Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 74
74 ■ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið ki. 20.00:
ANTÍGÓNA eftir Sófókles
Frumsýning annan í jólum 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti
laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5.
sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. lau. 13/1 nokkur sæti laus, 7. sýn.
sun. 14/1 nokkursæti laus.
HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eftir John Osborne
Fös. 29/12, nokkur sæti laus, lau. 6/1, sun. 7/1, fös. 12/1.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI eftir Marie Jones
Frumsýning lau. 30/12 kl. 16.00. uppselt, mið. 3/1, fös. 5/1, lau. 13/1,
sun. 14/1.
ÁSTKONUR PICASSOS - Brian McAvera
Fim. 11/1 ogfös. 12/1.
GJAFAKORT I ÞJÓBLEIKHÚSIB - GJÖFIM SEM L1FNAR l/IÐf
www.lefkhusid.is midasala@leikhusid.is Sámapantanir frá kl. 10 virka daga.
Miðasalan er opin mán,—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20.
Ath! Opið til kl. 20 á Þorláksmessu. Lokað á aðfangadag.
Leikfélag íslands
Gjafakort í Leikhúsið
— skemmtileg jólagjöf sem lifir
551 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR
Frumsýn. fim 28/12 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. fös 29/12 kl. 20, A kort gilda
3. sýn. lau 30/12 kl. 20, B kort gilda
fös 5/1 kl. 20 C&D kort gilda
lau 13/1 kl. 20
fös 19/1 kl. 20
SJEIKSPÍR EING 0G
HANN LEGGUR SIG
lau 6/1 kl. 19
fös 12/1 kl. 20
lau 20/1 kl. 20
530 303O
SÝND VEIÐI
fös 29/12 kl. 20
lau 6/1 kl. 20
fös 12/1 kl. 20
TRÚÐLEIKUR
fös 5/1 kl. 20
fim 11/1 kl. 20
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042. opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn I salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
Gleðigjafamir
eftir Neil Simon
Leikstjóri Saga Jónsdóttir
Sýn. fös. 29. des kl. 20.
sýn. lau. 30. des kl. 20.
Barnaleikritið
Tveir misjafnlega
vitlausir
eftir Aðalstein Bergdal.
sýn mið. 27.12 kl. 15.
Miðasala opin alla virka daga
kl. 13—17 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur
Næstu sýningar
MÓGLf e. Rudyard Kipling
Þri 26. des kl. 14 FRUMS. - UPPSELT!
Lau 30. des kl. 14 -ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 7. jan kl. 14
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson.
Tónlistarstjóri: Óskar Einarsson.
Leikarar: Miðrik Friðriksson, Ellert A. Ingimundar-
son, Thedór Júlíusson, lóhann G. Jóhannsson,
Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir, Jóhanna Vigdís Amardóttir og Edda
Biörg Eyjólfsdóttir. Lýsing: Ögmundur Þór
Johannesson. Hljóð: Jakob Tryggvason. Búningar:
Linda Björk Amadóttir. Leikmynd: Stígur Stein-
þórsson. Leikgervi: Sóley Björt Guðmundsdóttir.
FALLEG GJAFAKORT Á MÓGLÍ,
ÁSAMT VÖNDUÐUM STUTTERMABOL,
ERU TILVALIN IJÓLAPAKKA YNGSTU
FJÖLSKYLDUMEÐLIMANNA!
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Fös 29. des kl. 20
Lau 30. des kl. 20
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrfm Helgason
Fös 29. des íd. 20
Lau 30. des kl. 20
HEILL HEIMUR I EINU UMSLAGI!
NÝ OG FALLEG GJAFAKOKT Á LEIKSÝNINGAR
BORGARLEIKHÚSSINS ERU GLÆSILEG
JÓLAGJÖF. HRINGDU (MIÐASÖLUNA OG
VIÐ SENDUM ÞÉRJÓLAGJAFIRNAR UM HÆL!
HÁTfÐARTILBOÐ Á
GJAFAKORTUM FYRIR JÓLIN!
GLEÐILEG JÓL
Starfsfólk Borgarleikhússins óskar
leikhúsgestum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Vió þökkum ánægjulegar samverustundir
á árinu sem er að íiða og hlökkum
til að sjá þig á næsta ári!
