Skírnir - 01.08.1905, Síða 48
240
Tvístjörnur.
til að sannfæra oss um, að þessi niðurröðun gæti ekki verið sprottin
af tilviljun. Það m\indi vera næsta ósennilegt, að samstæða allra
tvöfaldra stjarr.a yrði útskfrð svo, uð hún væri sprottiu af tilvilj-
andi afstöðu þeirra. Margir af þessum hnöttum eru svo samfastir,
að það er ekki auðið að sjá þá greinilega sundurskilda, nema í
stjörnukíki, sem er svo öflugur, að hann gæti sýnt eins og tvo að-
greinda hluti bæði augun í manni í þingmanualeiðar fjarska.*)
En þessi sönnun, sem ég nú nefndi, er ekki sú eina, sem vér
höfum fyrir því, að margar tvístjönmr eru á ósýnilegan hátt sam-
tengdar sönnum félagsskap. Sá hinn sami sanuleikur er leiddur í
Ijós á annan hátt. Margar af stjörnunum eru undirorpnar hreyf-
ingum, sem gjóra það að.verkum, að þær reika yfir himininu hlut-
fallslega við aðrar stjörnur í þeirra nágrenni. Ef það yrði athug-
að, að báðir hnettirnir í tvístjörnu reikuðu eptir sama mælikvarða
og í sömu stefnu, og þó að þeir héldu stöðugt saman, hreyfðust
smátt og smátt burt frá hinum stjörnunum, sem stráð er á himin-
inn umhverfis þá, þá væri það áhrifamikil sönnun fyrir því, að
báðir hnettir tvístjörnunnar væru i líkamseðlilegu sambandi og væru
hlekkjaðir saman á sérstaklegan hátt. Þegar þessu væri svona
varið, þá væri það mjög óseunilegt, að nálægð stjarnanna væri tóm
sjónhverfing og hugarburður.
En vafalaust er hm markverða uppgötvuu, sem vér eigum að
þakka snild Sir Williams Herschel s**), rnest sannfærandi
sönnun fyrir þvi, að margar tvístjöruur séu samstæðar í söiinu
líkamseðlilegu sambandi. Það var tímamark í stjörnufræðinni, þegar
þessi mikli stjörnufræðingur birti þá undrunarverðu sannreynd, að
hann hefði komizt að raun um, að hvor af hnöttunum í tvístjörnu,
sem hann tilnefndi, færi í raun og veru kringum hinn. Hann hafði
athugað, í hvaða stefnu önnur af þessum stjörnum væri við hina.
Hann endurtók athugun sína mánuð eftir máuuð og ár eftir ár, og
þegar hann bar athuganir sínar saman, fann hanti, að stefna lín-
unnar, sem samtengdi báða hnettina í tvístjörnuuni, breyttist smátt
og smátt í samauburði við stjórnurnar í kring. Það kom líka í ljós,
*). Eins og af Skólavörðunni og að Útskálum eða að Álptanesi á
Mýrum.
**) Herschel hétu tveir nafnfrægir enskir stjörnufræðingar, faðir
og sonur. Faðirinn lifði 1788—1822; sonurinn 1792—1871. Eaðirinn
fann 13. marz 1781 jarðstjörnuna Uranus með kiki, sem hann hafði sjálfur
búið til.