Skírnir - 01.08.1914, Qupperneq 112
336
Útlendar fréttir.
héruð ríkisins eru nær eingöngu bygð af Serbum, og hjá þeim er
uppi sterk hreyfing í þá átt, aS sameina Serba sem mest í einu
ríki, og uxu vonirnar um, aS þetta mætti takast, mikiS viS sigur-
vinningarnar í BalkanófriSnum.
Stórslys á sjó. 29. mai varS sjóslys af árekstri viS Kanada-
strönd, í mynni St. Lawrence-fljótsins, og er þaS taliS stærsta sjó-
slys af því tægi næst eftir Titanic-slysiS mikla. Stórt fólksflutninga-
skip, »Empress of Ireland«, var þar á ferS, eign »Canadian Pacifie
Bailways-félagsins«-, kom frá Quebec og var á leiS austur til Eng-
lands. Þokuský mikil og dimm voru þar á sveimi. Inn eftir fljóts-
mynninu, eSa flóanum, því fljótsmynniS er þarna mjög breitt, kom
norskt flutningaskip, sem »Storstad« heitir, á móti »Empress of
Ireland«. Sáu stjórnendur skipanna hvor til annars milli þokuský-
anna og gáfu hvor öSrum merki, til þess aS varast árekstur. En
svo rak yfir þau svart ský, og áSur en varSi hjó stefniS á »Stor-
stad« { hliSina á »Empress of Ireland« og braut hana svo, aS skipiS
sökk eftir örfáar mínútur. »Storstad« brotnaSi einnig mikiS aS
framan. Skipin losnuSu hvert frá öSru rétt eftir áreksturinn, er
flýtti mjög fyrir tjóni af slysinu, og kenna skipstjórarnir hvor öSr-
um um, aS svo varS, og um slysiS yfir höfuS, og útgerSarfólög hvors
um sig hafa höfSaS skaSabótamál. Á »Empress of Ireland« .voru
1467 manns. Flestir voru í rúmum sínum og í svefni, er árekstur-
inn varS, og urSu því seinni til en ella aS bjarga sér. 446 komust
af, og voru þeir flestir tíndir saman af flekum og reköldum, en
1021 fórst. Skipstjórinn á »Empress of Ireland« heitir Kendall, en
skipstjórinn á »Storstad« Andersen. »Storstad« hélt inn til Mont-
real og þar var skipiS sett fast. Ekki er enn útgert um þaS, hvoru
skipinu verSi fremur gefin sök á slysinu, eSa hvort bæSi séu jafnsek.
Þ. 6.