Miðasala: 568 8000
Mtáasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími mtðasölu opnar kl. 10 virka
daga. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
KatflLeibliúsið
Vesturpötu 3
Missa Solemnis
eftir Kristiinu Hurmerinta
Einleikari: Jórunn Sigurðardóttir
Sýning í dag 22.12. kl. 17.30
Sýning á Þorláksmessu kl. 24.00
Sýning á aðfangadagskvöld kl. 24.00
„Járunn Sigurðardáttir flutti einleikinn
frábærlega...einstök helgistund í Kaffileik-
húsinu...hér er sýning sem óhætt er að mæla
með á aðventunni..." SAB, Mbl.
Sýningar á Evu, Háalofti og Stormi og
Ormi verða teknar upp aftur á nýju ári.
MIÐASALA I SIMA 551 9055
Miðapantanir i Iðnó í síma: 5 30 30 30
AFI/AMHA
Allt fyrir minnsta barnabarnið.
Þumalína, Pósthússtræti 13.
FÓLK í FRÉTTUM
Stemmningin endurlifuð
Tonllst
Geislaplata
ALLUR SKALINN
Allur skalinn, tónlist úr söng-
leikjum Flugfélagsins Lofts og
Leikfélags Islands. Flytjendur:
Margrét Eir, Helgi Bjömsson,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason, Valgerður Guðna-
dóttir, Emilíana Torrini, Daníel Ág-
ust Haraldsson, Jón Ólafsson, Björn
Jömndur Friðbjörnsson, Jónmund-
ur Grétarsson, Egill Ólafsson, Felix
Bergsson, Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Pálína Jónsdóttir, Valur
Freyr Emilsson, Halldór Gylfason,
Halldóra Geirharðsdóttir, Geirfugl-
arair, Skárren ekkert, Ragnhildur
Gísladóttir og Sigurður Eyberg.
Umsjón, tónlistarval og samsetn-
ing: Jón Ólafsson. títgefandi: Leik-
félag Islands. 20 lög -
lengd 70:24 mín.
ÞAÐ ER fátt skemmtilegra en að
fara í leikhús og sjá þar eitthvert
gott stykki. Sérstaklega höfða söng-
leikir til breiðs hóps áhorfenda og ná
yfírleitt að skapa góða stemmningu.
Með tilkomu Loftkastalans og Leik-
félags íslands jókst mjög framboð á
söngleikjum en undanfarin sex ár
hafa þessi leikfélög, sem nú hafa
reyndar sameinast í eitt undir nafni
Leikfélags Islands, sett á svið fjöl-
marga söngleiki eða leikrit með tón-
listarlegu ívafi. í tilefni sameining-
arinnar er kominn út geisladiskur
sem inniheldur tuttugu lög úr þess-
um stykkjum. Lögunum er raðað í
tímaröð og er það ágætis leið því tón-
listin er það ólík að erfitt hefði verið
að blanda henni þannig að heilsteypt
mynd næðist. Það er of langt mál að
tína til hvert og eitt lag og stikla ég
því á stóru. Platan byrjar á lagi úr
Hárínu, „Að eilífu", í frábærum
flutningi Margrétar Eirar. Helgi
Bjömsson kom mjög á óvart sem
Frank ’n’Furter í Rocky Horror og
flytur „Taumlaus transi“ úr því verki
af mikilli snilld. Emilíana Torrini er
áberandi á plötunni, en hún syngur
þrjú lög. Fyrst er að nefna Melanie-
lagið „Lay Down“ úr Stone Free og
svo tvö lög úr leikritinu Veðmálið,
„Io Te“ og „Heaven Knows“ sem hún
syngur með Birni Jörundi. Fáar
söngkonur íslenskar standa jafnfæt-
is Emilíönu, hún býr yfu- sérstakri
og magnaðri rödd og hefur
auk þess mikla út-
geislun.
Hennar hlýt-
ur að bíða
heimsfrægð,
hún hefur að
minnsta kosti
allt til að bera.
Fyrrum fél-
agarnir úr Ný-
danskri, Daníel
Ágúst og Björn Jör-
undur, flytja báðir
lög á diskinum, Bjöm
Jörandur reyndar tvö
sem hann samdi einnig
sjálfur. Áðurnefnt
„Heaven knows“ og svo dúett með
Margréti Vilhjálmsdóttur leikkonu í
laginu ,Á sama tíma að ári“ úr sam-
nefndu leikriti. Ég hef alltaf verið
mjög hrifin af þessari sérkennilegu
rödd Björns Jömndar og tel hann
með okkar allra skemmtilegustu
söngvuram. Ekki skemmir fyrir að
hann kann að semja lipur popplög.
