Skírnir - 01.12.1907, Blaðsíða 70
358
Agrip af sögu kvenréttindahreyfingarinnar.
Baráttuaðferð kvenna.
Ahuga kvenna á að berjast fyrir réttindum sín-
um og hinar miklu breytingar til batnaðar, er hver-
vetna hafa orðið á hugsunarhætti þjóðanna í þessu
efni á síðustu árum, má telja bein áhrif af baráttu
amerískra kvenna fyrir þessu máli. Arið 1902 boðaði
Susan B. Anthony til allsherjarkvenfundar í Washington
um þetta mál, og skoraði á öll ríki í Norðurálfunni,
Ástraliu og Ameriku að taka þátt í honum. 6 lönd sendu
fulltrúa. Þá var stofnað allsherjar-sambandsfélag af
kjörréttarfélögum þessara landa, með það markmið fyrir
augum að vinna e i n g ö n g u að því, að útvega konurn
fult stjórnarfarslegt jafnrétti við karlmenn, sem fyrsta
skilyrði og grundvöll undir öilum borgaralegum og laga-
legum réttindum þeirra. Sambandsþing skyldi halda ann-
að hvert ár, og átti það helzt að haldast þar, sem mest
þörf væri í hvert sinn á að vekja áhuga kvenna. Hvert
landsfélag átti að starfa eingöngu að þessu máli. Síðan
hafa konur hvervetna sömu aðferðina, að ferðast um,
halda fyrirlestra um þessi mál, og að því búnu að fá við-
staddar konur til að ganga í félagsdeildir, sem sameinast
allar i einu landsfélagi. Auk þess hefir verið barist ör-
ugglega fyrir málinu í hverju landi, bæði í ræðum og
ritum, með fundarhöldum og fortölum. Á sambandsþing-
unum hefir hvert sambandsland gefið skýrslur um ástand-
ið og störfin þar. Á þann hátt hefir hvert félag lært af
öðru. Á síðasta stórþinginu var komið á. fót blaði fyrir
allsherjarfélagið, er gefur út mánaðarlega skýrslur um
framfarir og horfur þessa máls i hverju landi. Nú eru
hin félögin að taka það eftir. Bæði amerisku og ensku
•og dönsku kjörréttarfélögin hafa komið á stofn sérstökum
blöðum fyrir sig. Mikfl áherzla er lögð á að fá dagblöð-
in í lið með sér. Meginreglan er þessi: Hlutleysi í
flokksmálum, meðan engin réttindi eru fengin. Þeim ein-
um flokkum skal lið veita við kosningar, sem tryggja
konum fylgi sitt aftur á móti. Þetta hefir borið góðan