Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 39

Skírnir - 01.08.1905, Side 39
Herðibreið. 231 hvelfist yfir brjóstin breiðu blákögraði möttullinn. Ávöl mjöðm við mitti bungar, myrkblá skikkjan gáruð er, eins og svigni öldur þungar, og sig leggi að fótum þér. Oft úr fjarlægð iieíi’ hriíinn horft á þína dýrðarmynd; er nú loksins austur svifinn undir himingnæfan tind. Eins og ljúfa loga kveiki, ieidda mér að hjarta inn, fegurð þín og fönguleiki fá svo djúpt á huga minn. Skil eg nú, þvi heitið hlauztu »Herðibreið«, hjá fornum lýð, hjörtu manna hulins raustu iieíirðu snortið ár og síð. Þú hefir birzt þeim'eins og okkur: ítur snót með bjartan faid. Myndi sá, er sér þig, nokkur synja að fegurð, hún er vald. Ríkir undir umsjón þinni ■eyðimerkur dauðaþögn. Einveran með alkyrð sinni öll mín bindur sálarmögn. Eins og hefði eg aleinn stigið inn í vígðan hélgidóm og að guðs míns hástól hnigið hrekk eg til við minsta óm. Inn á þessum þagnarheimi þrýtur gjörvalt hugans vald;

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.