,Á sama tíma að ári“ er eitt af bestu
lögum plötunnar, ekkert síðra en
þau þekktari eriendu. Tvö barnalög
eru á diskinum, „Það er svo gaman
að vera í skóla“ og „Það vantar spýt-
ur“ úr leikritinu um Hatt og Fatt.
Lögin ættu að höfða einnig til þeirra
fullorðnu því tónlist Ólafs Hauks
Símonarsonar virðist ná til breiðs
aldurshóps, samanber að Eniga
Memga-diskurinn sígildi er alveg
jafn vinsæll hjá foreldrum og böm-
um. Hljómsveitin Skárr’en ekkert á
tvö lög, „Þáttaskil" úr leikritinu
Rommí og „Eldur“ úr Stjörnum á
morgunhimni. Hljómsveitin hefur
verið nokkuð iðin við að semja tónlist
við leik- og dansverk undanfarin ár
enda tónlist þeirra vel til þess fallin,
fáir ná fram jafn góðri stemmningu.
Þeir eru hvað þekktastir fyrir nota-
lega kaffihúsatónlist en hafa þó sýnt
það og sannað að þeir fara létt með
að semja aðra tegund
tónlistar eins og
heyra má í hinu frá-
bæra lagi „Eldur".
Lokalögin tvö á
diskinum eru úr
væntanlegum
söngleik, Hed-
wig, sem frum-
sýndur verður í
Loftkastalan-
um á næsta
ári. Lögin eru
afar vel
sungin af
Sigurði Ey-
berg, sem eftir
mínu besta minni söng
með keflvísku sveitinni Deep Jimi
and the Zep Creams hér fyrir nokkr-
um árum. Ég reyndar hélt við fyrstu
hlustun að hér væri sjálfur Lloyd
Cole kominn syngjandi á íslensku en
það er hreint ótrúlegur svipur með
rödd og söngstíl hjá honum og Sig-
urði. Tónlistai’stjórn í þessum
stykkjum er í höndum fjölmargra,
m.a. Þorvalds B. Þorvaldssonar,
Ragnhildar Gísladóttur, Margrétar
Örnólfsdóttur og síðast en ekki síst
Jóns Ólafssonar, sem ber ábyrgð á
tónlistinni í fjórum söngleikjum á
plötunni og er auk þess umsjónar-
maður með þessari útgáfu. Lögin á
Öllum skalanum virka misvel án leik-
hússins, sum ganga einungis upp
sem leikhúslög en önnur eru meiri
poppsmiðar. Þetta er þó diskur sem
allir ættu að hafa gaman af, sérstak-
lega þeir sem hafa séð þessar sýn-
ingar og geta því endurlifað
stemmninguna.
Iris Stefánsdóttir
Fyrirtaks bræðingur
Tónllst
Geislaplata
so LOW
So low, geisladiskur Jóhanns Ás-
mundssonar. OII lög em eftir Jó-
hann fyrir utan „To do or not to do“
sem er eftir Þóri tílfarsson. Á plöt-
unni leikur Jóhann á bassa, gítar og
hljómborð en með honum leika
trommuleikararnir Einar Valur
Scheving, Haildór Gunnlaugur
Hauksson, Sigfús Óttarsson, Arnar
Gfslason, Gunnlaugur Briem og
Matthías Hemstock. Á hljómborð
leika Þórir tílfarsson, Eyþór Gunn-
arsson, Þórir Baldursson, Davíð _
Þór Jónsson og Óskar Einarsson. Á
gítar leika þeir Ómar Guðjónsson,
Sigurgeir Sigmundsson, Jón Elvar
Hafsteinsson og Kristján Grét-
arsson. Sigurður Flosason, Óskar
Guðjónsson, Mike Campagna og Jó-
el Pálsson leika á saxófóna. Samúel
Jón Samúelsson leikur á básúnu og
einnig koma við sögu þeir Illugi
Magnússon og Björgvin Pálsson.
Jóhann hljóðblandaði sjálfur ásamt
Þóri tílfarssyni og hljómjafnaði síð-
ar með Bjarna Braga Kjartanssyni.
