Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1848, Blaðsíða 33
í Snæfellsnessýslu eru, nú sem stendur, bæk-
ur Möllers - Iestrarfélags taldar nieð bókum lestr-
arfélags Vesturamtsins, sem eins og sjámáábóka-
lista þeim, sem prentaður er, yfir bækur félags
þessa, eru nú 520 að tölu og í vörzlum bókavarð-
arins, kaupmanns A. O. Thorlaciusar í Stykkishólmi;
munu bækur Möllerska félagsins hafa verið nálægt
80 bindum, og er ei ólíklegt, að andlegrar stéttar
menn lesi bækur þessar ókeypis.
Síðan lestrarfélag Möllers hófst fyrir 8 árum
í Mýrasýslu, hefir það tekið talsverðum framför-
um, og má ætla, að það sé liéraðsprófastinum að
þakka, að því leyti sem hann mun hafa vakið at-
hygli manna á nytsemi þess, og þess utan studt að
því, að því liefir gefizt töluvert af bókum; þannig
hefir það eignazt frá Landbústjórnarfélaginu 134
þarflegar bækur. Hefir ei einúngis kennilýður liér-
aðsins geingið í félag þetta, heldur befir og sýslu-
maðurinn og hreppstjórarnir árlega gefið því 1 eða
2 dali, sem varið hefir verið til bókakaupa. Á nú
félag þetta yfir 400 bækur, og hjá forseta sínum,
héraðsprófastinum Th. E. Hjálmarsen á llítardal,
rúma 40 dali í peníngum.
3