Skírnir - 01.12.1914, Side 9
Hefir jörðin sál ?
349
fullkominn. Engin lögun gat hugsast hentugri, því jörðin
er alt i senn: vagn, hjól og hestur.
Mörgum sem eiga að hugsa sér að jörðin sé lifandi
líkami líkt og vér, hættir við að taka líkinguna of bók-
staflega og gera ekki ráð fyrir afbrigðum. Sé jörðin lif-
andi og skynjandi vera, hvar eru þá heili hennar og
taugar, hjarta og lungu, spyrja þeir, og búast þannig við
að þau lífsstörf, sem jörðin heflr oss til að vinna fyrir
sig, verði hún að hafa sérstök líffæri til að vinna, í lik-
ingu við vor. Þeir gleyma því þá, að jurtir, dýr og menn
eru líffæri jarðar. Lungu allra skepna jarðarinnar eru
um leið lungu hennar, og vér getum litið svo á sem önd-
unarfæri allra jarðneskra vera séu greinar á einu alls-
herjar öndunarfæri, sem tengir þau öll, en það er and-
rúmsloftið sem lykur um jörðina, þvi þaðan kemur loftið
í þau öll og þangað fer það úr þeim aftur og gengur á
milli þeirra, flytur plöntunum andardrátt dýranna til nær-
ingar og dýrunum aftur hreinsaðan anda plantnanna.
Vindarnir blása um alt og greiða þannig fyrir andardrætt-
inum. Hvi ætti jörðunni ekki að nægja þetta öndunar-
færi? Á líkan hátt eru æðakerfi allra lifandi vera grein-
ar af æðakerfi jarðar, þaðan fá þau innihald sitt og þangað
skila þau því aftur. Fljót og lækir flytja vatnið niður á
við, tré og jurtir lyfta því upp, menn og dýr flytja það
í allar áttir, og á þessari hringrás blandast það margvís-
legum efnum. En ekki þarf jörðin sérstakt hjarta í brjósti
til að halda þessum hringrásum líkama síns við, þar sem
sólin stöðugt hefur vatnið á loft, skúrirnar dreifa því um
löndin, en þunginn dregur það aftur um fljót og læki í
skaut hafsins.
En hvernig á nú jörðin að skynja og hugsa, og það
á fullkomari hátt en vér, ef hún hefir engan heilann?
Svo munu margir spyrja, því það sálarlíf sem vér höfum
beina vitneskju um er tengt við heila og störf hans.
Jörðin er ekki heldur heilalaus, því allir heilar manna
og dýra heyra henni til, eru líffæri í líkama hennar. En
vér megum ekki gera ráð fyrir að allir þessir heilar