Skírnir - 01.08.1905, Page 17
Verzlun Islendinga og samvinnnfélagsskapur.
209
af verzluninni í hlutfallí við það, seni þeir kaupa og
selja. Það er sanngjarnast að þeir njóti hans. En sumt
er það, sem eigi er hægt að komast hjá, svo sem erfiðis-
laun við vörurnar, þótt þau geti orðið minni, ef höfn er
gerð. Þau verða ávalt að borgast til þeirra sem vinna,
hvort sem þeir eru utanlands eða innan, og er ekkert
ósanngjarnt í því. Eigi er heldur neitt ósanngjarnt að
borga leigu eftir skipin, sem flytja vörurnar landa í
milli, en það er einkennilegt, að öll þau skip, sem flytja
vörur milli Islands og annarra landa eru útlend. Lands-
menn eiga engin verzlunarskip, eða ekki svo teljandi sé.
Ef landsmenn tækju verzlunina sjálfir í hendur sínar og
settu samfélag á stofn, þá gæti það brátt orðið svo mikils
megandi, að það gæti sjálft átt og gert út skip til þess
að sigla með vörur milli landa. Þá gæti smátt og smátt
komið upp innlendur verzlunarskipastóll.
Hér er varla tími til þess að tala um hvernig sam-
eignarfélögunum er fyrir komið og stjórnað, enda
má skýra frá því við annað tækifæri, ef menn vilja sinna
þessu mikilvæga málefni. Að eins skal þess getið, að
menn borga venjulega dálítið tillag við inngöngu sína
í félagið, svo sem hálfa aðra krónu. Gangfé — fé til að
reka með verzlunina — fá rnenn venjulega með því að
hver maður leggur annaðhvort til ofurlítið fé, 10, 20, 30
eða 40 kr. hver, sem hann þá fær leigu af, 5%, eða með
því að taka lán, sem þá allir ábyrgjast, en stundum með
því að gera hvorttveggja. Enginn félagsmaður fær að
leggja til mikið fé.
Sameignarkaupfélögin eiga að borga samfélaginu vörur
þær, sem þau fá, innan 30 daga. Sendi þau of mikla
borgun til samfélagsins, fá þau 5% í leigu af því, sem
þau eiga inni hjá því; en eins verða þau að borga 5%
af skuld sinni, er hún er orðin 30 daga gömul.
I stjórn fyrir slík félög eru vanalega kosnir 5 eða
7 menn og tveir endurskoðunarmenn. Auk þess er einn
afgreiðslumaður (»Uddeler«, sem hann er nefndur).
Hann afhendir vörurnar og tekur við andvirði þeírra.
14