Skírnir - 01.08.1914, Page 9
Draumar.
233
neikvæðu sjónarmiði.' Við getum ekki látið okkur
nægja það, sem almennar fræðibækur gera, að fjölyrða ein-
göngu um þá vöku-hæfileika, sem v a n t a r, hvernig skyn-
junin út á við dvínar, hvernig Stjórn skynseminnar hverf-
ur. Við verðum líka að tala um svefninn frá j á k v æ ð u
sjónarmiði, lita á hann, að svo miklu leyti, sem við get-
um, sem ákveðna hlið á persónuleik okkar, jafnstæða
vökuhliðinni. Sumt af því, sem í svefninum gerist, er al-
veg sérstaks eðlis; því verður ekki jafnað saman við neitt,
sem fyrir okkur kemur í vökunni. Og alveg víst er það,
að draumarnir eru ekki æ f i n 1 e g a yfirborðsruglingur
liðinnar vöku-reynslu, þó að þeir séu það tíðast, heldur
býr í þeim sérstakur máttur, fenginn úr einhverju því
djúpi tilveru okkar, sem við náum ekki til í vöku.
Alveg sérstaks eðlis eru, til dæmis að taka, þau áhrif
svefnsins, sem okkur eru öllum kunnust, hressingin, sem
honum fylgir. Við höfum sennilega öll reynt það, þó að
enginn viti, hvernig á því stendur, að það eitt, að við
blundum allra-snöggvast, að okkur að eins hverfur hugur,
það getur hrest okkur og styrkt meira en margra klukku-
stunda hvíld í vöku gæti gert. Eftir einnar eða tveggja
sekúnda svefn getum við jafnvel litið alt öðrum augum
á tilveruna en við gerðum áður. Þá er sýnilegt, að eitt-
hvað er að gerast annað eða alt annan veg en ella, þó
að við vitum ekki, hvað það er.
. Venjulega höfum viö, eins og ykkur er öllum kunn-
ugt, ekkert vald á líkama okkar í svefninum. En líka
kemur það fyrir suma menn, að þeir hafa margfalt meira
vald á likamanum í svefni en í vöku, geta sofandi farið
um hættulega staði, sem þeir gætu ekki með nokkuru
móti í vöku.
Stundum vaxa hæfileikarnir í svefni frá því sem þeir
eru í vöku. Einn af helztu rithöfundum Breta á síðari
hluta síðustu aldar hét Robert Louis Stevenson. Haun
gerði tilraunir með drauma sína, sem engum hafa tekist
jafnvel. Honum tókst að láta sig dreyma sýnir, sem urðu
að efninu í sumum beztu sögum hans. Sömuleiðis kemur