Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 70

Skírnir - 01.08.1905, Side 70
262 Verndun fornmenja og gamalla kirkjugripa. Til þess að framk\Tæma og sjá um fornmenjafriðanir, og hafa eftirlit með friðuðum fornmenjum, er nauðsynlegt að skipa að minsta kosti einn mann, er hafi vit á að leita íornmenja og rannsaka þær og jafnframt fé til þess alls. — Enda þótt lög yrði gerð um verndun og friðun fastra forn- menja, væi'i óhjákvæmilegt að skipa mann til að benda á þær fornmenjar, er lögin. næðu yfir og rannsaka þær að nokkru leyti, ef lögin ættu að koma að nokkru gagni. — Kæmi það í ljós, að menn vildu ekki góðfúslega friða fornmenjar, mætti siðar gera lög, er skylduðu menn til að friða þær fornmenjar, sem hinn skipaði umsjónarmaður áliti þess verðar. — Auðvitað ætti ráðaneytið að setja þessum umsjónarmanni reglur og hafa eftirlit með störfum hans, og sömul. biðja sýslumenn og önnur ytirvöld um að styrkja hann í framkvæmdum hans og líta eftir því að fyrirmæium hans og friðunarsamningum væri framfylgt. Það sem nú er þegar tekið fram, viðvíkur einkum föstum formnenjum; þær hafa mest gildi í vísindalegu til- liti og varðar mestu að þeirra se vel gætt. En auk þeirra eru enn til margir gripir á Islandi, er nefna mætti lausar fornmenjar. íslendingar hafa gert tiltölulega meira til þess að vernda þær en fastar fornmenjar. Fornmenjanefndin danska sá um að stjórnin (Det kgl. danske Cansellie) skrif- aði 19. IV. 1817 öllum amtmönnum vorum og biskupi um fornmenjar á Islandi og fyrirskipaði, að ekki mætti selja gripi frá kirkjum o. s. frv.*) Nefndin skrifaði og ýmsum embættismönnum á Islandi um fornmenjar o. íl. 5. IV. 1817.**). — Fornmenjanefndinni voru og sendar margar skýrslur um íslenzkar fornmenjar og margir íslenzkir forngripir. Því miður eignuðust Islendingar sjálfir ekki forngripasafn fyr en 1863***). Stofnun þess var mest að *) Sjá Lovsamling for Island 7. b., bls. 667—671; sbr. stjórnarbréf 26. IV. 1817, í sömu bók, bls. 673—674. **) Sjá Lovsamling for Island 7. b., bls. 658—661. ***) Um tildrög safnsins og stofnun þess o. fl. sjá Skýrslu um forn- gripasafn Islands I, bls. 5—36.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.