Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 57

Skírnir - 01.08.1905, Side 57
Tvístjiirnur. 249- Vitanlega þekkja stjörnufræðiugarnir ekki fjarlægð Betu í Ökumann- inum. Það er líka eftirtektavert, að hiuti af Ijósmyndaða litgeisla- bandinu, sem mælingar höfðu veriS gjörðar á, var mynd at' Ijósi, sem ljósmyndarflagan gat drukkið í sig, en er með óllu ósýni- leg mannlegu auga. Er þetta ekki sannarlega merkilegt atvik? Geisli af ós/nilegu Ijósi kemur til jarðarinnar frá stjórnu lengst úti { himingeimnum í alveg óþektri fjarlægð, en hefur samt verið nægilegur til þess aS gjöra oss færa um að leggja þessa stjörnu á metaskálarnar, og bera líkamsmegin hennar saman við líkamsmegin sólarinnar. Að því er snertir innra Ijósmagn Betu í Ökumanninum, þá vitum vér ekkert um það. Til þess að vita nokkuð um það, yrð- um vér ekki að eins að mæla ljóma stjöruunnar, sem er hægðar' leikur fyrir oss, en vér yrðum þá líka að hafa tillit til fjarlægðar stjöruunnar frá jörðunni. Þessi fjarlægð er, eins og tekið nefir verið fram, með öllu ókutin, en af því leiðir, að oss er ekki auöið með neinu móti að segja, hvaða hlutfa.ll sé á milli stjörnunnar og sólarinnar, að því er bjartleikann snertir. Það kynni að s/nast undarlegt, en það er samt sem áður fullkominn sannleikur, að þó að Ijósgeislinti hafi frætt oss um það, sem vér ekki hefðum getað búist við að fræðast um af honum — þ. e. a. s. þunga stjörnu- kerfisins —, þá hefur hann, vegna vöntunar á öðrum fróðleik, ekki getað frætt oss utit, hver sé hinn sanni bjartleikur stjörnu þessarar. Það var aðallega W. Hersehel, sem fann upp eldri aðferðirnar við að rannsaka tv/stjörnur, og Burnhant og aðrir endurbættu þær svo, að þær virtust nálgast fullkomnunarstigið. Nú hefir vaknað n/ hvöt til þess að rannsaka þessa hnetti, síðatt hin alveg n/ja litsjár-aðferð, sem uppgötvar tvísólir á hraðri rás, kom til sögunnar. Sjálfsagt má búast við, að hún leiði í ljós mikinn og margbreyttan fróðleik. Stjörnurnar eru oft í félagsskap, ekki að eins tvær og tvær eða í kerfum, heldur svo skiftir tugum þúsunda, hlekkjaðar saman með fjötrum aðdráttaraflsins, sem, þó að það sé ósynilegt og ólíkamlegt, heldur stjörnunum saman í föstu battdalagi. Sem eitt d/rðlegt dæmi má nefna hina miklu stjörnuþyrpingu í stjörnu- merkinu Herkúles. Magnús Stephensen þýddi.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.