Ný félagsrit - 01.01.1853, Síða 49
OM bODORD.
49
fullri vissu álykta, ab Ingálfr abeins hafi skipt þessu landi
milli skipverja sinna og leysíngja, hvort sem hann þá gaf
þeim jörbina um leiö eí)a lét þá abeins vera landseta sína
og leiguliha, og er þa& þá sjálfsagt, aö flestir hafa einasta
verib þab; en hverir þeir hafi verib, er hvergi getib, því
þab er aöeins sagt frá höfbíngjunum í Landnámu. Sjálf-
sagt hefir og Ingölfr eins og abrir landnámsmenn, t. a. m.
Skallagrímr og Geirmundr heljarskinn, átt fleiri enn eitt
bú í landareign sinni, sem hann ei einu sinni byggbi á
leigu, en abeins setti einhvern af þrælum sínum eba
heimamönnum til ab varbveita, einsog konúngar settu
ármenn yfir bú sín. Búskapur fornmanna, þaö er ab
segja höfbíngjanna, og vib höfum litlar sögur um aðra,
var yfirhöfub ab tala miklu stúrkostlegri enn nú á dögum,
þar sem allt er miklu jafnara, en líka jafn kotúngslegra,
og þurfum vib því ei a!b furba okkur svo mjög á, þó
menn í sögum komi opt fram meö undarlegum höf&íngs-
brag, því föng þeirra, sem land áttu sjálfir, voru optast
nær nóg, hvernig sem svo landsetunum leib; Blundketill
einn átti 30 leigulönd, og var hann þó lángtfrá mebal
mestu höf&íngja.
Næst sjálfum sér gaf íngólfr, sem ábur er ádrepib,
Asbirni bró&ursyni sínum land, Alftanesib allt frá
Hraunsholtslæk ab Hvassahrauni, og er þafe eptirtekta-
ver&t um þetta og öll hin næstu Jandnám, ab þau svara
næstum því öldúngis til hreppaskiptíngar þeirrar, sem nú
er, svo segja má a& sveitastjórn í Gullbríngusýslu sé enn
ab miklu leiti á þeim bygS. Um Asbjörn er þab sagt, ab
hann hafi búib á Skúlastö&um, en þab vitum vér nú ei,
hvar sá bær eba bæjarstæ&i er, og er þab líklegt, ab þab
nú sé eyöijörS eba hjáleiga frá einhverri annarri, því
svo hefir opt farib um hina fyrstu bústabi margra landnáms-
4