Skírnir - 01.01.1868, Blaðsíða 124
124
FRJETTIB.
Ansturríki.
hólinn”1, og hjó j>ar sverSinu í fjórar höfuSáttir; en þaS á aS
tákna, aS konungurinn skuli verja ríkiS móti fjandmönnum þess,
hvaSan sem þeir sækja. AS landsiS Ungverja voru keisaranum og
drottningu hans færSar (Ikrýningargjafir” (allskonar landsnytjar)
tveim dögum seinna, frá borgarhúum og höfuÖfylkjum ríkisins. í
broddi þeirrar fylkingar gengu bakarar meS miklar strýtur hlaSnar
af hveitikökum og kryddbrauði, en eptir þeim fóru vagnar meS
maturtir, aldini og blóm, og fylgdu þeirn garSyrkjumenn og blóm-
sölustúlkur; þá fiskimenn meS tvo kjörlega fiska (laxa úrDuná?),
þá hirSar og smalameyjar meö tvö lömb nýborin, þá slátursveinar
meS uxa, er hafSi blómsveig á hornunum, og svo margir fleiri á
eptir í langri runu. Frá ríkisþinginu fengu þau sinn kistilinn
hvort, konungur og drottning, af silfri og með myndum ýmsra
ágætismanna úr sögu Ungverja (Stefáns konungs, Mattiasar Cor-
vinusar, LoSvíks mikla, Maríu Theresíu og fl.). þann dag boSaSi
keisarinn, aS landráSasakir eSa ríkislagabrot skyldi öllum upp
gefnar, og skyldi þeir menn eiga apturkvæmt til átthaga sinna, er
fyrir þær sákir hefSt flúiS til útlanda. Enn fremur gaf hann
100,000 dúkata til útbýtingar handa ekkjum og munaSarlausum
þeirra hermanna, er látizt höfSu í stríöinu 1848 — 49. — Ríkis-
þingiS í Vínarborg hafSi þá og fallizt á þá alrikis skipan —
eSa tvideild keisaradæmisins, er Ungverjum hafSi tekizt aS hafa
fram meS atfylgi Beusts viS keisarann og ýmsa helztu forustumenn
á þinginu. Fulltrúadeild þingsins hafSi skiliS ýmsar greinir til,
um forræÖismeiri þing og stjórn í ríkispörtunum (vestlægu), um
funda- og prentfrelsi, um afnám páfaskráarinnar (l(konkordatsins”),
og fl., en efri dcildin kvaSst játa lögunum gildi, er henni þætti
hjer vant nm skapaS aS skipta. Formenn beggja deildanna fóru
til hátíSarhaldanna 1 Pestharborg, og fleiri málsmetandi manna af
þinginu. ((Vín skal til vinar drekka”, og hjeldu þingmenn Ung-
verja þeim mönnum góSa veizlu, og var sú samdrykkja hafin meS
minni ríkisþingsins í Vínarborg, en fyrir því mælti Szentivanyi,
formaSur fulltrúadeildarinnar (Ungverja). Carlos Auersperg ((fursti”,
‘) Eptir kr^ningarsiðum Ungverja að fornu fari, en hóllinn er gcrður af
saroanborinni mold frá öllum hjeruðum Ungverjalands.