Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 65

Skírnir - 01.08.1905, Side 65
Venidun fornmenja og gamalla kirkjugripa. 257 þessum fornmenjum, handritunum fornu, og það mest fyrir vanhyggju vora. Rústir af bæjum og búðatóttum, hofum og haugum, sem eru eins og myndir við elztu frásagnirnar, hefir ætt- jörðin enn að gevma, þareð þær urðu ekki fluttar af landi burt í bókaskrínum. Þó hafa margar rústir og haugar verið rofnir og eyddir,*) og enn voflr mikil hætta yfir öllum fornrústum vorum, bæði af manna höndum, fávizku og hirðuleysi, og af hendi náttúrunnar, vatni og vindi. Oss má ekki að eins vera það ljúft og það löngun vor, að gæta þessa góða arfs með ræktarsemi og trúmensku, heldur er það brýn nauðsyn og heilög skylda vor, að gera alt, sem unt er, til að leita þessara fornmenja, viðhalda þeim og verja þær fyrir h vers konar skemdum. í samanburði við frændþjóðir vorar erum vér íslend- ingar skamt á veg komnir með að vernda og friða vorar föstu fornmenjar. Ahugi manna á þessu málefni vakn- aði naumast verulega fyr en kringum 1880, þegar Fornleifafélagið var stofnað. Að vísu hafði forngripa- safnið verið til í allmörg ár áður, en fyrir sakir fákunn- áttu og féleysis hafði lítið verið gert í þessa átt. Það sem gert heflr verið er mest að þakka hinum ötula fornfræð- ingi, Sigurði Vigfússyni, sem með einstökum áhuga og dugnaði fékk tiltölulega miklu til leiðar komið, einkum til að flnna og rannsaka sögustaði og fornar rústir. A síð- ustu árum hefir Fornleifafélagið og Brynjólfur skáld Jóns- son frá Minna-Núpi fengið dálitlar styrkveitingar af lands- sjóði til þess að framkvæma rannsóknir í þessa átt (sbr. ritgerðir hans og Sigurðar Vigfússonar í Arbókum Forn- leifafélagsins). Mest er þó eftir ógert í þessum efnum. Það væri vel, ef fundnir yrðu og rannsakaðir allir fornir þingstaðir, *) Sbr. ritgjörð prófessors FinDS Jónssouar í Árbók Fornleifafélagsins 1901, bls. 1—6, og ýmsar aðrar ritgerðir í Árbókum Fornleifafélagsins; ennfremur Kr. Kalund, Bidrag til en hist.-topogr. Beskrivelse af Island 1—II (sjá registrið aftan við). 17

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.