Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 51

Skírnir - 01.08.1905, Page 51
Tvístjörnur. 243 er það t. a. m., að þar sem jörðin gengur um sólina í 20 millíón jarðmálsmílna fjarlægð, þá á sú sannreynd, að vor litli hnöttur þarf tólf mánuði til þess að renna alla braut s/na á enda, rót sína aðallega í hinu geysimikla líkamsmegni sólarinnar. Ef að t. a. m. efnið í sóluntii yrði fjórum sinnum meira en þaö er nú, þá mundi átak heunar á jörðina aukast tiltölulega. Ef vér þess vegna hugsuðum oss, að jörðin með þessari aukning á líkamsmegni sólar- innar ætti að halda áfram á hringbraut sinni þannig, að hún héldi tuttugu mili/ón mílna fjarlægðinni frá sólunni, þá yrði hraði sá, sem hún nú rennur með kringum sólina, að vaxa svo, að miðflótta- aflið ykist hlutfallslega við aðdráttarafl sólarinnar. Það er auðvelt að syna fram á það, að þessu markmiði yrði náð, ef hraði jarðar- intiar væti tvöfaldaður, svo að hringferðinni, sem nú þarf heilt ár til að Ijúka við, yrði lokið á sex mánuðum. Ef að líkarasmegn jarðarinnar aftur á móti væri minkað, þá yrði að bæta við lengd ársins. Hugsum oss t. a. tn., að þrír fjórðu hlutar af efni (líkams- megni) sólarinnar værtt numdir burtu, svo að hún hefði ekki eftir nema fjórða hluta af líkatnsmegni því, sem hún nú hefur, þá muttdi aðdráttarafl hennar á jörðina færast niður í fjórðung. Mið- flóttaafl jarðarinnar yrði því að færast niður / fjórðung af því sem það nú er, til þess að jörðin héldist á sömu braut, og þess vegna komumst vér að raun um, að hraði jarðarinnar yrði að færast niður um helming, eða að umferðartíminn yrði að vera tvö ár í staðinn fyrir eitt, ef jörðin ætti ekki að fara út af hinni nú- verandi braut sinni. I því, sem ég hingað til hef sagt, hef ég gjört ráð fyrir, að fjarlægðin rnilli beggja hnatta ætti að haldast óbreytt. En New- tons lög fræða oss einnig um það, að ef vér hugsuðum oss líkams- megin sólarinnar áttfalt við það, sem það nú er, en lengd ársins óbreytta, þá yrði að flytja jörðina í tvöfaldan fjarska frá sólunni við það, sem ttú er. Ef líkamsmegin sólarinnar væri aukið svo, að það væri tuttugu og sjöfalt við það, sem nú er, þá yrði að þrefalda fjarlægð jarðarinnar frá sólunni. Þessar sk/ringar hafa náð tilgangi sínum, ef þær hafa ieitt lesendunum ljóst fyrir sjónit, að það tvent: líkamsmegin þeirra hnatta, sem aðdráttaraflinu (miðsóknaraflinu) vaida — án tillits til fjarlægðarinnar — og um- ferðartími hnattanna, hvors í kringunt annan, er ekki hvort öðru óháð, heldur í réttum hlutföllum hvort við annað eftir skýrnm og skiljanlegum lögum.*') *) Sbr. einnig þriðja lögtnál Kepplers: Umferðartiinarnir margfald- 16*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.