Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 27

Skírnir - 01.08.1905, Page 27
Skálholt. 219 Hvítá í tveim kvíslum hjá Þengilseyri, suður af staðnum ng komu þar öllum á óvart. Biskup var í kirkju eða flúði þangað, lét byrja tíðir og trevsti á kirkjufriðinn, en þeir undu upp kirkjuna með því að smeygja trjám undir aurstokkana, drápu sveina biskups hvar sem þeir hittu þá bæði í kirkjunni og annarstaðar, en drógu hann sjálfan frá altarinu í öllum skrúða, létu hann í poka og drektu honum í Brúará — tiltæki, sem varla á sinn líka í mann- kynssögunni. Norðvestur í túninu heitir íragerði, upp- hækkun, 12 X lVa f'aðmur; þar eiga sveinar biskups að vera grafnir. Rúmum 100 árum síðar, eða 1539, fékk Skálholts- jarðvegur aftur blóð böðla íslands að drekka. Það var konungsfulltrúinn Didrich von Minden, og fylgdarmenn hans átta eða níu, sem þá var veginn þar. Hann hafði riðið upp í Skálholt til þess að storka ögmundi biskupi, þá gömlum og blindum; biskup bað hann hafa sig hægan, kvaðst ekkert mundi gera honum sjálfur, en sagðist ekki ábyrgjast menn sína. Það var ráðsmaðurinn, sem réð at- förinni. Didrich og menn hans voru jarðaðir í svonefnd- um Söðulhól austur í mýrinni. Á dögum seinustu katólsku biskupanna er þó vegur Skálholts með mestum blóma, meiri en nokkru sinni fyr eða síðar, einkum þó á dögum hins seinasta, ögmundar biskups Pálssonar. Hafi það verið satt um Gissur Is- leifsson, að hann hafl verið bæði konungur og biskup yfir landinu um sína daga, þá er það engu siður satt um ög- mund biskup, að hann var alræðismaður (dictator) yflr Skálholtsstifti um sína daga. Auk biskupsvaldsins hafði hann einnig hirðstjóravald um allmörg ár, og var þá ekki fyrir smámenni við hann að etja, með því líka að maður- inn var fær um að beita valdinu, þrekmaður raikill, rík- lundaður og höfðinglundaður, auðmaður, spakur og forsjáll, eitthvert mesta stórmenni, sem þessi þjóð hefir átt. Ríki hans var því meira en svo, að útlit væri fyrir, að það ætti svo skamma stund að standa. En þá var kominn blindleki á fleytuna. I húsakynn-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.