Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 80

Skírnir - 01.08.1905, Side 80
-272 Utlendar fréttir. og hyggindi í þessu máli. Gefi guð Svíþjóð mát.t til þess að vinna það upp með framförum heima fyrir sem það ef til vill tap- ar við leysing ríkjasambandsins«. Síðan lagði ráðaneytisformaður- inn, Ramstedt, tillögur stjórnarinnar fyrir ríkisdaginn. Sagði hann bandalagi þjóðanna ekki verða löglega slitið með ákvæði norska stórþingsins eins, hetdur yrði einnig að fást til þess samþykki sænsku stjórnarinnar og ríkisdagsins; væri það uú verkefni þessa þings að ákveða, hver svör Svíar skyldu gefa Norðmönnum um þetta mál. Almenningur í Svíþjóð hafði beðið þess með mikilli óþreyju, að stjórnin léti uppi skoðanir síuar. Nú, er þær komu fram á ríkisdeginum, vöktu þær megna óánægju um land alt. Þótti mönn- nm hún taka alt of vægt í strenginn og Svíaríki engan veginu vanvirðulaust að láta Norðmenn með öllu sjálfráða. t^vo mikið kvað að æsingunni á ríkisdeginum, að við sjált't lá að ráðaneytið yrði þegar að segja af sér völdum. Þó fylgdi jafnaðarmannaflokk- urinn í Svíþjóð máli Norðmanna, vildi láta þá vera lausa úr sam- bandinu, ef þeir æsktu þess sjálfir, og fylgdu blöð flokksins þessu fram fast og einhuga. Sjórninni þótti horfurnar ófriðlegar og sendi sænska flotann vestur fyrir land, til þess að vera við öllu búin. Þingið setti nefnd til að íhuga málið og kom hún fram með álitsskjal sitt 25. júlí. Ekki vildi hún fela stjórninni að semja um málið við Norðmenn, og taldi þó ekki rótt að halda bándalagi ríkjanna við með hervaldi, eða að Norðmönnum nanðugum. En hún sagði, að Norðmenn yrðu að syna skyrar og ákveðnar en orðið væri, að það væri almenningsvilji þar í landi að sambandinu skyldi slitið. Þetta yrðu þeir að gera með þingrofi og nyjum kosniggum, eða þá að leggja spurningu um þetta mál út af fyrir sig undir almenna atkvæðagreiðslu. Reyndist þá svo, að það væri almenn- ingsvilji í Noregi að slíta skyldi sambandinu, þá kveðst nefndin leggja til, að Svíar gefi eftir skilnaðinn, en þó með vissum skil yrðum : 1. að engar víggirðingar né virki megi gera á landamærum Noregs og Svíþjóðar sunnan til, hvorugu megin, en þau sem þegar eru þar skuli rifin niður; 2. að Svíar haldi öllum rétti óskertum, er þeir hafi tengið með samningum við útlend ríki, en séu 'ausir allra skuldbindinga í þeim fyrir Noregs hönd; 3. að engir óvenju- legir skattar skuli lagðir á vörnflutninga milli landanna; 4. að engar tálmanir séu lagðar fyrir notkun vatnsvega frá öðru landinu í hitt. Þessar tillögur voru samþyktar á þinginu í einu hljóði. Bæði þing og stjórn Norðmanna félst strax á, að almetin at- kvæðagreiðsla skyldi fram fara í Noregi urn málið. Var hún ákveðin

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.