Skírnir - 01.08.1905, Qupperneq 92
284
Tvö bréf frá Jónasi Hallgrímssyni.
búinn að skrifa honum áður en eg varð verstur. Högni*) skrifar
])ér víst af öllu sínu ástandi. Það er annars bísna hópur íslenzkur,,
sem í sumar ætlar að heimsækja Khöfn. Hér hefi eg líka bréf til
þín frá Jóni Sigurðssyni.**)
Lifðu sífarsæll og mundu
þinn einlæga
Jónas.
II.
Staddur í Reykjavík þann 1. Marts J829
Elskaði góði Tómas minn !
Hafðu vinarþökk fyrir þín góðu kærkomnu tilskrif, annað í
sumarið var; með Landfógetaskipinu, hitt í haust með póstskipinuj
mér eru svo velkomin bréfin þín. Blessuð verði líka eplin þín öll
— t'yrir þau þakka eg þér líka, en þó öllu fremur fyrir vináttu
þítia; hana get eg með aungvu borgað, því mín vinátta er svo lít-
ils verð; en það er ekki mér að kenna og þess vegna veit eg, góði;
Tómas! þú lætur þér nægja með hana — eg skal ekki hætta að
elska þig.
Það sem eg get sagt þér af mér, er ekki mikið — guð veit
vinur! hvort við sjáustum meir. Mitt ævititýri er nefnilega svo-
leiðis: Eg ætlaði mér stadt og stöðugt í sumar að brjótast í að
elta þig; en eg held forlögitt vilji það ekki. Staðt og stöðugt var
eg búinn að ásetja mér að taka penittgalan og kæra mig hvergi,
og í þeirri von, að það mundi slarkast af, fór eg til gamla Jóns á
Böggver8stöðum***) og beiddi hann að lána mér peninga. Hanu
sagði, að ef hagur sinn ekkert umbreyttist til árs, skyldi hanu
lána mér 50 a 60 specíur, en sagðist vera á glóð um að kelling
sín færi að deyja og þá yrði búinu skift til helminga, altsvo mætti
hann ekkert missa ef svo færi, (það var ekki heldur nein von tii,
því hann á ekki meira en hór um bil 60 jarðir!) Mór þótti þetta
allgott og hélt eg víst, að kella mundi skrölta af til vorsins. En
viti menn! Fjandinn sókti hana um nýársleitið, og gamli Jón,.
barnlaus, má náttúrlega ekkert missa af reitunum. Svona er það
*) Högni Einarsson, stúdents í Skógum undir Eyjafjöllum, stundaði
laganám i Khöfn og andaðist þar.
**) Jón Sigurðsson („Bægisárkálfur").
***) Jón Sigurðsson dannebrogsmaður á Böggversstöðum var auð-
maður mestur norðanlands á þeim tíma.