Skírnir - 01.08.1905, Page 22
214
Islenzk höfuðból.
draga að sér athygli manna. Frá náttíirunnar hendi er
þar ekkert t'ram yfir það algengn. Þeir einir leita þang-
að, sem þekkja hið sögulega gildi staðarins.
Það er svðsti (n'eðsti)' bærinn í Biskupstungum, og
stendur skamt t'vrir ofan tungu þá, er Brúará myndar, er
hún fellur út í Hvítá. Brúará rennur svo sem bæjnrleið
fyrir vestan staðinn; Hvítá skamt fyrir sunnan hann, og
fram hjá honum í vestur, en beygir til suðurs, þegar
Brúará feilur í hana, og er þá breið mjög.
N;
Yörðuíell.
Bærinn stendur all-hátt yfir sléttlendinu við árnar, en
fyrir ofan (norðan) hann fer landið hækkandi, og ás einn,
nokkuð hár, byrgir fyrir alla fjallsýn norður á við. Alt
umhverfis staðinn, nema að sunnan, skiftast á melásar og
mýrasund með illfærum keldutn. Landið er því lítt aðlað-
andi. Austan við staðinn er eitt mýrarsundið og ás þar
austur af, en vfir hann er fjallsýn fögur. Þar sjást fyrst
Hreppafjöllin, og lengra austur ber Heklu, Tindafjöll og
Eyjafjallajökul við himininn.
I suðaustri byrgir Vörðufell á Skeiðum fyrir alla fjar-