna
þá. Sama er að segja um sundkort í
sundlaugar og baðstaði borgarinn-
ar. Það kort sem ég kaupi, endist
svo lengi sem ég hef ekki farið í
sund og látið gata allt kortið.
Það hljóta að vera í hæsta máta
skrítnir viðskiptahættir að fyrir-
tæki geti sagt við viðskiptavin sinn.
Þar sem þú notar innlögn þína of
hægt, missir þú það sem þú hefur
lagt inn á reikning þinn. Gaman
væri ef Tal rökstyddi, hvers vegna
nauðsynlegt sé að fyrna innlagnir á
Frelsiskort? Varla eru það margir,
sem nota inneign sína svo hægt
sem þessi vinkona Víkverja. Að
auki má geta þess, að málið snýst
ekki bara um peninga, heldur og
það að fólk, sem á slík Frelsiskort,
verður að geta treyst þvi að síminn
virki, þegar á þarf að halda.
xxx
KUNNINGI Víkverja fór til
læknis. Læknirinn skrifaði
lyfseðil og sagði við kunningjann
að hann ætti að taka tvær töflur af
lyfinu á dag í 20 daga. Að svo búnu
skyldu þeir athuga hvort ekki hefði
verið komizt fyrir lasleikann.
Kunninginn fór með lyfseðilinn í
apótek. Afgreiðslustúlkan í apótek-
inu kom með tvö pilluglös. í hvoru
glasinu um sig voru 30 töflur eða
samtals 60 töflur. Kunninginn
horfði á stúlkuna og glösin og hann
sagði: Ég á bara að taka 40 töflur í
20 daga, þetta er 20 töflum of mik-
ið.
Stúlkan sagði að það væri sama,
ef hann ætlaði að fá 40 töflur eins
og lyfseðillinn segði til um, yrði
hann að kaupa 60 töflur, pakkn-
ingin frá töfluframleiðandanum
væri þannig og apótekið gæti ekki
opnað pakkninguna, slíkt kallaði á
mistök að fara að skipta pakkning-
unum. Kunningjanum fannst þetta
nú ekki frambærilegt svar. Lyfja-
fræðingur með allt sitt langa og
dýra nám hlyti að geta talið 20 töfl-
ur án mistaka.
Og þar við sat. Mikið er sparaði í
heilbrigðiskerfinu og ríkisvaldið er
sífellt að draga úr þátttöku sinni í
lyfjakostnaði. Getur slíkt tilvik sem
þetta kannski haft þar einhver
áhrif. Vegna þess að apótekin eru
ekki lengur framleiðendur lyfja og
vilja ekki einu sinni opna pakkn-
ingarnar frá lyfjaframleiðandan-
um, getur verið að sjúklingar og
Tryggingastofnun séu að greiða
fyrir mun meira magn lyfja en
læknar biðja um?
XXX
IGÆR var skemmstur dagur og
framundan eru dagar, þar sem
sól fer að hækka á lofti, hænufet á
hverjum degi til að byrja með, en
svo hraðar. Framundan er lengri
sólargangur og vonandi betri tíð.
Annars má nú eigi kvarta undan
tíðinni hér á höfuðborgarsvæðinu.
Hún hefur verið einstök það sem af
er vetri.