Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 31

Skírnir - 01.08.1905, Side 31
Skálholt. 223 Atvikum öllum við aftöku þeirra feðga er svo greini- lega lýst í Biskupasögunum, að ekki er um að villast. Höggstokkurinn var fluttur við hverja aftöku. Fyrst var hann austur frá garðinum í stefnu á Þorlákssæti; þar var Ari lögmaður höggvinn. Þá var hann fluttur spölkorn norður eftir; þar var síra Björn höggvinn. Síðast var hann fluttur heim undir traðirnar, þar sem þær beygja vestur með kirkjugarðinum; þar lét Jón biskup líf sitt. Aftaka Ara hepnaðist fremur vel, en hinar illa. Björn barst lítt af og mun hal'a verið ókyr, en biskup hafði mikinn herðakistil, og þvi erfitt að koma höggi á hálsinn, en böðullinn unglingsfletur frá Bessastöðum. Lík þeirra feðga voru jörðuð á kórbaki, og lágu þar, þar til seint um veturinn, að Norðlendingar sóttu þau. Á að hafa sézt vottur fyrir gröflnni til þessa. Saga Skálholts eftir siðaskiftin er saga hnignunar- innar. Eftir það dregur óðum úr valdi biskupanna og mæti staðarins, og síðast verður það ekki nerna skuggi þess, er áður var. Merkasta af lútersku biskupunum má eflaust telja þá Odd Einarsson (Stjörnu-Odd, 1686—1660), Brynjólf Sveinsson (1639—1675), Jón Vídalín (1698—1720) og feðgana Finn Jónsson og Hannes Finnsson á seinni hluta 18. aldar. Af öllum þessum biskupum er Brynjólfur langmerkastur og mun Skálholt hafa borið hans menjar fram til hins síðasta. Hann l»ygði þar upp allan staðinn, sem var í niðurníðslu eftir brunann 1630, og hann bygði þar einnig stóra og vandaða dómkirkju. og er sagt að hann hafi varið til hennar um 50000 kr, og er það mikið fé, þegar tekið er tillit til þess, hve vinnulaun voru þá lág. Brynjólfi svipar rnjög til hinna fornu biskupa, hann er mikilmenni eins og þeir, »þéttur á velli og þéttui’ í lund«, stórlyndur og stjórnsamur, auðugur og atkvæða- mikill um landsmál, en ekki að sama skapi þjóðhollur. Lífssaga hans er svo þrungin af þungum raunum, að hún hlýtur að vekja almenna hluttekningu. Honum átti Hall- grímur Pétursson mest allra manna að þakka, og yfir

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.