Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1914, Page 14

Skírnir - 01.08.1914, Page 14
238 Draumar. minsta heimatelpan- týndi nýja hnífnum sínum. Allar telpurnar fóru að leita að honum, en fundu hann ekki, og eigandinn var óhuggandi. Telpurnar skildu um kvöldið raunamæddar, og þó að faðirinn neytti allra bragða til að hugga barnið, sem týnt hafði hnífnum, þá fór hún grát- andi í rúmið. Um nóttina dreymir barnið, að bróðir hennar komi til hennar, taki í höndina á henni og segi: »Komdu með mér, góða; eg ætla að sýna þér, hvar hnífurinn þinn er«. Þá leiðir hann hana út í hlöðuna, klifrar með henni upp á heyið, sýnir henni hnífinn og lætur hana festa sér stað- inn í minni. Telpan vaknar um morguninn, full af fögnuði, og segir systrum sínum, að bróðir þeirra hafi komið til sín um nóttina og sýnt sér, hvar hnífurinn sé. Systur hennar fara að hlæja að henni, en hún er friðlaus eftir að fara að leita að hnifnum, og alveg sannfærð um, að hún viti, hvar hann sé. Svo að þær klæða sig í snatri, og önnur systir hennar fer með henni út í hlöðuna. Hún gengur rakleiðis þangað, sem bróðir hennar hafði vísað henni til. Og þar liggur hnífurinn ofan á heyinu. Skýring vísindamanna er hér hin sama eins og á draum mannsins, sem týnt hafði uppskipunarskjölunum. Telpan hafði leitað að hnífnum um alt heyið. Hversdagsvitund hennar sést yfir staðinn, þar sem hann liggur, en undir- vitundin tekur eftir honum, og getur ekki komið vitnesk- junni inn í hversdagsvitundina annan veg en í svefni. En nú get eg hugsað mér, að einhverjum verði að spyrja: Hvers vegna á að vera að demba þessu öllu á undirvitundina, sem við vitum lítið um! Ef fjarskygnin er sönuuð, hvers vegna gat þá ekki verið um hana að tefla, þegar Lewis sá í draumi skjölin, sem hann hafði týnt, eða þegar stúlkan sá hnífinn sinn í heyinu? Og eg get líka hugsað mér, að sumir spyrji enn fremur: Ef mennirnir lifa eftir dauðann og ef tekist hefir að ná ein- hverju sambandi við þá framliðna, eins og svo margir vísindamenn telja nú sæmilega vel sannað, hvers vegna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.