Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 75

Skírnir - 01.08.1905, Page 75
Verndun fornmenja og gamalla kirkjugripa. 267 sápulút og saltsýru; bréf til biskupa 12. XII. 1895 um áhöld í kirkjum; bréf til biskupa 19. XII. 1895 um að þeir tilkynni prestum, að þeir skuli aðstoða forngripasafns- verðina með ýmsu móti; bréf til biskupa 5. III. 1896 um reykelsisker. Haganlegt myndi að sníða lög vor um lausar forn- menjar og kirkjugripi eftir lögum Svía um þetta efni og þessum stjórnarbréfum Dana. En vart myndi einhlítt að gera lögin án þess að sérstakt eftirlit væri með, að þeim yrði framfylgt og ekki farið að ósekju kring um þau. Einnig er full þörf á, að vísindamönnum í ýmsum grein- um, er hér að lúta, og umsjónarmanni forngripasafnsins .sé gert kunnugt um allar merkustu fornmenjar vorar og listagripi. Einkum er brýn nauðsyn á að rannsaka og vernda gamla legsteina, sem nú liggja víða undir skemd- um.*) Ef skipaður yrði umsjónarmaður fastra fornmenja, mætti einnig, ef hann yrði fær um það, fela lionum á heudur rannsókn og umsjón lausra formnenja Varla myndi af veita að stjórnarráðið skrit'aði biskupi og hann prestum og umsjónarmönnum kirkna um meðferð kirkju- gripa. Að sjálfsögðu ber og að tilgreina í máldögum eða öðrum skýrslum um eignir kirknanna alla þá gripi, er þeim tilheyra, enda ber biskupi að líta eftir öllu slíku, er hann vísiterar. Vér verðum að hugsa og framkvæma eitthvað í þessu mikilsvarðandi málefni og leggja nokkuð fé fram til þeirra framkvæmda. Það er ekki aðeins til vísindalegs gagns, heldur jafnframt vegna tilfinninga vorra og heiðurs þjóð- arinnar. Karlshöfn, í áffústmán. 1905. ,, , , , ’ ° MATTHIAS P0KÐAH80N. Aths. ritstj. Síðan þetta varritað hefir Alþingi 1905 sainþ. svohljúð- andi tillögu til þi ng s ály k t unar uni verndun fornnienja á landinu: „Alþiugi ályktar að skora á landsstjórnina, að leggja fyrir næsta alþingi frumvarp til laga um verndun fornmenja í landinu, og reisa nú þegar alvarlegar skorður gegn því, að forngripum úr kirkjum eða frá öðrum opinberum stofnunum verði fargað út úr landinu frekar en orðið er“. *) Sjá Arhók Fornleifafélagsins 1904, bls. 33—35.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.