Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 14

Skírnir - 01.08.1905, Page 14
20tí Verzlim Islendinga og samvinnufélagsskapnr. ur þurfa að setja á stofn fáein sameignarslátrunar- hús, sem þeir eiga að eiga sjálflr. Þeir eiga að taka kjöt- verzlunina og' alla verzlun með það, sem sauðfénaðurinn gefur af sér, í hendur sinar, og selja utanlands og innan kjöt, tólg og pylsur beint út frá slárrunarhúsunum. Kjöt, sem þeir selja i útlöndum, eiga þeir að senda beint frá slátr- unarhúsunum til kaupenda og útsölumanna erlendis. Ullina eiga bændur einnig að selja i félagi, og getur sama félag annast sölu á henni, sem heflr á hendi sölu á saltkjöti til annara landa. Sama er að segja um hestana. Til þess að selja þá eiga bændur að hafa útflutningsfélag sín á milli. Með því að selja ótamin tryppi til annara landa eins og hestakaupmennirnir gera árlega, geta íslenzkir hestar eigi náð þar góðu verði, og er slikt stórtjón fyrir bændur. Einnig þurfa sjávarbændur að stofna útflutnings- samfélag til þess að selja fisk og aðra sjávarvöru til útlanda. Það er eigi smáræði, sem kaupmenn græða oft á því að hafa flsksöluna á hendi. Islendingum er lika rnikil hætta búin frá Norðmönnum að því er saltfisks- verzlunina snertir. Islenzkur saltfiskur er betri og heflr betra orð á sér en norskur saltfiskur. Hann selst því betur. En fyrir því er erfltt fyrir Norðmenn að keppa við hann. Þeir hafa því tekið það ráð, að kaupa upp saltfisk hér á landi og blanda honum saman við fisk sinn, en þá verður munurinn minni á íslenzkum flski og norsk- um og minna orð kemst þá á íslenzka saltfiskinn smátt og smátt; fá Islendingar einhvern tíma að kenna á þessu, ef svo heldur áfram. Einfalt ráð við þessu er að selja eigi flskinn til Norðmanna, og ættu sjávarbændur að taka sig saman og selja sjálflr fisk sinn til annara landa. I þeim tilgangi þurfa þeir að stofna sameignarútílutn- ingsfélag til fiskisölu, og gæti það einnig annast sölu á öðrum sjávarafla um leið. Á þann hátt gætu bændur sjálfir fengið ágóðann af sölu afla þeirra. En til þess að hafa innkaup á hendi þurfa bændur að stofna sameignarkaupfélög i hverri sveit og

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.