Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1914, Side 106

Skírnir - 01.08.1914, Side 106
330 Útlendar fréttir. inni og vill ekki gefa sig undir löggjafarvald þings, sem að meiri hluta sé skipað af kaþólska flokknum. Undir þessa hreyfingu hefir verið róið mjög af íhaldsflokknum heima í Englandi, til þess að hefta framgang heimastjórnarlaga Ira, því að sá flokkur telur með þeim rofna einingu rikisins. Nú var sórstakur her kominn á fót í Ulster, er beita átti gegn löggjafarvaldi og stjórn ríkisins, og hann ekki fámennur. Her Ulstermanna var talinn 110 þús. manna í 65 deildum, alt fótgöngulið, en stórskotalið og riddaralið var þar ekki. Urðu nú ýmsar óeirðir og uppþot í Ulster, og fregnirnar þaðan sögðu, að uppreisnarmenn væru í þann veginn að skipa hjá sér bráðabirgðastjórn. Lögregluliðið réð auðvitað ekki við neitt úr því að svo var komið, og skotvopnabirgðir voru fluttar inn til Úlsterhersins, þrátt fyrir þær ráðstafanir, sem stjórnin hafði gert til að hindra það. Nú sendi stjórnin herskip vestur til Irlands til þess að gæta strandanna, og bauð einnig landhernum þar vestra, að halda Úlsterbúum í skefjum. En margir af herforingjunum ensku beiddust þá lausnar og vildu ekki ganga í ófrið móti Úlster- búum. Hermálaráðherrann, Seely, þótti ekki koma hreinlega fram í afskiftum sínum af þessu, og varð það til þess, að hann varð að biðjast lausnar, en Asquith yfirráðherra tók þá að sér hermálaráð- herraembættið. Greiddist svo furðanlega úr þessu, eftir því sem á horfðist. Deilan út af þessu máli var alleinkennileg, með því að því var haldið fram af foringjum íhaldsmauna heima á Englandi, að Úlsterbúar væru að verja einingu ríkisins gegn stjórninni og her- valdi sjálfs rfkisins. Þeir töldu það óhæfu, að hervaldi ríkisins væri beitt gegn þeim, sem væru að verjast sundrungu þess. Hvern- ig getur ensk stjórn skipað enskum hermönnum að skjóta Úlster- búa niður fyrir þær sakir, að þeir vilja ekki skiljast frá Englandi? sögðu íhaldsmenn. Og þetta náði eyrum margra. Aftur sögðu stjórnarmenn, að hér væri ekki að ræða um neitt rof á ríkiseining- unni, þótt látið væri eftir sanngjörnum kröfum íra um sjálfstjórn. Og þeir bentu á, að það gæti ekki og mætti ekki eiga sór stað, að lítill minni hluti í neðri málstofunni fengi í sambandi við efri málstofuna að skipa fyrir um, hver lög ættu að ná gildi og hver ekki. En svo yrði það, ef írska málið strandaði nú á Úlster-deil- unni. Asquithsstjórnin fann upp þann milliveg, að hin einstöku greifadæmi í Úlster skyldu gera út um það með almennri atkvæða- greiðslu, hvort þau vildu heldur gefa sig undir löggjafarvald írska Jþingsins væntanlega, eða vera eins og áður háð löggjafarvaldi enska
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.