Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 61

Skírnir - 01.08.1905, Page 61
Presturinn. 253 — alt af óbrotna uppáhaldsrétti hans, sem reyndar hafa smámsaman líka orðið uppáhaldsréttir hennar. Eftir matinn fara þau ofan í laufskálann, og hann les hátt, þulbaldalega eins og heyrnardaufum er titt; þeir virðast að eins heyra ógreinilegt muldur, er þeir tala; lesturinn er svæfandi og tilbreytingarlaus. En henni finst hann alt af lesa vel, eins og meðan þau voru i tilhugalífinu og hann las »Axel og Valborg« fyrir hana í fyrsta sinn. Svo staldrar hann stundum við og spyr um hitt eða þetta. Annað veit alt af hverju hitt muni svara, en þau spyrja samt, að eins til að heyra svörin, sem þau geta sér til áður en þau koma. »Þetta er heimskuleg saga, Jakob«, segir hún. »Hvað segirðu?« spyr hann og bregður hönd íyrir eyra. »Eg segi, að þetta sé heimskuleg saga . . . Það at- vikast ekki svona«. Hann hlær. »Þú dæmir eftir okkur sjálfum, kona«, segir hann. »En fyrir okkur var það nú svo ósköp blátt áfram Það var auðvelt að ná í þig, mamma«. Hann kallar konuna sina oft »mömmu«, það var frá þeim tíma, þegar drengurinn lifði — sá eini sem þau áttu, drengurinn, sem þau urðu að grafa þar nyrðra í snjónum. »Það er ekki satt, Jakob«, segir hún og roðnar. »Það varst þú, sem varst huglaus, og svo ætlaði eg að hjálpa þér . . .« »Já, einmitt. Og þegar eg svo tók rauðu rósina og gaf þér, þá kystir þú hana undir eins . . .« »Nú já, og hvað svo?« »Svo vorum við trúlofuð . . .« »Hefirðu þá iðrast þess, Jakob?« spyr hún gletnis- lega beint inn í eyrað á honum. Og þegar hún er komin svo nálægt, lokar hann munninum á henni með kossi. En það var satt, sem hann sagði: Hann var þá að- stoðarprestur hjá föður hennar. Hún var tvítug, há og grönn og bjarthærð; augun tindrandi, kinnarnar rjóðar, sællegar, ávalar eins og þroskaður ávöxtur. Og hann

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.