Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Side 39

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Side 39
MANNALÁT. 39 geir Ásgeirsson, kaupmaður á Ísaíirði. Hann varð bráð- kvaddur í Kaupmannahöfn 2. nóv. nálægt sextugu. Hann var talinn auðugastur innlendra kaupmanna, og hafði grœtt allt fje sitt sjálfur. Hann var orðlagður ráðdeildar- og þrekmaður, merkur höfðingi í mörgu og þjóðvinur; hann var um tíma vara- þingmaður ísfirðinga. — 25. júní varð Tómas Thomsen, kaupmaður á Blönduós, ungur maður og efnilegur, bráðkvaddur. — 24. apríl dó í Reykjavík verzlunarstjóri Kristján Zimsen, 68 ára; hann var danskur að kyni, merkur maður ogvellátinn. — Meðalmerkiskvenna, er Ijetust á árinu, voru Berljót Gutt- ormsdóttir (Pálssonar prófasts í Vallanesi), kona Sigurðar prófasts Gunnarssonar á Hallormsstað; hún dó 2. okt., 68 ára. f>órunn Ásgrímsdóttir (Vigfússonar prests í Breiðuvíkur- þingum), ekkja Gríms prófasts Pálssonar á Helgafelli; hún dó 4. okt., 76 ára. fo rbj örg Jó ns dó t tir Konráðssonar, ekkja Benidikts prófasts Vigfússonar á Hólum í Hjaltadal; hún dó í ágúst, hnigin á efra aldur. F r á í s I e n (1 i n g u in í V e s t u r li e i m i, Mannflutningar frá íslandi til Vesturheims urðu í minna lagi árið 1877. Svo er sagt, að úr Múlasýslum hafi farið 50 til 60 manna til Nýja íslands, en eigi er getið um aðra mannflokka. Auk þessa flokks fóru og nokkrir menn ein- stakir. í Nýja-íslandi er nú kominn á regluleg nýlenduskipun. Landnámið allt nefnist Vatnsþing. pví er skipt í 4 byggðar- lög, Víðirnesbyggð, Árnesbyggð, Fljótsbyggð og Mikleyjarbyggð. Nýlendumenn hafa nú gjört samþykktir um stjórnarfyrirkomu- lag landsins eða stjórnarskrá, sem bæði er frjálsleg og óbrotin. Eptir henni skulu íbúar hverrar byggðar árlega kjósa 5 menn í nefnd til að hafa á hendi öll þau mál, er varða byggðina. Hver nefnd kýs sjer formann, er nefnist byggðarstjóri. Kosningar- rjett og kjörgengi hafa allir þeir, sem eiga fast heimili í ný- lendunni, eru 21 árs að aldri og hafa óskert mannorð. Almenn- ir byggðafundir skulu vera í hverjum marzmánuði, og auk þess svo opt sem byggðarnefnd þurfa þykir. Byggðarncfndir annast

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.