Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1905, Page 83

Skírnir - 01.08.1905, Page 83
Kitdómar, 275 tekið ástfóstri við þá skoðun og hættir þess vegna við að hampa henni um of. Eftir minni skoðun er skipun hinna handritanna fult eins eðlileg og skiljanleg. En þetta er alt of langt og flókið mál til þess að það verði rætt hér. Aðalmunurinn á Melabók og hinum handritunum (eða Sturlu- bók, því hér er skella í Hauksb., en hún hefir eflaust verið eins og Stb.) er sá, að eftir Sturlub. er landnám Skal'agríms talið miklu víðáttumeira en í Melabók, og eins og í Egilssögu. Orsökin til þessa á að vera sú, að á síðari tímum hafi arfsögnin smámsaman fært landnámið út og séð það gegnum stækkunargler, og hafi þar valdið miklu um ættargöfgi og ættaróskir; það hafði mikla þ/ðingu, jafn- vel pólitíska þ/ðingu, fyrir ættina (Myramenn) að gera sem mest úr landnámi forföður hennar. Nú er það víst, að Snoiri Sturluson réð næstum þeim landshluta, sem sagan lætur landnám Skallagríms ná yfir, og því sé ekkert líklegra, en að einmitt Snorri hafi ritað Egilssögu, enda hafði það pólitiska þyðingu fyrir hann að gera landnámið sem stærst, hvort sem það samt sem áður er hann sjálfur eða arfsögnin, sem hefur fært mörkin út. En það var þyðingar- mikið fyrir Snorra, að ættfaðir hans hefði átt sem mest. Hverfur svo höf. að því að reyna að s/na með frekari rökum, að Snorri sé höf. sögunnar. Eins og höf. getur hefur sú hugsun líka vaknað hjá mér; það var þegar ég árin 1886—87 var að eiga við útgáfu sögunnar. Eg hugsaði þá allmikið um málið, en ég hvarf frá þess- ari hugsun; mig vantaði nægar eða nógu sterkar sannanir fyrir henni, sem fullnægðu mér. I rauninni hefði mér því þótt vænt um, ef öðrum hefði lánast það, sem mér þá var hugleikið. En yfir höfuð að tala er ég á móti því, að gerðar séu tilraunir til þess að feðra rit eða kvæði, sem gauga ekki undir neinu höfundar- nafni; það er altof hæpið, þó að nokkrar líkur megi stundum færa saman; en það er oftast eða ætíð löng leið eftir til fullrar vissu. Því miður get eg ekki sagt, að rök höf. fullnægi kröfum mínum í þessu efni. Höf. leggur þá aðaláherzluna á alkunna staði í Heimskringlu Snorra, sem líkjast mjög stöðum í Eglu, í frásógninni um Harald hárfagra, og eru stundum orðrétt eins. Höf. vísar til ritgjörðar Gjessitigs, er rækilegast hafi raunsakað málið. Eg hafði gert sömu rannsóknir og samanburð áður en sú ritgiörð kom út, en af þvi að ég var (og er) að mestu herini samþykkur, gat ég þá (í formála Eglu) látið mér nægja að vísa til hennar. Gjessing áleit, að sam- hljóðan Eglu og Hkr. kæmi til af því, að sama frumheimildarritið 18*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.