JÓHANN Ásmundsson hefur um
árabil verið einn af fremstu bassa-
leikurum þjóðarinnar ef ekki Evr-
ópu. Sem liðsmaður bræðingssveit-
arinnar Mezzoforte hefur hann
notið mikillar virðingar af fagfólki
og tónlistaráhugamönnum víða um
heim og ekki að tilefnislausu. Lítið
hefur farið fyrir Jóhanni síðustu
misserin og þrátt fyrir að hafa leik-
ið með hinum ýmsu kráarsveitum,
t.d. Gildrumezz, þá er orðið æði
langt síðan síðast heyrðist í honum
á sínum helsta tónlistarvettvangi,
bræðingnum.
So low, inniheldur ellefu tónsmíð-
ar, þar af tíu eftir Jóhann en eina
eftir Þóri Ulfarsson. Það má segja
að Jóhann sé með eins konar bræð-
ingslandslið með sér á plötunni því
á þriðja tug afbragðshljóðfæraleik-
ara koma við sögu. Mezzoforte-
kapparnir Eyþór Gunnarsson og
Óskar Guðjónsson eru þar á meðal
og eiga sérdeilis góðan leik, eink-
um og sér í lagi Ey-
þór sem er í
jóhaW*sn
þeim klassa i
að óskiljanlegt
er að hann
skuli ekki
starfa á erlend-
um vettvangi.
Ungur og „Ey-
þórsskotinn"
hljómborðsleik-
ari, Davíð Þór
Jónsson, á einnig
mjög góðan leik á
So low, einkum er
einleikskafli hans í
lagi Þóris Úlfars-
sonar, „To do or not to do“, fram-
úrskarandi. Aðrir hljóðfæraleikarar
plötunnar skila sínu sömuleiðis fá-
dæma vel; mikið hrynnæmi og al-
mennt „músíkalitet“ er nánast und-
antekningalaust á leik þeirra að
heyra. Stjarna plötunnar er þó tví-
mælalaust Jóhann sjálfur, sem sýn-
ir mikla snilld á rafbassa, með og
án banda. Jóhann leikur mikið með
svokallaðri „slap“-tækni sem vinsæl
er í hrynríkum stefnum á borð við
tónlistarsystkinin bræðing og fönk.
Á níunda áratugnum var tækni
þessi reyndar notuð sýknt og heil-
agt í flestum tegundum tónlistar,
einkum í „sítt að aftan" poppinu, en
heldur þykir það eldast illa í dag.
Slík tegund bassaleiks hefur oft
farið í taugarnar á undirrituðum en
því er ekki að heilsa á So low því
„slappið“ hæfir tónlistinni ákaflega
vel.
Svo eru líka fáir menn sem
fremja slíkan þumalbarning betur
en Jóhann.
Lögin á So low eru öll ósungin,
eins og títt er með bræðingstónlist.
Smíðarnar eru flestar einfaldar og
á köflum heldur þunnar. Það
kemur kannski ekki
á óvart því bræð-
ingurinn verður
seint talinn tónlist
lagasmíðanna.
Sem óbeint af-
sprengi djasstón-
I listar þá er hann
fyrst og fremst
tónlist hljóð-
færaleiksins;
hrynhiti og
einleikskafiar
eru allsráð-
andi en lögin
eru meira
eins og form til að
halda hljóðfæraleiknum saman. So
low ber glögg merki þeirra ein-
kenna en smíðarnar eru þó sjaldn-
ast beinlínis ómerkilegar. Víða má
finna þekkilegustu laglínur þó oft
sé um klisjulegar lausnir að ræða.
Hið jólalega og djassskotna „Ser-
enity Walz“ þykir mér besta lag
plötunnar og flutningurinn er af-
bragð. Það er lifandi hljóðritum,
þ.e. ein upptaka, og gefur til kynna
ótvíræða kosti þeirrar vanmetnu
upptökuaðferðar.
Ég væri að ljúga ef ég segði að
mér þætti So low skemmtileg plata.
Bræðingur hefur aldrei höfðað til
mín, en taka ber ofan fyrir því sem
vel er gert og það geri ég óhikað í
þessu tilfelli. So Low er um margt
mjög vel heppnuð plata og uppfull
af fyrirtaks spilamennsku.
Orri Harðarson